Fréttablaðið - 11.09.2021, Side 90
Víðir Mýrmann opnar þriðju
einkasýningu sína, Tilvist, í Gall-
erí Fold í dag.
arnartomas@frettabladid.is
Myndlistarmaðurinn Víðir Mýrmann
opnar einkasýninguna Tilvist í Gallerí
Fold í dag. Þetta er þriðja sýning Víðis
í galleríinu og er talsvert stærri en þær
sem á undan komu.
„Þetta er allt abstrakt nálgun á lands-
lag þar sem áherslan er lögð á núvitund,
að staldra við og njóta þess sem skiptir
máli“ segir Víðir, sem vinnur verkin öll
með olíu á striga. „Við erum aðeins að
tapa okkur í hraðanum og tækniþróun-
inni. Þetta er í rauninni bara róman-
tík eins og gömlu málararnir voru að
fást við, en kannski með aðeins meira
nútímaívafi.“
Víðir segir að stóra spurningin að baki
sýningunni sé: „hvað skiptir eiginlega
máli?“
„Er það ekki jarðtengingin? Við erum
alltaf að berjast við að halda henni og ég
er ekkert síður en aðrir þar,“ segir hann.
„Það sem situr eftir í lífinu er samtalið,
sem við eigum við umhverfið og annað
fólk. Þetta veraldlega er bara skraut.“
Huglæg alkemía
Víðir segir að myndefni sýningarinnar
sé ekki af ákveðnum stöðum heldur sé
um hughrif og upplifun að ræða. „Mikið
af þessu er eitthvað sem ég hef tekið inn
við að ferðast um,“ segir hann. „Ekki
endilega það sem augun sjá, heldur eitt-
hvað sem er þar að baki.“
Tilvist er öllu bjartari en síðasta sýn-
ing Víðis, Árstíðir, þar sem hann beitti
sér fyrir því sem hann kallar dökka
rómantík. Að baki verkunum sem eru
til sýnis segir Víðir að skynjun gestanna
skipti höfuðmáli.
„Það sem ég geri eru skilaboð sem
koma til mín og ég kem áfram á tví-
víðan flöt,“ útskýrir hann. „Þín skynjun
er önnur en mín og ég er ekkert að trufla
hana. Þetta er huglæg alkemía – að taka
hlut, tilfinningu eða hugmynd og breyta
henni í eitthvað annað.“
Oft veit Víðir ekki hvað hann var að
gera fyrr en mörgum mánuðum síðar og
segir hann að spurningin skipti meira
máli en svarið. „Mín nálgun er sköp-
unin og hvert verk hefur sína rödd,“
segir hann. „Útkoman er oft óljós og ég
hef ekki mikið vald yfir henni.“ n
Útkoman getur oft verið óljós
Víðir segist sækja í sama rómantíska efnivið og gömlu málararnir, en með nútímaívafi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Verkin á sýningunni eru ekki af ákveðnum stöðum, en byggja á upplifun. MYNDIR/AÐSENDAR
Mín nálgun er sköpunin
og hvert verk hefur sína
rödd.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Stefán Hjálmarsson
svæfinga- og gjörgæslulæknir,
lést á heimili sínu 31. ágúst sl.
Útför hans fer fram þriðjudaginn
14. september kl. 13 frá Hafnarfjarðarkirkju.
Streymt verður frá athöfninni: https://youtu.be/LrQ3PvrhFQw
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hins látna er bent á Dropann, styrktarfélag sykursjúkra
barna.
Unnur Rannveig Stefánsdóttir
Tinna Mjöll Stefánsdóttir
Hjálmar Stefánsson Rakel Ýr Ólafsdóttir
Margrét Stefánsdóttir Guðmundur Snorri Eysteinsson
Magnus Julius
Ástkær eiginkona mín, móðir, amma,
langamma og langalangamma,
Jóna Guðrún Kristinsdóttir
Njarðarvöllum 6 í Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
29. júní. Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Ástvinir þakka auðsýnda samúð og vinarhug.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, fyrir góða umönnun.
Sveinn Jensson
Jón Heiðar Sveinsson Sigrún Harpa Hauksdóttir
Esther Selma Sveinsdóttir
Lilja Sveinsdóttir
Sveinbjörn Sveinsson
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubarn.
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Arnar Ólafsson
(Óli stormur)
fv. lögreglumaður og skipstjóri,
lést þann 14. ágúst
á sjúkrahúsinu Akranesi.
Útför verður frá Stykkishólmskirkju þann 13. september
klukkan 14. Útförin verður send út í streymi á
www.stormur.lognid.is
Ólafur Björn Ólafsson Jolanta M. Glaz
Þorsteinn Bjarki Ólafsson Tatiana Malai
Bent Russel Helga Ingibjörg Reynisdóttir
Rúnar Russel Tuti Ruslaini
Frank Russel
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Hörður Ragnarsson
Sólmundarhöfða 7, Akranesi,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi, þriðjudaginn
7. september. Útför hans fer fram frá
Akraneskirkju fimmtudaginn 16. september kl. 13.
Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is. Blóm og kransar afþökkuð, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á að styrkja Badmintonfélag
Akraness, bankanúmer: 0186-26-9026, kt. 430169-6109.
Drífa Harðardóttir, Faisal, Salma og Sara
Una Harðardóttir
Ragnar Harðarson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Björn Jóhannesson
Prestastíg 8,
lést á Landspítalanum Fossvogi
þann 3. september sl.
Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju,
þriðjudaginn 14. september kl. 13.
Útförinni verður streymt á www.streyma.is
Lilja Guðmundsdóttir
Jóhannes Björnsson
Gyða Björnsdóttir Sigurður Gunnarsson
Bragi Björnsson Bryndís Harðardóttir
Björn Þór Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Gunnarsson
frá Steinsstöðum, Akranesi,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða, föstudaginn 3. september.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju
þriðjudaginn 14. september klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Skógræktarfélag Skilmannahrepps kt. 490399-2089
bankareikningur nr. 0552-26-1872.
Sigurður Pétur Sigurðsson Kolbrún Gunnarsdóttir
Runólfur Þór Sigurðsson Soffía Örlygsdóttir
Guðmundur Gísli Sigurðsson Kristín Guðrún Jónsdóttir
Sigmundur G. Sigurðsson Guðríður Guðmundsdóttir
Sigurlín M. Sigurðardóttir Magnús Sverrisson
Helga Sigurðardóttir Halldór Karlsson
Guðráður Gunnar Sigurðsson Ása Líndal Hinriksdóttir
afabörnin og langafabörnin.
Elsku systir okkar,
Gígja Guðfinna Thoroddsen
Starengi 6, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítala
8. september 2021.
Ólafur E. Thoroddsen
Ásta St. Thoroddsen
38 Tímamót 11. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ