Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.12.1964, Blaðsíða 15

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.12.1964, Blaðsíða 15
Á báðum þessum fundum mættu fulltrúar frá banda- lagsstjórn. 1. maí. B.S.R.B. tók ekki þátt í hátíðahöldum 1. maí, en stjórn bandalagsins sendi blöðum og útvarpi ávarp í tilefni dagsins bæði árin 1963 og 1964. Einnig voru bæði árin samþykkt mótmæli vegna þess, að meirihluti útvarpsráðs ákvað að víkja frá þeirri hefð, að formaður B.S.R.B. og forseti A.S.Í. flyttu ávörp í útvarpið. Mótmælt lögbanni við launabreytingum. Bandalagsstjórn ræddi á fundi 3. nóv. 1963 frumvarp, sem ríkisstjórnin hafði þá lagt fyrir Alþingi um bann gegn launa- og verðhækkunum o. fl. Eftirfarandi til- laga var samþykkt með öllum atkvæðum: ,,í tilefni af framkomnu frumvarpi ríkisstjórnarinnar um launamál o. fl. ítrekar stjórn B.S.R.B. yfirlýsta stefnu bandalagsins um, að jafnan beri að hafa samráð við launþegasamtökin um fyrirhugaðar ráðstafanir í launa- og efnahagsmálum. Átelur hún, að það skuli ekki hafa verið gert undanfarna mánuði og mótmælir eindregið banni því, sem í áðurnefndu frumvarpi er lagt við launabreytingum og er óviðunandi skerðing á viðurkenndum réttindum launþegasamtakanna.“ Skattgreiðslur. Samkvæmt breytingum á lögum B.S.R.B. skal skatt- gjald miðast við föst laun félagsmanna, og ákvað síð- asta bandalagsþing að það skyldi vera 0.3% af föstu kaupi. Flest bandalagsfélögin (18 félög) gáfu bandalaginu umboð til að innheimta skattgjald þetta hjá launa- greiðendum í samræmi við félagsmannatal, sem þau höfðu afhent. Var ákveðið að innheimta skattgjöldin í tvennu lagi fyrir árið 1963, m. a. vegna væntanlegra breytinga á launum á miðju árinu. Fyrri innheimtan fór víðast hvar fram 1. marz, en fyrir síðari hlutann var innheimt 1. nóvember. Launagreiðendur brugðu yfirleitt fljótt og vel við, en nokkur vanhöld munu þó hafa orðið og þá m. a. vegna ónógra upplýsinga frá félögunum. Þau 10 félög, sem sjálf sáu um innheimtu skatt- gjaldsins skiluðu honum yfirleitt í tvennu lagi. Þar sem þessi innheimta var ýmsum annmörkum háð og var auk þess tímafrek, þá samþykkti banda- lagsstjórn eftirfarandi tillögu á fundi 30. des. 1963 varðandi skattgreiðslur fyrir árið 1964. „Leitað verði samþykkis þeirra bandalagsfélaga, sem falið hafa bandalaginu að taka skattinn beint af laun- um félgsmanna sinna, til að taka skattinn fyrir allt árið í einu, 3.6% af föstum launum félagsmanna, sem greidd eru 1. maí. Síðan annist félögin sjálf innheimtu á þeim skatti, sem ekki fæst með þessu móti og af- hendi bandalaginu.** Innheimtan hefur gengið mikið greiðlegar fyrir árið 1964 og er þegar greiddur meginhluti skattgjaldanna hjá þeim félögum, sem B.S.R.B. annast innheimtu fyrir. Endurgreiðsla á skattgjaldi. 46. gr. laga B.S.R.B. er svohljóðandi: „Bandalagsfélag, sem hefir ekki óskað samnings- réttar skv. 28. gr. laga nr. 55/1962 á rétt til endur- greiðslu á hluta af skattgjaldi sínu vegna útlagðs kostn- aðar við launa- og kjarasamninga, sem það sjálft ann- ast.“ Öll bandalagsfélög hafa óskað eftir að koma undir samningsréttarlögin nema Starfsmannafélag Reykja- víkurborgar og Lögreglufélag Reykjavíkur. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar framvísaði síð- an reikningum vegna kostnaðar við samningsgerð þess að upphæð kr. 116.217,65. Þar sem engin ákvæði eru um það, eftir hvaða reglum á að reikna kostnað þenn- an, þá samþykkti stjórn B.S.R.B. eftirfarandi tillögu á fundi sínum 5. marz s.l.: Stjórn B.S.R.B. hefur borizt bréf Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, dags. 5. des. 1963, ásamt reikningi yfir kostnað við samninga félagsins á s.l. ári. Bandalagsstjómin samþykkir að vísa reikningi þess- um til næsta bandalagsþings til fullnaðarafgreiðslu en mun þó fallast á annað hvort að félaginu verði greiddur nú þegar helmingur reikn- ingsfjárhæðarinnar, en eftirstöðvamar bíði ákvörð- unar bandalagsþings eða að greiða félaginu til bráðabirgða kr. 116.217,65 samkv. framlögðum fylgiskjölum, gegn skriflegri yfirlýs- ingu stjórnar félagsins, er feli í sér loforð um end- urgreiðslu þess hluta fjárhæðarinnar, sem banda- lagsþing kann að synja um samþykki fyrir.“ Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar kaus síðari kostinn, og hefur upphæð þessi verið greidd með fyrr- greindum fyrirvara. Þá hefur Lögreglufélag Reykjavíkur á sama hátt nýlega lagt fram reikning vegna kostnaðar við samn- inga að upphæð kr. 16.400,00 og samþykkti banda- lagsstjórn að vísa honum til afgreiðslu bandalagsþings. Norrænt samstarf bæjarstarfsmanna. Samstarf opinberra starfsmanna á Norðurlöndum hefur til þessa eingöngu náð til bæjarstarfsmanna. Að vísu bjóða ríkisstarfsmannasamböndin gestum frá hin- um löndunum að sitja þing sín, en um sérstök samtök er ekki að ræða. Fyrir um 30 árum ákváðu danskir og sænskir bæjar- starfsmenn að taka upp nánara samstarf og stofnuðu Nordisk Kommunaltjánstemannasekretariat og skömmu síðar urðu Norðmenn og Finnar aðilar að þeim sam- tökum. B.S.R.B. var boðin þátttaka árið 1950 og gerðist það þá aðili fyrir hönd bæjarstarfsmanna innan vébanda sinna, og átti fulltrúa á fundi, sem haldinn var í Osló það ár. Síðan hafa fulltrúar héðan setið alla fundi samtakanna, sem haldnir eru annaðhvort ár, á víxl í þátttökulöndunum og einu sinni hér 1 Reykjavík árið 1956, og hefur fundur verið boðaður aftur hér heima árið 1966. Því miður hafa engir starfsmenn frá félögum utan Reykjavíkur tekið þátt í þessum fundum, nema 1956, en Starfsmannafélag Reykjavíkur hefur sent einn fulltrúa fyrstu árin en síðan tvo eða fleiri, en 5 menn frá hverju þátttökulandanna eiga rétt á að sækja fundinn auk aðalritarans og aðstoðarmanna hans. ÁSGARÐUR 15

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.