Fréttablaðið - 11.09.2021, Blaðsíða 106
Anna Þóra í Sjáðu bjargaði
geðheilsunni fimmtug, þegar
hún virkjaði meðfædda
munnræpu. Þar sem hún
trúir á reglulegar breytingar
finnur hún vaðlinum nýjan
farveg á mánudaginn þegar
hún fagnar 59 ára afmælinu,
með fyrsta þætti hlaðvarpsins
Sunshine and lollipops.
toti@frettabladid.is
„Sjö er heilög tala og yfirleitt geri ég
breytingar á afmælisdaginn minn
og ég verð 59 ára á mánudaginn og
þá fer vonandi fyrsti podcast-þátt-
urinn minn í loftið,“ segir Anna Þóra
Björnsdóttir í Sjáðu, um nýtt hlað-
varp sem hún kennir við sólskin og
sleikjóa, Sunhsine and lollipops.
„Mér skilst að það séu ekki marg-
ar 59 ára konur á Íslandi með pod-
cast. Útvarp 101 heldur utan um
þetta og ég hugsa að ég verði annan
hvern mánudag til að byrja með og
ef vel gengur jafnvel bara vikulega.“
Þannig er alls ekki útilokað að Anna
Þóra eigi síðar eftir að verða kennd
við hlaðvarpið sitt frekar en gler-
augnaverslunina.
Munnræpan virkjuð
„Ég hef verið með munnræpu frá
því ég fæddist þannig að það vefst
ekki fyrir mér að tala,“ segir Anna
Þóra, sem fann einmitt sáluhjálp í
kjaftavaðlinum eftir „smá andleg
veikindi“ fyrir níu árum.
„Þegar ég varð fimmtug greindist
ég með mikinn kvíða og áfallastreit-
uröskun og var þá sagt að ég yrði
að fá mér hobbí og þá tengist það
náttúrlega munnræpunni minni,
þannig að þá fór ég í uppistand og
hef verið í því í sjö ár og á sjö ára
fresti á maður að gera breytingar.“
Anna Þóra segist renna mátulega
blint í hlaðvarpssjóinn, en hefur
ekki miklar áhyggjur. „Ég á eftir að
prófa þetta en ég hef náttúrlega oft
verið viðmælandi í útvarpsþáttum
og mér finnst agalega gaman að hafa
orðið.
Fólk hefur ekkert farið varhluta
af því og þegar ég er á staðnum gríp
ég oft fram í, leiðrétti sögur og kem
mínum sögum að. Mér finnst þetta
náttúrlega bara hinn eðlilegasti
hlutur.“
Parket og rakaðir pungar
Anna Þóra bendir einnig á að hún
búi að víðtækri og fjölbreyttri lífs-
reynslu. „Svo hef ég unnið við ýmis-
legt í lífinu. Til dæmis að selja popp í
Háskólabíói og skeina og raka punga
á Landspítalanum. Síðan vann ég í
parketverksmiðju í Svíþjóð, á skrif-
stofu á vistheimili fyrir fyllibyttur
og svo fór ég á barinn og kynntist
sjóntækjafræðingi, skólabróður
mínum, og hef síðan þá bara verið
föst í gleraugnaverslun í tæp 30 ár.“
Þótt Anna Þóra sé kona ekki
einhöm þarfnast titill þáttarins,
Sun shine and lollipops, eiginlega
frekari skýringa, sem ekki stendur á.
„Sunshine and lollipops segir svo-
lítið til um hvernig þátturinn verð-
ur. Hann verður um allt og ekkert og
aldrei um eitthvað eitt sérstakt. Þú
getur ekki gengið út frá því að það
sé talað bara alltaf um femínisma,
eða alltaf um megrunarkúra eða
eitthvað svoleiðis. Þetta verður
bara það sem mig langar að tala um
hverju sinni.“
Leiðinlegur Dani
Hugmyndafræðilegar rætur þátt-
arins má síðan rekja enn lengra og
dýpra. Nánar til tekið til Svíþjóðar.
„Sunshine and lollipops kemur frá
því að ég vann í parketverksmiðj-
unni í Svíþjóð og bjó með óhemju
leiðinlegum, dönskum manni.
Honum fannst voða gaman að tala
niður til mín og gera lítið úr mér
með því að segja í niðrandi tón að
ég héldi að lífið væri bara sunshine
and lollipops.
Það var verið að reyna að brjóta
mig niður með því að segja mér að
ég væri svo heimsk að ég héldi að
lífið væri sólskin og sleikjóar. En ég
er löngu búin að snúa þessu við, yfir
í jákvæða minningu og nota þetta
mjög oft. Að lífið sé æðislegt. Það sé
bara eins og sunshine and lollipops,
bara ekki í þessum danska skilningi.
Þessi maður er látinn og vonandi er
bara hlaðvarp á himnum þannig að
hann heyri hvað ég er orðin sterk og
dugleg.“ ■
Himneskt sleikjóhlaðvarp
með sænskar parkettrætur
Anna Þóra hefur staðið vaktina í gleraugnaversluninni Sjáðu í áratugi og er eðlilega kennd við búðina. Sólskin og
sleikjó gætu þó breytt nafnbótinni ef nýja hlaðvarpið gengur vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
„Fyrsti viðmælandinn minn er bara uppáhalds manneskjan mín,“ segir Anna
Þóra sem tók Sigríði Thorlacius fagnandi í stúdíóinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Þessi maður er látinn
og vonandi er bara
hlaðvarp á himnum
þannig að hann heyri
hvað ég er orðin sterk
og dugleg.
54 Lífið 11. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Hafnarstræti 1–3 > fjallkona.isfjallkonan.rvk fjallkonan
FJALLKONAN FAGNAR ÞÉR!
Nánar á fjallkona.is
BRJÁLÆÐISLEGA GÓÐUR
BRUNCH
LAUGARDAGA & SUNNUDAGA
11.30-14.30
NÝR OG SPENNANDI SEÐILL!