Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.12.1964, Blaðsíða 31

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.12.1964, Blaðsíða 31
Felur þingið bandalagsstjórn að leita eftir nauð- synlegu samstarfi í þessu skyni og stuðningi stjómvalda og löggjafarvalds við stofnun og starf- rækslu slíkrar skrifstofu. V. Starfsaldur til eftirlauna. 23. þing B.S.R.B. ályktar, að stytta beri starfs- aldur til eftirlauna hjá þeim starfsmönnum, sem af öryggisástæðum verður að telja óæskilegt að inni af hendi störf til 65 eða 70 ára aldurs. VI. Um starfsmannamál. 23. þing B.S.R.B. skorar á ríkisstjórnina að láta endurskipuleggja rekstur starfsmannamála rík- isins og stefna að því, að ráðnir verði sérmennt- aðir starfsmenn, sem hafi þau með höndum sem aðalstarf. Með þessu móti verði m. a. leitazt við að tryggja öllum ríkisstarfsmönnum jafnrétti í slíkum málum, en tilviljun ráði ekki hvernig lög, reglugerðir og önnur fyrirmæli eru túlkuð af forráðamönnum hverrar stofnunar. Ályktanir um lífeyrissjóði opinberra starfsmanna. I. 23. þing B.S.R.B. ályktar að fela stjórn banda- lagsins að vera vel á verði um hugsanlegar breyt- ingar á lögum um lífeyrissjóði og þá sérstak- lega varðandi eftirlaun og að lánsfé sjóðanna verði ekki veitt út í hið almenna lánakerfi sjóðs- félögum til óhagræðis. II. 23. þing B.S.R.B. felur stjórn bandalagsins að beita sér fyrir því, að tryggður sé aðildarréttur þeirra lífeyrissjóðsfélaga, er taka upp störf hjá bandalaginu eða félögum þess. Útbreiðslu- og fræðslumál. 23. þing B.S.R.B. telur að tryggja beri reglulega útgáfu á málgagni bandalagsins ársfjórðungslega. Telur þingið að kerfisbundnir fræðsluþættir eigi að skipa fastan og verulegan sess í ritinu. Heimilar þingið bandalagsstjórn að ráða sér- stakan ritstjóra til að annast útgáfuna. Ályktun um skattamál. 23. þing B.S.R.B. telur, að löggjöf um skatt- heimtu, og þá ekki síður framkvæmd þeirrar lög- gjafar, sé með þeim hætti, að launamenn beri þar óeðlilega þungan hluta. Hefur þessa gætt sérstaklega hjá opinberum starfsmönnum við álagningu á þessu ári. Væntir þingið þess, að viðræður þær, sem nú standa yfir um þessi mál, leiði til lækkunar á álögðum gjöldum þessa árs. Jafnframt skorar þingið á ríkisstjóm og Al- þingi að breyta gildandi skattalögum og fram- kvæmd skattheimtu á þann veg, er tryggi fullt réttlæti í þessum málum. Vill þingið í því sambandi benda á eftirfarandi atriði: 1) Tekjuskattur og útsvar verði sameinað í einn skatt, er verði innheimtur um leið og tekna er aflað. 2) Persónufrádráttur verði stórhækkaður og hækki jafnan í samræmi við framfærslu- kostnað. 3) Neyzluskattar verði gerðir sem einfaldastir í framkvæmd, til þess að unnt sé að koma við öruggu eftirliti með innheimtu þeirra og skil- um. 4) Eftirlit með skattaframtölum verði hert og refsing við skattsvikum þyngd. Þá skorar þingið á önnur launþegasamtök landsins að taka upp samstillta baráttu í þessum málum. Samþykkt um fulltrúakjör á þing B.S.R.B. 23. þing B.S.R.B. samþykkir að miða beri fram- vegis fulltrúatölu til bandalagsþings við síðustu misserisskýrslu viðkomandi félags, enda hafi verið staðið í skilum um skatt til B.S.R.B. Samstarf við erlend stéttarsamtök opinberra starfsmanna. 23. þing B.S.R.B. lýsir ánægju yfir þeim sam- skiptum, sem hafa átt sér stað við bræðrafélögin á Norðurlöndum, og leggur áherzlu á, að banda- lagsstjórn vinni að því að efla norrænt samstarf opinberra starfsmanna. Þingið felur bandalagsstjórn að leita sér nán- ari upplýsinga um alþjóðasamtök opinberra starfsmanna og leggja fyrir næsta bandalagsþing. Ýmsar tillögur fjárhagsnefndar. 1. Þingið samþykkti að leggja í húsbyggingasjóð bandalagsins kr. 600.000,00 — sex hundruð þús- und — af hagnaði ársins 1963 og sömu upphæð á árinu 1964. 2. Þingið ákvað að skattgreiðslur til bandalagsins ÁSGARÐUR 31

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.