Fréttablaðið - 11.09.2021, Síða 56

Fréttablaðið - 11.09.2021, Síða 56
Hugbúnaðarsérfræðingur H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Rannís er líflegur vinnustaður með um 60 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu. Borgartúni 30, 105 Reykjavík, sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Rannís óskar eftir að ráða hugbúnaðarsérfræðing í fullt starf. Starfið felst í hönnun, hugbúnaðargerð og umsjón með umsókna-, umsýslu- og upplýsingakerfum fyrir Rannís. Menntunar- og hæfniskröfur: l Háskólamenntun á sviði hugbúnaðarfræða eða annað sambærilegt nám skilyrði l Þekking og reynsla á PHP, SQL, JavaScript og Java er æskileg l Reynsla af hugbúnaðargerð, Agile og Scrum er æskileg l Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni l Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu Upplýsingar um starfið veitir Berglind Fanndal Káradóttir, sviðsstjóri greininga- og hugbúnaðarsviðs, í síma 515 5816 eða í netfangið berglind.fanndal@rannis.is. Umsóknafrestur er til og með 14. september 2021. Sækja skal um á vefsíðu Rannís, www.rannis.is/starfsemi/laus-storf/. Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is Útlendingastofnun leitar að sviðsstjóra til að leiða verndarsvið stofnunarinnar. Verndarsvið hefur það hlutverk að þjónusta umsækjendur um alþjóðlega vernd með hagsmuni þjónustuþega að leiðarljósi og afgreiða umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi. Starfið er umfangsmikið og krefjandi. Helstu verkefni eru dagleg stjórnun sviðsins, ábyrgð á að þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd sé fagleg og vönduð, í samræmi við innlendar og erlendar skuldbindingar íslenskra stjórnvalda og taki mið af einstaklingsbundnum þörfum, ábyrgð á að úrvinnsla umsókna um al- þjóðlega vernd sé fagleg, skilvirk og fullnægi innlendum og erlendum skuldbindingum sem kveðið er á um í lögum, reglugerðum og alþjóðasamningum, þátttaka í stefnu- mótun og samskipti við ráðuneyti, stofnanir og aðra samstarfsaðila, þ.m.t. samskipti og veiting upplýsinga og viðtala við fjölmiðla. Sviðsstjóri verndarsviðs Útlendingastofnunar þarf að búa yfir mikilli leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi. Sviðsstjóri skal hafa reynslu af opinberri stjórnsýslu og vera reiðubúinn að taka þátt í og vinna að stöðugum umbótum. Sviðsstjóri verndarsviðs heyrir undir forstjóra Útlendingastofnunar. Í boði er áhugavert starf á spennandi vinnustað sem er á fleygiferð í stafrænni vegferð. Hjá Útlendingastofnun starfar um 90 manna samhentur hópur á fjórum sviðum. Útlendingastofnun leggur ríka áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og kost á fjarvinnu. Stofnunin hefur undanfarin ár tekið þátt í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og er miðað við 36 stunda vinnuviku hjá öllu starfsfólki. Helstu verkefni og ábyrgð • Dagleg stjórnun og skipulag verndarsviðs • Að starfsemi sviðsins sé í samræmi við löggjöf, stefnur og markmið stofnunar • Þátttaka í stefnumótun • Að umsóknir og erindi séu afgreidd á faglegan og skilvirkan hátt • Að þjónusta við þjónustuþega sé vönduð og fagleg • Miðlun upplýsinga gagnvart samstarfsaðilum og samfélagi • Að verkferlar séu til staðar, þeim fylgt og uppfærðir • Að unnið sé að stöðugum umbótum innan sviðsins Hæfniskröfur • BA gráða í lögfræði ásamt meistaragráðu í lögfræði eða embættispróf í lögfræði • Stjórnunarreynsla er skilyrði • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði • Þekking og reynsla af málefnum sviðsins er kostur • Brennandi áhugi á stafrænum lausnum • Skipulagshæfni og frumkvæði • Mjög góð almenn tölvukunnátta • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti • Geta og vilji til að koma fram í fjölmiðlum • Geta til að vinna undir álagi og leiða umbótastarf • Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Sjálfstæði í vinnubrögðum og geta til að forgangsraða verkefnum Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Stéttarfélags lögfræðinga og fjármálaráðherra. Umsókn skal fylgja ferilskrá að hámarki 2 bls. ásamt mynd og kynningarbréfi sem er að hámarki 1 bls. á íslensku. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum ásamt einkunnum úr námi. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna. Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað er. Starfshlutfall er 100% og um er að ræða ótímabundna ráðningu með þriggja mánaða reynslutíma. Eingöngu er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Starfatorgs. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið, óháð kyni. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Birkir Hauksson, mannauðsstjóri – birkir@utl.is – 444-0900 Umsóknarfrestur er til og með 20/09/2021 Sviðsstjóri 16 ATVINNUBLAÐIÐ 11. september 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.