Morgunblaðið - 03.04.2021, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á síðasta fundi skipulagsfulltrúa
Reykjavíkur var lögð fram umsókn
skrifstofu framkvæmda og viðhalds
um framkvæmdaleyfi vegna upp-
setninga á listaverkinu Sjávarnál.
Það verður staðsett á Eiðsgranda til
móts við Keilugranda, vestan megin
við dælustöðina.
Höfundar listaverksins, sem valið
var úr 70 innsendum tillögum um
nýtt útilistaverk í Vesturbæ Reykja-
víkur, eru arkitektarnir Baldur
Helgi Snorrason og David Hugo
Cabo í samstarfi við Andra Snæ
Magnason rithöfund. Úrslit í sam-
keppninni voru tilkynnt í ágúst 2020.
Niðurstaða dómnefndar var sú að
verkið Sjávarmál sé einstakt verk
sem skapi spennandi umhverfi og
fjalli um aðkallandi viðfangsefni um
leið og það uppfylli öll skilyrði sam-
keppninnar um að auðga mannlíf í
Vesturbænum.
Verkinu er ætlaður staður á sjáv-
arkambinum við Eiðsgranda og
blasir við hafi. Ekkert útilistaverk er
staðsett á þessu svæði og það muni
auka notagildi og aðdráttarafl svæð-
isins fyrir íbúa og þá sem þar eiga
leið um.
Fram kemur í greinargerð að
listaverkið Sjávarmál snúi að sam-
skiptum manna við náttúruna og
þeim breytingum sem eru að verða á
henni. Í listaverkinu sé gömul hljóð-
mögnunaraðferð úr heimsstyrjöld-
inni fyrri nýtt til þess að magna upp
hljóðin í hafinu.
„Hljóðspegillinn vísar með skálina
í átt að sjóndeildarhringnum og
þátttakandinn situr eða stendur fyr-
ir framan verkið og hlustar. Á bak-
hlið verksins eru greypt öll samheiti
sem Íslendingar hafa notað yfir haf-
ið og minnir okkur á 1000 ára sam-
skipti okkar við útsæinn,“ segir í
greinargerðinni, en í henni eru talin
upp 65 heiti á hafinu.
Á koparplötu á hljóðspeglinum
segir m.a. að hann magni ölduhljóðin
og hvetji fólk til að hlusta. Ef fram
fer sem horfir muni sýrustig hafsins
breytast meira á einni mannsævi en
síðustu 50 milljónir ára.
Sjávarmálið sett upp á Eiðsgranda
- Sótt um fram-
kvæmdaleyfi fyrir
verðlaunalistaverk
Eiðsgrandi Listaverkið Sjávarmál mun standa við hafið og fjalla um samskipti manna við náttúruna og þær hröðu breytingar sem eru að verða á henni nú.
Alls voru skráðir 956 nýir fólks-
bílar hér á landi í mars sem er
11,3% samdráttur frá því í sama
mánuði í fyrra samkvæmt upplýs-
ingum frá Bílgreinasambandinu.
Í heildina hefur sala á nýjum bíl-
um dregist saman um 15,8% á
fyrstu 3 mánuðum ársins borið
saman við sama tímabil í fyrra;
2.089 nýir fólksbílar hafa selst í ár
en 2.481 í fyrra. Þar af hafa bíla-
leigur keypt 300 bíla sem er 45,6%
samdráttur milli ára.
Nýorkubílar (rafmagns, tengil-
tvinn, hybrid, metan) eru 67,4%
allra seldra nýrra fólksbíla á árinu
(rafmagn 25,7%, tengiltvinn 25,9%
og hybrid 15,8%) en þetta hlutfall
var 59,9% á sama tíma á síðasta ári.
Mest selda tegundin er Toyota
með 297 selda fólksbíla, þar á eftir
kemur KIA með 275 selda bíla og
þriðja mest selda tegundin í ár er
Tesla með 140 fólksbíla skráða.
Mest selda einstaka gerðin er Mod-
el 3 með 133 bíla selda
Nýorkubílar nærri
68% af seldum
bílum á árinu
AFP
Selst vel Rafbílar af gerðinni Tesla hafa
selst vel hér á landi það sem af er ári.
Héraðsdómur Suðurlands hefur
dæmt karlmann á fertugsaldri í 6
mánaða fangelsi, þar af 3 mánuði
skilorðsbundið, fyrir líkamsárásir.
Maðurinn sló sama mann í andlit-
ið fyrst í maí 2019 og síðan aftur í
mars 2020 og var dæmdur til að
greiða honum 400 þúsund krónur í
bætur auk málskostnaðar.
Fram kemur í dómnum að mað-
urinn hefur ítrekað gerst sekur um
líkamsárásir og fleiri brot á síðustu
tveimur áratugum.
Fangelsi fyrir ítrek-
aðar líkamsárásir