Fréttablaðið - 11.09.2021, Síða 58
Dómsmálaráðuneyti auglýsir stöðu saksóknara við embætti héraðssaksóknara
lausa til umsóknar. Miðað er við að dómsmálaráðherra skipi í embættið frá og með
15. október 2021. Saksóknarar eru héraðssaksóknara til aðstoðar, sbr. 1. mgr. 22. gr.
laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Um verkefni og starfsskyldur héraðssak-
sóknara má finna upplýsingar í lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Laun eru samkvæmt 22. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, sbr. 11. gr. laga
nr. 79/2019.
Saksóknari fer með ákæruvald á Saksóknarsviði II hjá embætti héraðssaksóknara,
sem rannsakar og höfðar sakamál vegna efnahags- og skattalagabrota
Saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara er skipaður til fimm ára og skal full-
nægja sömu lagaskilyrðum og héraðsdómari til skipunar í embætti, sbr. 1. mgr.
22. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla.
Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um, eftir því sem við á:
1) menntun og hvort umsækjandi hafi í námi sínu sérstaklega lagt sig eftir refsi-
rétti og/eða sakamálaréttarfari,
2) reynslu af sakamálaréttarfari, saksókn mála og/eða annarri meðferð ákæru-
valds,
3) menntun og/eða reynsla á sviði efnahags- og skattalagabrota,
4) reynslu af dómstörfum,
5) reynslu af lögmannsstörfum,
6) reynslu af stjórnsýslustörfum,
7) reynslu af fræðistörfum,
8) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtist í embætti saksóknara,
9) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni,
10) upplýsingar sem snúa að andlegu atgervi, áræði, mannlegum samskiptum og
sjálfstæði,
11) upplýsingar um þrjá núverandi eða fyrrverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem
geta veitt upplýsingar um störf, samstarfshæfni og aðra hæfni umsækjanda
12) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækj-
anda sem máli skipta fyrir störf saksóknara.
Jafnframt er áhersla lögð á styrkleika í samvinnu og samskiptum, sem og frum-
kvæði og metnað til að ná árangri í starfi.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á:
1) ferilskrá,
2) afrit af prófskírteinum,
3) önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem
saksóknari.
Umsóknir óskast sendar rafrænt á netfangið starf@DMR.is eða skriflega til dóms-
málaráðuneytis, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík.
Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum skulu umsækjendur gefa
upp tölvupóstfang sem notað verður til að eiga öll samskipti við umsækjendur.
Taka skal fram að ráðuneytið kann að óska eftir upplýsingum frá umsækjendum
um fjárhag þeirra og hagsmunatengsl sem kunna að hafa áhrif á almennt og sér-
stakt hæfi saksóknara.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 24. september nk.
Nánari upplýsingar um starfið veita Ragna Bjarnadóttir í dómsmálaráðuneytinu,
í síma 545-9000 og Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari í síma 444-0150.
Staða saksóknara við embætti
héraðssaksóknara laus til umsóknar.
Erum við
að leita að þér?
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í 50 ár
hagvangur.is
Erum við
að leita að þér?