Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 57
442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Skatturinn er á höttunum eftir skapandi hugbúnaðarsérfræðingi
með brennandi áhuga á rafrænum lausnum, gögnum og gervigreind
Helstu verkefni
Á tæknisviði Skattsins í Reykjavík er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem miða að liprum og
öruggum rafrænum samskiptum við almenning og öruggri og hagkvæmri úrvinnslu upplýsinga
sem Skattinum berast. Starfið felur í sér þróun og rekstur á upplýsingakerfum Skattsins auk
samskipta við samstarfsaðila vegna daglegra verkefna tengt tolla- og skattframkvæmd.
Auk þessa snúa verkefnin að hinum ýmsu sviðum gervigreindar, allt frá tölfræðigreiningu upp
í vélrænt gagnanám.
Menntunar– og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði tölvunar-, verkfræði eða annarra raungreina sem nýtast
í starfi (lágmarksmenntun er bakkalár gráða).
• Þekking og/eða reynsla á Python, C#, .NET og SQL.
• Færni í þarfagreiningu og hönnun lausna.
• Þekking og áhugi á helstu aðferðum við tölfræðigreiningar og beitingu á vélrænu
gagnanámi er æskileg.
• Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
• Frumkvæði og metnaður.
• Fáguð framkoma og lipurð í samskiptum.
• Jákvæðni og rík þjónustulund.
• Geta til að vinna undir álagi.
• Hreint sakavottorð.
Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu
sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Starfshlutfall er 100% og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og
efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins eða á vefsíðu Starfatorgs, starfatorg.is.
Ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri
störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir skal fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi.
Skatturinn hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2021 og verður öllum umsóknum svarað
þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Þór Svansson, sviðsstjóri tæknisviðs,
í síma 442-1000 eða með tölvupósti á netfangið jens.svansson@skatturinn.is.
Vilt þú slást í hóp
hugbúnaðarsérfræðinga
hjá Skattinum?
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í 50 ár
Þarftu að ráða
starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770
www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir
sig í ráðningum og
mannauðs ráðgjöf.
Við komum til móts
við þarfir fyrirtækja
og sérsníðum
lausnir sem henta
hverjum viðskiptavini.