Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 58

Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 58
 Dómsmálaráðuneyti auglýsir stöðu saksóknara við embætti héraðssaksóknara lausa til umsóknar. Miðað er við að dómsmálaráðherra skipi í embættið frá og með 15. október 2021. Saksóknarar eru héraðssaksóknara til aðstoðar, sbr. 1. mgr. 22. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Um verkefni og starfsskyldur héraðssak- sóknara má finna upplýsingar í lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008. Laun eru samkvæmt 22. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, sbr. 11. gr. laga nr. 79/2019. Saksóknari fer með ákæruvald á Saksóknarsviði II hjá embætti héraðssaksóknara, sem rannsakar og höfðar sakamál vegna efnahags- og skattalagabrota Saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara er skipaður til fimm ára og skal full- nægja sömu lagaskilyrðum og héraðsdómari til skipunar í embætti, sbr. 1. mgr. 22. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla. Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um, eftir því sem við á: 1) menntun og hvort umsækjandi hafi í námi sínu sérstaklega lagt sig eftir refsi- rétti og/eða sakamálaréttarfari, 2) reynslu af sakamálaréttarfari, saksókn mála og/eða annarri meðferð ákæru- valds, 3) menntun og/eða reynsla á sviði efnahags- og skattalagabrota, 4) reynslu af dómstörfum, 5) reynslu af lögmannsstörfum, 6) reynslu af stjórnsýslustörfum, 7) reynslu af fræðistörfum, 8) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtist í embætti saksóknara, 9) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 10) upplýsingar sem snúa að andlegu atgervi, áræði, mannlegum samskiptum og sjálfstæði, 11) upplýsingar um þrjá núverandi eða fyrrverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem geta veitt upplýsingar um störf, samstarfshæfni og aðra hæfni umsækjanda 12) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækj- anda sem máli skipta fyrir störf saksóknara. Jafnframt er áhersla lögð á styrkleika í samvinnu og samskiptum, sem og frum- kvæði og metnað til að ná árangri í starfi. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem saksóknari. Umsóknir óskast sendar rafrænt á netfangið starf@DMR.is eða skriflega til dóms- málaráðuneytis, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum skulu umsækjendur gefa upp tölvupóstfang sem notað verður til að eiga öll samskipti við umsækjendur. Taka skal fram að ráðuneytið kann að óska eftir upplýsingum frá umsækjendum um fjárhag þeirra og hagsmunatengsl sem kunna að hafa áhrif á almennt og sér- stakt hæfi saksóknara. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 24. september nk. Nánari upplýsingar um starfið veita Ragna Bjarnadóttir í dómsmálaráðuneytinu, í síma 545-9000 og Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari í síma 444-0150. Staða saksóknara við embætti héraðssaksóknara laus til umsóknar. Erum við að leita að þér? Þátttakandi í íslensku atvinnulífi í 50 ár hagvangur.is Erum við að leita að þér?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.