Fréttablaðið - 11.09.2021, Side 104

Fréttablaðið - 11.09.2021, Side 104
Stundum ætlum við að fara eitthvað sem er langt fram í tímann og klessum á alls konar á leiðinni. Myndlistarkonan Regína Magdalena er með vinnu­ stofu á Korpúlfsstöðum þar sem hún opnar sýningu á Hlöðuloftinu í dag. Pensil­ strokurnar í verkum hennar minna margar á Ítalíu, þaðan sem hún hefur sótt sér bæði innblástur og menntun eftir ófyrirsjáanlegum tímalínum tilverunnar. toti@frettabladid.is Myndlistarkonan Regína Magda– lena teiknar og málar með olíu á vinnustofu sinni á Korpúlfsstöðum þar sem hún leyfir verkunum að njóta sín í galopnu rými Hlöðu­ loftsins á sýningu sem verður opnuð í dag. Verk Regínu eru alls konar en ítölsk áhrif og litir eru áberandi enda taugar hennar og tengingar við Ítalíu og þá sérstaklega Napólí sterkar. „Ég er fædd í Reykjavík 1968 en fór fyrst til Ítalíu þegar ég var sautján ára og bjó í Napólí í sjö ár. Það er svo mikil list þarna úti og listaverk að maður bara sogar þetta allt í sig og ég drakk þetta svolítið í mig,“ segir Regína, um þann ítalska anda sem svífur yfir Korpúlfsstöðum með verkum hennar. „Ég heillaðist bara strax, þegar ég var lítil stelpa að skoða listaverka­ bækur, af þessum alvöru meisturum frá Ítalíu. Michelangelo, Leonardo og hvernig þeir nota litina. Þessir rauðu litir. Það eru svona ákveðnir litir sem eru sýnilegir í þessum mál­ verkum þarna úti.“ Hver vegur frá Napólí … Þegar Regína kom heim til Íslands eftir Ítalíuárin sjö var hún í raun þegar á leiðinni aftur til Napólí. „Þegar ég kom heim fór ég fyrst á listasvið FB þar sem ég ætlaði að henda í möppu og fara aftur til Ítal­ íu,“ segir Regína um námsáformin, sem áttu eftir að taka nokkra útúr­ dúra áður en hún endaði þar sem hún ætlaði sér í Accademia di belle arti í Napólí. „Ég fór af listasviði FB í áfram­ haldandi nám við Myndlista­ og handíðaskóla Íslands, en þessi mikla tenging mín við Ítalíu leiddi mig að lokum aftur til Napólí að mála í Akademíunni þar. Ég ætlaði alltaf að fara þarna en lífið er bara einhvern veginn þann­ ig að ég fór, en ekki á mínum tíma,“ segir Regína sem horfir á lífið sem einhvers konar tímalínu sem liggi alla veganna. Tímalínur lífsins „Við sjáum eitthvað á línunni okkar eins og kannski að ég ætlaði í skóla þarna. Það var eitthvað sem ég sá á minni tímalínu en sá ekki alveg hve­ nær. Þú veist, stundum ætlum við að fara eitthvað sem er langt fram í tímann og klessum á alls konar á leiðinni,“ heldur Regína áfram og bendir á að hún fáist meðal annars við tímalínur í list sinni og að eitt verkanna á sýningunni heitir meira að segja Tímalína.“ Regína segir aðspurð að verkin á sýningunni séu hálf tímalaus. „Ég setti engan tíma á hana. Talandi um að vera í einhverri tímalínu,“ segir hún og hlær. „Ég til dæmis er að taka verk sem ég byrjaði á ein­ hvern tímann og klára ekki fyrr en kannski bara í sumar. Þú ert kannski með plan, eins og þegar ég var lítil stelpa og ætlaði bara að mála, en svo bara kemur lífið með önnur plön. Þannig að myndirnar eru sumar alveg frá 2004 og bara til dagsins í dag.“ Sýning Regínu Magdalenu verður opnuð á Hlöðulofti Korpúlfsstaða klukkan 14 í dag og aðgangur er ókeypis. n Málað eftir skrykkjóttum tímalínum „Ég er með alls konar fólk og bara verur,“ segir Regína um málverkin sem hún talar um sem glugga að lífssýn hennar. „Það eru til margir heimar og þetta eru svolítið bara gluggar hingað og þangað.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Áhrifa klassíska, ítalska mál- verksins gætir í litum, áferð og formum verka Regínu sem þó endurspegla einnig stundum íslenska dulúð og hulduheima. Regína Magdalena er með sterkar tengingar við Ítalíu eins og mörg verkanna á sýningu hennar á Korpúlfsstöðum bera með sér. stod2.is Tryggðu þér áskrift Í KVÖLD 52 Lífið 11. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 11. september 2021 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.