Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.12.1964, Blaðsíða 26
•^<<><><<<><><><><><><><><><<><><><><><><^^ t<<><<<><<<><<><><><><<><><<«XXX;
ð Wfy
ö 5 ödí
(plastmálning)
Málið híbýli yðar með VITRETEX.
(★} Sterk
(★} Áferðarfalleg
{★} Auðveld í notkun
(*} Ódýr
Fæst víða um land og í flestum málningarvöruverzlunum í Revkjavík.
Framleiðandi: Slippfélagið í Reykjavík. — Sími 10123.
staklega og ennfremur ágreiningi um
vinnutíma, yfirvinnu og yfirvinnukaup
einstakra starfsmanna. Þá segir í 25. gr.,
að Félagsdómur dæmi í málum, sem rísi
milli samningsaðila út af brotum á lögun-
um og ágreiningi um skilning á kjara-
samningi og gildi hans. I 21. gr. segir, að
dómur Kjaradóms sé fullnaðarúrskurður
í kjaradeilu og dómur Kjaradóms bindi
aðila á sama hátt og kjarasamningur.
Svo sem að framan hefur verið rakið,
eru kröfur sóknaraðila í máli þessu í fyrsta
lagi þær, að viðurkenndur verði réttur
barnakennara til yfirvinnukaups fyrir
vinnu utan hinna tilskyldu kennslustunda,
sem þeim beri að vinna skv. dómi Kjara-
dóms frá 3. júlí 1963. Telja verður, að
þetta atriði heyri undir kjarasamninga,
skv. ákvæðum 5. gr. laga nr. 55/1962, enda
hefur þegar verið um það dæmt með dómi
Kjaradóms frá 3. júlí 1963, II. kafli 7. gr.
Þessi dómur Kjaradóms gildir nú og bind-
ur sem kjarasamningur og dæmir Kjara-
dómur því ekki þetta atriði að nýju, sbr.
og ákvæði 25. gr. laganna og ber því að
vísa því frá dómi.
I öðru lagi er í máli þessu krafizt af
sóknaraðila, að ákveðið verði, hve margar
stundir skuli greiðast fyrir þá vinnu
barnakennara, er þeir telja að falli utan
hins ákveðna kennslustundafjölda þeirra.
Svo sem þegar hefur verið rakið, ber
það ekki undir Kjaradóm, skv. ákvæðum
24. gr. laga nr. 55/1962 að kveða á um
þetta atriði. Ber því einnig að vísa þessari
kröfu frá dómi.
Með vísun til alls þessa þykir verða að
vísa öllum kröfum sóknaraðila frá dómi.“
26 ÁSGARÐUR