Fréttablaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 74
Hildur Ösp Gunnarsdóttir
útskrifaðist úr Hárakademí
unni 2019 með framúr
skarandi sveinspróf, þá
bar hún sigur úr býtum á
Íslandsmótinu sama ár, en
að hennar sögn ætlaði hún
sér aldrei út í þennan bransa.
„Ég ætlaði aldrei í hársnyrtinn
og ég streittist í raun á móti því.
Ég hef alltaf haft áhuga á hári og
verið að gera f léttur og hárgreiðsl-
ur síðan ég man eftir mér. Þá horfi
ég mikið á YouTube-myndbönd
þar sem verið er að vinna með
hár. Mamma og pabbi tóku eftir
þessu og spurðu þegar ég var í
menntaskóla hvort ég myndi nú
ekki fara í Tækniskólann að læra
hárgreiðslu. Það vildi ég alls ekki
og fór í Versló. Eftir útskrift 2016
langaði mig í sjúkraþjálfaranám.
Ég tók mér árspásu til þess að
ferðast og á meðan skoðaði ég
nám í háskólanum fyrir haustið
en leist ekki á neitt.
Þá bentu foreldrar mínir mér á
ný á að sækja um í Hárakademí-
unni og ég athugaði málið. Þá kom
í ljós að umsóknarfresturinn var
liðinn. Ég endaði á að hringja í
skólastjórann og fékk að vita að
það hefði losnað pláss. Skólinn
byrjaði í ágúst en ég var föst í
vinnu í Bandaríkjunum og kom
ekki heim fyrr en í september og
byrjaði þremur vikum of seint. En
ég var fljót að koma mér inn í allt.
Þarna fann ég mig algerlega og
þetta nám hefur verið alveg sjúk-
lega skemmtilegt,“ segir Hildur,
sem hefur nú bætt við sig meistara-
námi úr Meistaraskólanum.
Metnaður alla leið
Hildur er 25 ára gömul og hóf nám
í Hárakademíunni árið 2017. Þegar
kom að því að taka sveinsprófið
í lok námsins, árið 2019, segist
Hildur hafa tekið metnaðinn svo-
lítið langt, sem skilaði sér margfalt
til baka. „Í sveinsprófinu tekur
maður próf í ýmsum greinum,
eins og litun og klippingu, herra-
klippingu, permanenti og fleiru.
Í hverjum flokki gera nemendur
verklýsingar um það sem þeir ætla
að gera í prófinu. Þar kemur fram
útskýring á því hvernig módelið
var fyrir og hvað maður ætli að
gera til að breyta því. Í lokin fara
prófdómarar yfir útkomuna og
verklýsinguna og athuga hvort hún
stemmi ekki.
Ég var sjúklega metnaðarfull og
ætlaði mér að ná langt. Ég hafði
skipulagt mig marga mánuði fyrir
prófið, að finna módel og æfa mig á
þeim. Ég var með ömmu í blæstri í
hverri viku og klippti frænda minn
á þriggja vikna fresti. Þegar ég fékk
einkunnina var ég himinlifandi,
enda sá ég að öll vinnan síðasta
árið hafði skilað sér. Það var mjög
góð tilfinning.“
Íslandsmeistari
Stuttu eftir að Hildur útskrifað-
ist hafði Harpa Ómarsdóttir,
meistari Hildar úr skólanum,
samband við hana og spurði
hvort hún vildi keppa fyrir hönd
Hárakademíunnar á Íslandsmóti
iðn- og verkgreina. „Ég var feimin
við það fyrst en ákvað að taka
þátt. Í keppninni var mikið lagt
upp úr heildarútlitinu í öllum
greinum. Í herraklippingunni
átti ég að hanna sjálf tískulínu
og klippa eftir henni. Sama gilti
í dömuklippingunni. Þá vorum
við búin að lita hárið fyrir fram
en klipptum á staðnum. Svo gerði
ég brúðargreiðslu og fór alla leið,
fékk brúðarkjól lánaðan hjá vin-
konu minni, skreytti módelið með
skarti og hugsaði vel út í heild-
arútlitið. Að lokum var keppni í
greiðslu sem við fengum senda
fyrirfram á mynd. Þá áttum við að
gera eins og á myndinni.
Þegar við vorum búin að
klippa, stigum við frá og dómar-
arnir komu og dæmdu. Það voru
keppendanúmer á speglunum
og dómararnir vissu ekki hvaða
keppandi var númer hvað. Núna
stefni ég á að fara út og taka ein-
hver námskeið og efla mig meira í
faginu.“
Ávanabindandi tilfinning
Í náminu fór Hildur á starfssamn-
ing hjá Blondie í Síðumúla árið
2018. „Ég hef svo unnið þar síðan
ég hlaut sveinsprófið 2019. Þá er ég
að vinna í Þjóðleikhúsinu og svo
kenni ég í Hárakademíunni.
Það er ómetanlegt að fá að vinna
við áhugamálið sitt. Ég lifi mig
mjög mikið inn í það sem ég er að
gera og starfið er ótrúlega fjöl-
breytt. Það er svo góð tilfinning
að sjá viðskiptavininn labba út
ánægðan með sjálfan sig. Þetta er
svolítið ávanabindandi tilfinning.
Í Þjóðleikhúsinu fæ ég að vinna
meira með mun ýktari hár-
greiðslur og förðun en á stofunni.
Núna vinn ég í Rómeó og Júlíu,
Kardimommubænum og nýju
leikriti sem nefnist Ásta og verður
frumsýnt 17. september. Leikritið
spannar langan tíma og á hverju
tímabili eru nýjar greiðslur. Í
kennslunni fæ ég að deila reynslu
minni og þekkingu. Það er mjög
gaman að fara aftur á byrjunarreit
og kenna við skólann sem ég lærði
sjálf í.“ ■
Hárrétt ákvörðun að fara út í hárbransann
Hildur Ösp segir hársnyrtistarfið fjölbreytt og skemmtilegt. En hún ætlaði
ekki alltaf út í þennan bransa. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hildur segir tilfinninguna þegar viðskiptavinur gengur ánægður út af stofunni vera mjög gefandi og ávanabindandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
6 kynningarblað 11. september 2021 LAUGARDAGURSTELPUR OG VERKNÁM