Morgunblaðið - 03.04.2021, Side 8

Morgunblaðið - 03.04.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 Inga María Hlíðar Thorsteinson,ljósmóðir og varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fjallaði um al- menningssamgöngur í grein hér í blaðinu í fyrradag. - - - Hún sagði flestaþeirrar skoð- unar að bæta þyrfti almennings- samgöngur og að ýmsar leiðir væru til þess, „en til stendur að ráðast í ýktustu og dýrustu útfærslu hrað- vagnakerfis, svokallaðs BRT (Bus Rapid Transit), sem flestir þekkja betur undir nafninu borgarlína. Fagaðilar í umferðar- og skipulags- málum hafa margir hverjir þagað þunnu hljóði um borgarlínu vegna hættu á að missa verkefni og störf ef þeir gagnrýna hana. Þó hafa eldri og reyndari fagaðilar, sem eru komnir á eftirlaun og ekki lengur í þeirri hættu, bent á að mun skynsamlegra væri að ráðast í svo- kallað BRT Lite-verkefni sem gæti útlagst undir nafninu léttlína.“ - - - Því miður er mikið til í þessu ogef til vill á þetta sinn þátt í því að anað er áfram með borgarlín- una, um 100 milljarða króna verk- efni, í stað þess að skoða alvarlega léttlínu sem myndi kosta 15-20 milljarða, eins og Inga María bend- ir á. - - - Til viðbótar þessari yfirgengi-legu upphafsfjárfestingu bæt- ast við tveir til þrír milljarðar króna í árlegan rekstrarkostnað borgarlínunnar. - - - Ávinningurinn af borgarlínunniumfram léttlínuna er í besta falli óverulegur. Getur verið að ástand allra mála í borginni sé svo gott að ekki megi verja þeim fjár- munum sem ætlaðir eru í þetta gæluverkefni í þarfari hluti? Inga María Hlíðar Thorsteinsson Ýktasta og dýrasta hraðvagnakerfið STAKSTEINAR Réttar aðgerðir skiluðu árangri Ráðstöfunartekjur heimila hækkuðu á árinu 2020 - þrátt fyrir Covid. Sjá nánar á xd.is Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Björn G. Arnarson fuglafræðingur hefur í nógu að snúast þessa dagana, enda stendur koma farfugla hingað til lands sem hæst. Björn er búsett- ur á Höfn í Hornafirði, þar sem hann heldur úti fuglaathugunarstöð ásamt kollega sínum, Brynjúlfi Brynjólfssyni. Björn og Brynjúlfur eru því vel staðsettir, farfuglarnir koma gjarn- an fyrst að landi á suðaustanverðu landinu frá Suður-Evrópu. Björn segir í samtali við Morg- unblaðið að hann standi nú í ströngu við að fanga einn og einn fugl í net til að merkja fuglana. Þannig er hægt að fylgjast með ferðum þeirra suður á bóginn þegar hausta tekur. „Þeir eru kannski frekar í seinna fallinu núna. Til dæmis í dag er búið að vera töluvert gæsaflug, bæði heiðargæs og grágæs. Svo hafa verið að koma lóur og þrestir. Álftirnar vorum við farnir að sjá í endaðan febrúar og nú er líka allt orðið fullt af tjaldi hérna,“ segir Björn. Farfuglar ekkert að drífa sig norður - Stríður straumur um miðjan apríl Morgunblaðið/Ómar Farfuglar Tjaldurinn er kominn til landsins, að sögn Björns G. Arnarsonar. Skipið Kvitnos kom til Íslands 1. apríl og varð um leið það fyrsta sinn- ar tegundar til að sigla með vörur til og frá landinu. Skipið er svokallað LNG-skip og gengur fyrir fljótandi jarðgasi. Samskip búa yfir tveimur skipum af þessari gerð og ber hitt skipið nafnið Kvitbjørn. Skipin urðu hluti af flota félagsins þegar það festi kaup á Nor Lines árið 2017. Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, for- stöðumaður samskipta- og markaðs- sviðs Samskipa, segir að töluverður umhverfisávinningur fylgi fljótandi jarðgasi og bendir á að við notkun þessa orkugjafa fari ekkert köfn- unarefnisoxíð út í andrúmsloftið, auk þess sem losun brennisteinsdíoxíðs sé lágmarkað og losun koltvísýrings 70% minni á hvert flutt tonn borið saman við vöruflutningabifreiðar. Hún segir skipin tvö bæði sinna áætlunarsiglingum í Noregi en Kvit- nos hafi verið fengið til Íslands í sér- verkefni. Spurð hvort fleiri slík skip séu væntanleg í flota Samskipa svar- ar Þórunn Inga: „Tíminn mun leiða það í ljós en við munum horfa til um- hverfisvænustu kostanna þegar kemur að endurnýjun.“ Þá séu Sam- skip með öfluga umhverfisstefnu, en fyrirtækið leiðir til að mynda „Seas- huttle“-verkefnið þar sem þróuð er næsta kynslóð sjálfbærra skipa- flutninga með sjálfvirk gámaskip. gso@mbl.is Fyrsta gasskipið með vörur til Íslands - Flutningaskipið Kvitnos, í eigu Samskipa, gengur fyrir fljótandi jarðgasi Jarðgas Kvitnos siglir um höfin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.