Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 80

Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 80
Nýi síminn er sagður hafa sömu eiginleika og iPhone 2012 en hefur verið bættur um- talsvert. elin@frettabladid.is Mikil tilhlökkun ríkir hjá aðdá- endum iPhone þar sem fyrirhuguð er ný útgáfa um miðjan septem- ber. Apple gefur lítið út um nýja símann en talið er að hann muni heita iPhone 13. Síminn mun líta svipað út og iPhone 2020 línan og hafa sömu eiginleika. Þó hafa verið gerðar miklar endurbætur á myndavél- inni, síminn verður með hraðari örgjörva, þar á meðal ofurhratt 5G-mótald og aukinn líftíma rafhlöðu. Hann gæti því orðið öflugasti síminn hingað til. Búist er við að týpurnar verði fjórar í þremur stærðum, tvær „Pro“ og tvær í ódýrari kantinum. Það hafa orðið nokkuð margar breytingar á iPhone síðan hann kom fyrst á markað árið 2007. Sím- arnir eru orðnir mun fullkomnari en því er jafnframt spáð að þeir muni hækka talsvert í verði. ■ Nýr öflugur iPhone Til að koma í veg fyrir þreytu yfir daginn er best að halda sömu svefn- rútínu alla daga vikunnar. elin@frettabladid.is Fólk sem vaknar þreytt á morgn- ana og er úrvinda á kvöldin hefur mögulega ekki sofið nægilega vel. Þreyta er afleiðing af lélegum svefni. „Það geta verið margar ástæður fyrir því að við sofum ekki nægjanlega vel,“ segir dr. Lindsey Browning, sálfræðingur og svefnráðgjafi, við breska tíma- ritið Stylist. Þreyta getur haft áhrif á til- finningar okkar, frammistöðu í vinnunni, þrek til að þjálfa líkamann eða gera eitt og annað sem okkur finnst skemmtilegt. Margir þjást af svefnleysi og vakna þreyttir. Ef heimilisráð eins og hugleiðsla, lavender í koddann eða kamillute gagnast ekki er kannski kominn tími til að skoða hvað það er raunverulega sem veldur þessari þreytu. Persónulegur svefn Að sögn Lindsey þurfa flestir sjö til níu tíma svefn. Færri þurfa meiri eða minni svefn. „Svefn er mjög persónulegur. Átta tíma svefn er ekki hentugur fyrir alla. Ef fólk fær ekki nægan svefn kemur það niður á orku líkamans. Ágætt ráð er að skrifa hjá sér líðan sína 15-20 mínútum eftir að maður vaknar,“ bendir hún á. „Ef þér finnst sjö til átta tíma svefn halda þér í góðu formi allan daginn þá er það rétti tíminn fyrir þig. Ef hins vegar þú þarft 10-11 tíma svefn getur verið eitthvað annað sem hefur áhrif á þreytuna. Til dæmis svefngæði eða heilsufarsvandamál. Ef þú sefur minna en sjö klukkustundir ætt- irðu að skoða lífsstíl þinn. Sumir fara snemma í rúmið og vakna fyrr á meðan aðrir eru næturhrafnar og vilja vaka lengi en vakna seint. Fjölskylda og vinna geta haft áhrif á svefnáætlun en besta leiðin til að halda þreytu í skefjum er að fara alltaf að sofa á sama tíma og vakna sömuleiðis á sama tíma. Helgarnar rugla oft svefnrútínu í eina eða aðra átt sem getur orðið til þess að fólk er þreyttara í vinnuvikunni. Þess vegna er mikilvægt að halda svefn- rútínu alla vikuna.“ Vítamín og birta Annað dæmi er of lítil birta. Dagsbirtan er afar mikilvæg fyrir svefninn. Að vera úti í birtunni hjálpar heilanum að tímasetja sig. Áhrifaríkt er að fara í göngu- túr á bjartasta tímanum. Einnig getur D-vítamín og járn minnkað þreytu. Mataræðið hefur einnig áhrif á orkuleysi. Draga skal úr fituríkum mat og þeim sem hefur mikið kolvetnismagn. Jafnvægi í mataræði gefur betri heilsu. Eitt annað er koffín. Of mikil kaffidrykkja síðdegis hefur nei- kvæð áhrif á svefninn. Ekki ætti að drekka kaffi eftir klukkan 15 á daginn. Ef um svefnvandamál er að ræða ætti að draga stórlega úr kaffidrykkju yfir daginn. Það er margsannað að hreyfing- styrkir þrekið og fólki, sem hreyfir sig daglega, líður betur andlega. Góð þjálfun eykur endorfín í líkamanum og bætir orkuna til muna. Andleg heilsa hefur mikil áhrif á svefninn og ef hún er góð verður orkan meiri. ■ Orkuleysi og svefnvandamál stendur vörð um þína heilsu Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Af bæði eigin reynslu og í gegnum starf mitt sem hjúkrunarfræðingur hef ég áttað mig á því hversu stór partur af heilsu fólks er tengdur meltingarveginum. Regluleg inntaka á góðgerlum styður við heilbrigða þarmaflóru og eflir ónæmiskerfið. Ég get svo sannarlega mælt með Bio-Kult vörunum sem hluta af heilbrigðum lífsstíl. Laufey Steindórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og jógakennari. ÖFLUGIR GÓÐGERLAR fyrir alla fjölskylduna 10 kynningarblað A L LT 11. september 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.