Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.12.1964, Blaðsíða 5
XIII. ÁRG.
DES. 1964
ASGAROUR
ÚTGEFANDI: Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. RITNEFND: Guðjón B. Baldvinsson, Haraldur Steinþórsson
(ábm.) og Júlíus Björnsson. AFGREIÐSLA: Bræðraborgarstíg 9. Símar 13009 og 22877. Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Treystum samstöðuna
Löguvi samkvæmt á stjórn B.S.R.B. að taka ákvörðun um, hvort núgild-
andi kjarasamningum ríkisstarfsmanna verður sagt wpf eða ekki. Um þá ákvörðun
á síðan að fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla meðal allra ríkisstarfsmanna síðari
hluta febrúarmánaðar n.k.
Á sama hátt verða teknar ákvarðanir i félögum bæjastarfsmanna, hverju
fyrir sig, um U'p'psögn kjarasamninga þeirra.
Síðasta þing B.S.R.B., sem haldið var í septembermánuði s.l., ályktaði ein-
róma, að rétt væri að segja upp samningum. Var því jafnframt beint til banda-
lagsfélaga og stjórnar að hefja þegar undirbúning að kröfugerð í væntanlegum
samningum.
Ég held, að allir opinberir starfsmenn séu sammála um að segja beri nú-
gildandi samningum upp.
1 síðustu samningum og dómi Kjaradóms frá 3. júlí 1963 var stigið veru-
legt skref til þess að rétta hlut opinberra starfsmanna í kjaramálunum. Þó var
langt frá því að fullar leiðréttingar fengjust fram.
Eftir synjun Kjaradóms um 15% hækkun til opinberra starfsmanna og þá
þróun í verðlagsmálum, sem orðið hefur undanfarið, er svo komið, að velflestir
opinberir starfsmenn eru engu betur settir en þeir voru fyrir 3. júlí 1963 og
margir eiga við verri kjör að búa en þá.
Þess verður að vænta, að ríkisvaldið sjái nauðsyn þess, að óhjáhvæmilegar
leiðréttmgar verði gerðar á launum opinberra starfsmanna.
Stjórn B.S.R.B. og Kjararáð munu áreiðanlega vera reiðubúin að leggja sig
fram til þess að reyna að leysa þessi mál með fullu samkomulagi við ríkisstjórn-
ina, ef vilji er fyrir hendi af hennar hálfu.
Við skulum nota næstu vikur vel til þess að undirbúa kröfur samtakanna
og reyna að ná sem víðtækastri samstöðu um þær.
Síðan mun reyna á hve langt verður unnt að komast eftir samningaleiðinni,
en ég er þess fullviss, að árangurinn fer að verulegu leyti eftir því, hve vel okkur
tekst að treysta samstöðuna.
K. Th.