Fréttablaðið - 11.09.2021, Side 56
Hugbúnaðarsérfræðingur
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Rannís er líflegur vinnustaður með um 60 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og
samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun
og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum
sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á
þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.
Borgartúni 30, 105 Reykjavík,
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Rannís óskar eftir að ráða hugbúnaðarsérfræðing í fullt starf. Starfið felst í hönnun,
hugbúnaðargerð og umsjón með umsókna-, umsýslu- og upplýsingakerfum fyrir Rannís.
Menntunar- og hæfniskröfur:
l Háskólamenntun á sviði hugbúnaðarfræða eða annað sambærilegt nám skilyrði
l Þekking og reynsla á PHP, SQL, JavaScript og Java er æskileg
l Reynsla af hugbúnaðargerð, Agile og Scrum er æskileg
l Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni
l Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði
og veita góða þjónustu
Upplýsingar um starfið veitir Berglind Fanndal Káradóttir, sviðsstjóri greininga- og
hugbúnaðarsviðs, í síma 515 5816 eða í netfangið berglind.fanndal@rannis.is.
Umsóknafrestur er til og með 14. september 2021.
Sækja skal um á vefsíðu Rannís, www.rannis.is/starfsemi/laus-storf/.
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
Útlendingastofnun leitar að sviðsstjóra til að leiða verndarsvið stofnunarinnar.
Verndarsvið hefur það hlutverk að þjónusta umsækjendur um alþjóðlega vernd með hagsmuni þjónustuþega að leiðarljósi og afgreiða umsóknir þeirra um alþjóðlega
vernd á Íslandi. Starfið er umfangsmikið og krefjandi. Helstu verkefni eru dagleg stjórnun sviðsins, ábyrgð á að þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd sé fagleg
og vönduð, í samræmi við innlendar og erlendar skuldbindingar íslenskra stjórnvalda og taki mið af einstaklingsbundnum þörfum, ábyrgð á að úrvinnsla umsókna um al-
þjóðlega vernd sé fagleg, skilvirk og fullnægi innlendum og erlendum skuldbindingum sem kveðið er á um í lögum, reglugerðum og alþjóðasamningum, þátttaka í stefnu-
mótun og samskipti við ráðuneyti, stofnanir og aðra samstarfsaðila, þ.m.t. samskipti og veiting upplýsinga og viðtala við fjölmiðla.
Sviðsstjóri verndarsviðs Útlendingastofnunar þarf að búa yfir mikilli leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi. Sviðsstjóri skal hafa reynslu af opinberri
stjórnsýslu og vera reiðubúinn að taka þátt í og vinna að stöðugum umbótum. Sviðsstjóri verndarsviðs heyrir undir forstjóra Útlendingastofnunar.
Í boði er áhugavert starf á spennandi vinnustað sem er á fleygiferð í stafrænni vegferð. Hjá Útlendingastofnun starfar um 90 manna samhentur hópur á fjórum sviðum.
Útlendingastofnun leggur ríka áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og kost á fjarvinnu.
Stofnunin hefur undanfarin ár tekið þátt í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og er miðað við 36 stunda vinnuviku hjá öllu starfsfólki.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Dagleg stjórnun og skipulag verndarsviðs
• Að starfsemi sviðsins sé í samræmi við löggjöf, stefnur og markmið stofnunar
• Þátttaka í stefnumótun
• Að umsóknir og erindi séu afgreidd á faglegan og skilvirkan hátt
• Að þjónusta við þjónustuþega sé vönduð og fagleg
• Miðlun upplýsinga gagnvart samstarfsaðilum og samfélagi
• Að verkferlar séu til staðar, þeim fylgt og uppfærðir
• Að unnið sé að stöðugum umbótum innan sviðsins
Hæfniskröfur
• BA gráða í lögfræði ásamt meistaragráðu í lögfræði eða embættispróf í lögfræði
• Stjórnunarreynsla er skilyrði
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði
• Þekking og reynsla af málefnum sviðsins er kostur
• Brennandi áhugi á stafrænum lausnum
• Skipulagshæfni og frumkvæði
• Mjög góð almenn tölvukunnátta
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Geta og vilji til að koma fram í fjölmiðlum
• Geta til að vinna undir álagi og leiða umbótastarf
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og geta til að forgangsraða verkefnum
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Stéttarfélags lögfræðinga og fjármálaráðherra.
Umsókn skal fylgja ferilskrá að hámarki 2 bls. ásamt mynd og kynningarbréfi sem er að hámarki 1 bls. á íslensku. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa
eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum ásamt einkunnum úr námi. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður
sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.
Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað er.
Starfshlutfall er 100% og um er að ræða ótímabundna ráðningu með þriggja mánaða reynslutíma.
Eingöngu er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Starfatorgs.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið, óháð kyni. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.
Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Birkir Hauksson, mannauðsstjóri – birkir@utl.is – 444-0900
Umsóknarfrestur er til og með 20/09/2021
Sviðsstjóri
16 ATVINNUBLAÐIÐ 11. september 2021 LAUGARDAGUR