Fréttablaðið - 11.09.2021, Side 57

Fréttablaðið - 11.09.2021, Side 57
442 1000 Upplýsingaver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Skatturinn er á höttunum eftir skapandi hugbúnaðarsérfræðingi með brennandi áhuga á rafrænum lausnum, gögnum og gervigreind Helstu verkefni Á tæknisviði Skattsins í Reykjavík er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem miða að liprum og öruggum rafrænum samskiptum við almenning og öruggri og hagkvæmri úrvinnslu upplýsinga sem Skattinum berast. Starfið felur í sér þróun og rekstur á upplýsingakerfum Skattsins auk samskipta við samstarfsaðila vegna daglegra verkefna tengt tolla- og skattframkvæmd. Auk þessa snúa verkefnin að hinum ýmsu sviðum gervigreindar, allt frá tölfræðigreiningu upp í vélrænt gagnanám. Menntunar– og hæfniskröfur • Háskólamenntun á sviði tölvunar-, verkfræði eða annarra raungreina sem nýtast í starfi (lágmarksmenntun er bakkalár gráða). • Þekking og/eða reynsla á Python, C#, .NET og SQL. • Færni í þarfagreiningu og hönnun lausna. • Þekking og áhugi á helstu aðferðum við tölfræðigreiningar og beitingu á vélrænu gagnanámi er æskileg. • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð. • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli. • Frumkvæði og metnaður. • Fáguð framkoma og lipurð í samskiptum. • Jákvæðni og rík þjónustulund. • Geta til að vinna undir álagi. • Hreint sakavottorð. Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa. Starfshlutfall er 100% og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins eða á vefsíðu Starfatorgs, starfatorg.is. Ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir skal fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi. Skatturinn hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2021 og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Þór Svansson, sviðsstjóri tæknisviðs, í síma 442-1000 eða með tölvupósti á netfangið jens.svansson@skatturinn.is. Vilt þú slást í hóp hugbúnaðarsérfræðinga hjá Skattinum? Þátttakandi í íslensku atvinnulífi í 50 ár Þarftu að ráða starfsmann? RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 www.radum.is • radum@radum.is Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðs ráðgjöf. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.