Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.09.2021, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 11.09.2021, Qupperneq 78
Ég upplifi leik- listarbröltið sem hina bestu sálfræðimeð- ferð, það er gott fyrir sjálfsmyndina og hjálpar manni að þora að tjá sig. Sigríður Olsen Frá barnæsku hefur Olsen- systrunum Sólveigu, Sigríði og Bjarklindi dreymt um að verða leikkonur. Í kvöld rætist draumurinn í kapellu gamla St. Jósefsspítala. thordisg@frettabladid.is „Ég hef haft brennandi áhuga á leiklist síðan ég var á táningsaldri en hafði ekki hugrekki til að gera neitt í málunum fyrr en nýlega að ég gerðist félagi í Leikfélagi Hafnar- fjarðar og fór í kjölfarið á námskeið þar í leiklist,“ segir Sigríður Olsen, mið-Olsensystirin sem stígur á stokk með systrum sínum, Sól- veigu og Bjarklindi Olsen, í Tæki- færisleikhúsinu í kapellu gamla St. Jósefsspítalans í kvöld, klukkan 18. Hugmyndin að Tækifærisleik- húsinu varð til í höfundasmiðju Leikfélags Hafnarfjarðar (LH) en margra ára hefð er fyrir stuttverka- kvöldunum Hinu vikulega hjá LH. Þá fá höfundar viku til að skrifa verk sem svo eru æfð í viku og síðan sýnd, en í kvöld verða sýnd nokkur stuttverk sem verða samin í dag. „Höfundar LH hittast reglulega á laugardagsmorgnum í kapellunni til að skrifa. Oftast eru forsendur dregnar úr höttum og svo er skrifað í ákveðinn tíma, til dæmis klukkutíma. Úr þessum æfingum hafa komið hin skemmtilegustu leikverk og alveg merkilega heilleg á ekki lengri tíma,“ upplýsir Ing- veldur Lára Þórðardóttir, stjórnar- kona hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar. Hugmyndin að Tækifærisleik- húsinu hafi svo kviknað þegar rædd var nýstárleg tilraun; að prófa að semja og æfa fyrir stutt- verkakvöld á aðeins einum degi, í stað tveggja vikna. „Það yrði örugglega mátulega spontant og fyndið því enginn hefði tíma til að taka sig of alvar- lega. Því þótti okkur ráð að bjóða gestum og gangandi að taka þátt eða fylgjast með. Það er nefnilega mjög hollt, gefandi og gaman að stunda leiklist og ótrúleg tilfinn- ing að taka þátt í svona skyndi- sköpun, þar sem allt má og ekkert er of asnalegt, og það gerir heldur ekkert til þótt eitthvað klúðrist. Það gerir bara gott betra því leik- hús þarf ekki að vera flókið,“ segir Ingveldur, full tilhlökkunar fyrir kvöldinu. Sleppt fram af sér beislinu Sólveig, elsta Olsen-systirin, er ekki sannfærð um að hafa sérstaka hæfileika á leiklistarsviðinu, en þó hafi blundað í henni leikkonu- draumur frá unglingsaldri. „Ég hef þó örugglega sönghæfi- leika og hef mjög gaman af því að syngja. Systur mínar hafa hvatt mig til að koma í áhugaleikfélag Hafnarfjarðar en ég hef aldrei sótt leiklistarnámskeið. Ég ákvað samt að slá til og taka þátt í þessu leikverki í kvöld, aðallega til að hafa gaman af og líka upp á félags- skapinn, en mestmegnis til að leika með systrum mínum. Þannig efast ég ekki um að þetta verði afbragðs skemmtun, bæði fyrir okkur og áhorfendur, og svo sjáum við til hvort ég skrái mig ekki í Leikfélagið í framhaldinu,“ segir Sólveig glettin. Í sumar sótti Sigríður, sem er ávallt kölluð Sigga, árlegan sumarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga ásamt Bjarklindi, þeirri yngstu með Olsen-nafnið. Þar var boðið upp á kennslu í f lestu sem við kemur leiklist. „Ég var tólf ára þegar ég heillað- ist af leiklist og tók virkan þátt í skólasýningum, bæði dansi og leikritum. Þá var ég alls ófeimin og sá mig í hillingum sem leikkonu í framtíðinni. Með aldrinum varð ég feimnari við að koma fram, en ákvað í fyrra að drífa mig með Siggu í Leikfélag Hafnarfjarðar, því mér fannst tími til kominn að stíga skrefið og fann styrk í að við færum saman,“ greinir Bjarklind frá. Hún sér svo sannarlega ekki eftir því. „Í Leikfélaginu get ég sleppt fram af mér beislinu og verið ég sjálf, sem og hvaða persóna sem er, í alls konar hlutverkum. Ég held að allir hefðu gott af því að finna hinar ýmsu tilfinningar kvikna, og sem þeir hafa kannski aldrei áður upplifað, með því að fara í önnur hlutverk. Þá mætti að mínu mati hafa leiklist sem skyldufag í grunn- skólum, bara fyrir lífið sjálft,“ segir Bjarklind, sæl með nýfengið leikkonulíf. Hún heldur áfram: „Leiklistarskóli Bandalags íslenskra listamanna var æðisleg upplifun og ævintýri í sumar. Ég er ánægð með að vera hluti af þeim frábæra félagsskap og finnst auð- vitað afar spennandi að fá að leika með systrum mínum. Það gerir allt miklu auðveldara þar sem við erum nánar fyrir og þekkjumst svo vel.“ Sigga tekur undir hvert orð hjá Bjarklindi, litlu systur sinni. „Ég ákvað bara að hella mér út í leiklistina núna því ég hef aldrei losnað við leiklistarbakteríuna. Ég vona bara að ég hafi hæfileika og hef ekki heyrt annað en að ég sé bara asskoti góð,“ segir Sigga og skellir upp úr. Draumurinn að leika í bíómynd Það er óvenjulegt að þrjár systur eigi sameiginlegan draum um að vera dáðar á leiksviðinu en þær eru þær einu í stórfjölskyldunni sem hafa þennan óslökkvandi áhuga á leiklist og muna ekki eftir neinum frægum leikurum aftur í ættum. „En það eru miklir sönghæfi- leikar í kringum okkur og ég er einmitt nýlega byrjuð í söngnámi,“ segir Sigga og allar eru systurnar söngelskar. Þær hafa líka alla tíð sett upp leikrit saman og fíflast við að herma eftir fólki og þáttum. „Draumurinn væri að leika í grínþáttum og bíómyndum,“ segir Bjarklind og Sigga er systur sinni sammála, en væri líka til í að leika í hvers kyns sjónvarpsseríum. „Aðalmarkmiðið er þó að hafa gaman af þessu með skemmtileg- fólki. Ég upplifi leiklistarbröltið sem hina bestu sálfræðimeðferð, það er gott fyrir sjálfsmyndina og hjálpar manni að þora að tjá sig. Það er reyndar ótrúlega gefandi og gaman að geta brugðið sér í annað hlutverk og leikið sér í því, bæði í gríni og alvöru,“ segir Sigga. Olsen-systurnar eru spenntar fyrir kvöldinu í kapellunni. „Þetta verður óvissuferð þar sem allt gerist á einum og sama deginum; leikverk samin, leik- arar valdir, þeim leikstýrt og afraksturinn sýndur frammi fyrir áhorfendum. Ég get ekki beðið eftir að taka þátt, sjá verkin fæðast og verða að veruleika á sviði,“ segir Bjarklind. Olsen-systurnar vita eðlilega ekkert hvað stykkið sem þær leika í heitir, enda enn ósamið í pop up- leikhúsi dagsins. „Það er yndislega gaman að við systur séum í þessu saman og allar jafn áhugasamar. Vonandi berum við gæfu til að fá enn fleiri tæki- færi sem leikkonur í framtíðinni. Áhorfendur mega svo búast við mikilli skemmtun og innblæstri í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem Leikfélag Hafnarfjarðar setur upp leikverk í f leirtölu sem samin eru örfáum klukkustundum fyrir frumsýningu. Það verður eitt- hvað!“ segir Sigga. n Olsen-systur vinna leiksigra í kapellu Leikkonurnar Sigríður, Sólveig og Bjarklind eru söngelskar Olsen-systur. Þær segja styrk í því að sækja leiklistardraum- inn í sameiningu og fá tækifæri til að leika saman í pop up-leikhúsi kvöldsins í St. Jósefsspítala. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR FYRSTU ÁRIN Veglegt sérblað Fréttablaðsins um fyrstu ár barnsins kemur út föstudaginn 17. september. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Nánari upplýsingar um blaðið veitir: Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654 / jonivar@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að daguri n og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 8 kynningarblað A L LT 11. september 2021 LAUGARDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.