Fréttablaðið - 11.09.2021, Page 104
Stundum ætlum við að
fara eitthvað sem er
langt fram í tímann og
klessum á alls konar á
leiðinni.
Myndlistarkonan Regína
Magdalena er með vinnu
stofu á Korpúlfsstöðum þar
sem hún opnar sýningu á
Hlöðuloftinu í dag. Pensil
strokurnar í verkum hennar
minna margar á Ítalíu, þaðan
sem hún hefur sótt sér bæði
innblástur og menntun eftir
ófyrirsjáanlegum tímalínum
tilverunnar.
toti@frettabladid.is
Myndlistarkonan Regína Magda–
lena teiknar og málar með olíu á
vinnustofu sinni á Korpúlfsstöðum
þar sem hún leyfir verkunum að
njóta sín í galopnu rými Hlöðu
loftsins á sýningu sem verður opnuð
í dag.
Verk Regínu eru alls konar en
ítölsk áhrif og litir eru áberandi
enda taugar hennar og tengingar
við Ítalíu og þá sérstaklega Napólí
sterkar.
„Ég er fædd í Reykjavík 1968 en fór
fyrst til Ítalíu þegar ég var sautján
ára og bjó í Napólí í sjö ár. Það er svo
mikil list þarna úti og listaverk að
maður bara sogar þetta allt í sig og
ég drakk þetta svolítið í mig,“ segir
Regína, um þann ítalska anda sem
svífur yfir Korpúlfsstöðum með
verkum hennar.
„Ég heillaðist bara strax, þegar ég
var lítil stelpa að skoða listaverka
bækur, af þessum alvöru meisturum
frá Ítalíu. Michelangelo, Leonardo
og hvernig þeir nota litina. Þessir
rauðu litir. Það eru svona ákveðnir
litir sem eru sýnilegir í þessum mál
verkum þarna úti.“
Hver vegur frá Napólí …
Þegar Regína kom heim til Íslands
eftir Ítalíuárin sjö var hún í raun
þegar á leiðinni aftur til Napólí.
„Þegar ég kom heim fór ég fyrst á
listasvið FB þar sem ég ætlaði að
henda í möppu og fara aftur til Ítal
íu,“ segir Regína um námsáformin,
sem áttu eftir að taka nokkra útúr
dúra áður en hún endaði þar sem
hún ætlaði sér í Accademia di belle
arti í Napólí.
„Ég fór af listasviði FB í áfram
haldandi nám við Myndlista og
handíðaskóla Íslands, en þessi
mikla tenging mín við Ítalíu leiddi
mig að lokum aftur til Napólí að
mála í Akademíunni þar.
Ég ætlaði alltaf að fara þarna en
lífið er bara einhvern veginn þann
ig að ég fór, en ekki á mínum tíma,“
segir Regína sem horfir á lífið sem
einhvers konar tímalínu sem liggi
alla veganna.
Tímalínur lífsins
„Við sjáum eitthvað á línunni okkar
eins og kannski að ég ætlaði í skóla
þarna. Það var eitthvað sem ég sá á
minni tímalínu en sá ekki alveg hve
nær. Þú veist, stundum ætlum við
að fara eitthvað sem er langt fram
í tímann og klessum á alls konar á
leiðinni,“ heldur Regína áfram og
bendir á að hún fáist meðal annars
við tímalínur í list sinni og að eitt
verkanna á sýningunni heitir meira
að segja Tímalína.“
Regína segir aðspurð að verkin á
sýningunni séu hálf tímalaus. „Ég
setti engan tíma á hana. Talandi
um að vera í einhverri tímalínu,“
segir hún og hlær. „Ég til dæmis er
að taka verk sem ég byrjaði á ein
hvern tímann og klára ekki fyrr en
kannski bara í sumar.
Þú ert kannski með plan, eins og
þegar ég var lítil stelpa og ætlaði
bara að mála, en svo bara kemur
lífið með önnur plön. Þannig að
myndirnar eru sumar alveg frá 2004
og bara til dagsins í dag.“
Sýning Regínu Magdalenu verður
opnuð á Hlöðulofti Korpúlfsstaða
klukkan 14 í dag og aðgangur er
ókeypis. n
Málað eftir
skrykkjóttum
tímalínum
„Ég er með alls konar fólk og bara verur,“ segir Regína um málverkin sem hún talar um sem glugga að lífssýn hennar.
„Það eru til margir heimar og þetta eru svolítið bara gluggar hingað og þangað.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Áhrifa klassíska,
ítalska mál-
verksins gætir í
litum, áferð og
formum verka
Regínu sem þó
endurspegla
einnig stundum
íslenska dulúð
og hulduheima.
Regína Magdalena er með sterkar tengingar við Ítalíu eins og mörg verkanna
á sýningu hennar á Korpúlfsstöðum bera með sér.
stod2.is
Tryggðu þér áskrift
Í KVÖLD
52 Lífið 11. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 11. september 2021 LAUGARDAGUR