Morgunblaðið - 03.04.2021, Page 2

Morgunblaðið - 03.04.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN LANDSHÚSLandshús - Sími 553 1550 - landshus.is KLETTARHEILSÁRSHÚS Klettareru sterkbyggðhús – sérhönnuðaf Efluverkfræðistofu. Húsineruhefðbundin timburgrindarhús semeru Íslandi aðgóðukunn. Húsinafhendastósamsett, aðhluta í forsmíðuðumeiningumogaðhluta semforsniðiðefni.Hentug lausnviðþröngaraðstæður. Uppsetninghúsannaerafarfljótleg. Klettar erumeðrúmgóðusvefnlofti (hæð2,1m) semeykurnotagildi hússinsumtalsvert. Klettar 65 –Grunnverð kr. 8.373.000,- Klettar 80 –Grunnverð kr. 10.807.000,- Ítarlegar upplýsingar og afhendingarlýsingumá finna á vefsíðu okkar. Húsið ámyndinni er af gerðinni Klettar 80 sem reist var 2019 á Vesturlandi. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Ómar R. Valdimarsson lögmaður hef- ur sent Héraðsdómi Reykjavíkur kröfu um að skjólstæðingur hans skuli látinn laus úr sóttvarnahúsi. Um er að ræða íslenskan ríkisborgara sem kom til landsins frá Frankfurt í fyrradag og hafði fengið fyrri bólu- setningu við kórónuveirunni. Allir sem eru skikkaðir til fimm daga dvalar í sóttvarnahúsi sam- kvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra eiga rétt á að bera mál sitt undir dóm- stóla, samkvæmt sóttvarnalögum. Ómar sagði í samtali við mbl.is í gær heldur hæpið að reglugerð ráð- herrans ætti sér lagastoð: „Ég á erfitt með að sjá að það sé lagaheimild fyrir setningu [reglu- gerðarinnar]. Að setja svona mikið inngrip í líf fólks í reglugerð finnst mér heldur hæpið,“ sagði hann. „Ef dómari kemst að því í þessu máli að þetta sé ólögmæt frelsissvipt- ing þá er þessi reglugerð bara úr sög- unni.“ Velferðarnefnd Alþingis kemur saman eftir helgi til þess að ræða nýj- ar ráðstafanir á landamærum, sem fela í sér skyldudvöl á sóttkvíar- hótelum fyrir ferðalanga frá háá- hættusvæðum. „Mitt mat er að þær heimildir sem eru í sóttvarnalögum fyrir sóttvarnahúsunum dugi sem lagagrundvöllur undir reglugerðina,“ segir Ólafur Þór Gunnarsson, þing- maður VG og framsögumaður nefnd- arinnar í samtali við blaðið. Í 13. tl. 1.gr. sóttvarnalaga eru sótt- varnahús skilgreind og segir þar að sóttvarnahús séu fyrir einstaklinga sem ekki eiga samastað á Íslandi. Fer reglugerðin ekki út fyrir ramma sem þarna er settur í lögum? „Þarna segir að viðkomandi getur dvalið í sóttvarnahúsi. Skilgreiningin er þarna. Síðan eru fleiri lagagreinar eins og til dæmis 10. gr. sóttvarna- laga sem ber að skoða þetta í sam- hengi við,“ segir Ólafur. Á hann við heimild ráðherra til þess að kveða á um í reglugerð að ferðamenn skuli undirgangast ráðstafanir sem koma í veg fyrir sjúkdóma, þ.m.t. einangrun, sóttkví, vöktun og sjúkdómsskimun. Efast um skýrar heimildir Helga Vala Helgadóttir, þingmað- ur Samfylkingar og formaður nefnd- arinnar, efast um lagastoð fyrir skyldudvöl á sóttkvíarhótelum: „Ég gerði athugasemd við þetta um leið og stjórnvöld lögðu þetta til. Ég tek skýrt fram að ég styð sóttvarnareglur og harðar aðgerðir á landamærunum en fyrir slíkum reglum og íþyngjandi aðgerðum verða að vera skýrar laga- heimildir og ég efast um að svo sé,“ segir Helga Vala í samtali við Morg- unblaðið. Hún telur að Alþingi þurfi að skjóta lagastoð undir þær aðgerðir sem gripið hefur verið til. „Umræða í nefndinni um sótt- varnahús hafi verið á einn veg – tryggja ætti borgurunum samastað ef á þá yrði lögð skylda til einangr- unar, en ekki að skylda þá í sótt- varnahús,“ segir Sigríður Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sem sat í velferðarnefnd þegar núgildandi sóttvarnalög voru tekin til umfjöllun- ar. „Sóttvarnahús voru ekki tekin fyr- ir sérstaklega í frumvarpi heilbrigð- isráðherra til breytinga á sóttvarna- lögum að öðru leyti en því að til þeirra var vísað í þeim tilvikum er smitaðir menn eru ekki samvinnuþýðir um eigin sóttkví,“ segir hún. Þá hafi frumvarpið kveðið á um að heimilt væri að vista þá í sóttvarnahúsi. Skorið úr um lögmæti dvalar - Héraðsdómur tekur til flýtimeðferðar mál manns sem vill losna úr sóttvarnahúsi - Ómar R. Valdi- marsson lögmaður væntir úrskurðar frá héraðsdómi í dag - Segir reglugerðina mögulega úr sögunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Veira Fosshótel er nú sóttvarnahús. Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Ferðamálastofa hefur sett upp teljara á miðri stikuðu leiðinni upp að gos- stöðvunum í Geldingadal. Teljarinn er sams konar búnaður og settur hef- ur verið upp á öðrum vinsælum ferða- mannastöðum á landinu síðustu ár og gerir fólki kleift að fylgjast með að- sókn á staðina. Á vef Ferðamálastofu er fjöldi gesta í Geldingadal uppfærður á hverjum morgni og þegar Morgun- blaðið fór í prentun höfðu rúmlega 30 þúsund manns farið að gosstöðvunum síðan teljarinn var settur upp 24. mars síðastliðinn. Halldór Arinbjarnarson, upplýs- ingafulltrúi Ferðamálastofu, segir við Morgunblaðið að teljarinn sé mjög nákvæmur og eigi að geta talið hvern og einn gest við gosstöðvarnar, þótt fólk gangi í hópum eða hlið við hlið. Hagur björgunarsveita vænkast Mikið hefur borið á því á sam- félagsmiðlum síðustu daga að fólk hvetji þá sem fara að gosstöðvunum til að leggja björgunarsveitum lið með litlum fjárframlögum. Bogi Adolfsson, formaður Þorbjarnar, björgunarsveitarinnar í Grindavík, segir við Morgunblaðið að einhver fjárframlög hafi borist en nákvæm upphæð liggur ekki fyrir, að hans sögn. Peningarnir nýtist einna helst til tækja- og eldsneytiskaupa. Yfir 30 þúsund séð gosið - Ferðamálastofa setti upp teljara á stikuðu leiðinni að gos- stöðvunum - Almenningur veitir björgunarsveitum stuðning Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Eldgos Fólk streymir að gosinu. Morgunblaðið kemur næst út þriðjudaginn 6. apríl. Frétta- þjónusta verður um páskana á mbl.is. Hægt er að koma ábendingum um fréttir á net- fangið netfrett@mbl.is. Áskrifendaþjónusta er opin í dag kl. 8-12. Lokað verður páskadag og 2. í páskum. Opn- að verður aftur á þriðjudag kl. 7. Auglýsingadeild er lokuð um páska en netfang hennar er augl@mbl.is. Hægt er að bóka dánar- tilkynningar á mbl.is. Síðustu skil minningargreina til birt- ingar þriðjudaginn 6. apríl og miðvikudaginn 7. apríl eru kl. 12 á morgun, páskadag. Fréttaþjónusta á mbl.is um páskana Frá og með fimmtudegi hafa allir flugfarþegar fengið smáskilaboð í síma við komu til landsins. Í skilaboðunum kemur fram að hægt sé að kynna sér nýjar reglur við landamæri Íslands á ákveðinni heimasíðu eða vefslóð. Upplýsing- arnar eru á íslensku, ensku og pólsku. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá almannavarnadeild rík- islögreglustjóra. Smáskilaboð upp- lýsa komufarþega Vilhelm Þorsteinsson EA-11 sigldi inn Eyjafjörð- inn í fyrsta sinn í gær, á leið sinni frá skipa- smíðastöðinni Karstensens í Skagen í Dan- mörku. Formlegur komudagur skipsins til landsins verður aftur á móti í dag, en þá hafa skipverjar allir fengið niðurstöður úr seinni Co- vid-19-sýnatöku. Í millitíðinni hefur áhöfn skips- ins verið í góðu yfirlæti á Eyjafirðinum. Vilhelm Þorsteinsson EA-11 er stórt, glæsilegt og þykir fullkomið skip til uppsjávarveiða. Það er 89 metrar að lengd og 16,6 metrar að breidd. Burðargetan er vel yfir þrjú þúsund tonn. Nýsmíði Samherja bætist í íslenska fiskiskipaflotann Ljósmynd/Þórhallur Jónsson Nýr Vilhelm Þorsteinsson til hafnar á Akureyri í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.