Morgunblaðið - 03.04.2021, Side 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021
Asparteigur 18-22, 250 Garði
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Nýjar fullbúnar og vandaðar 3 og 4
herbergja íbúðir í raðhúsi á einni hæð,
með sólpalli.
ATH. Asparteigur 10-16 seldist upp á einni viku
Berjateigur 33-39, sambærileg raðhús
væntanleg í sölu í apríl.
Asparteigur 18 (frátekin)
Asparteigur 20
Asparteigur 22
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Verð 34.900.00076,7 m2
Verð 41.900.00095,3 m2
SELD76,7 m2
Íbúðir sem uppfylla
skilyrði um
hlutdeildarlán
G
óð ljósmynd getur sagt
meira en mörg þúsund
orð. Greinarhöfundur var
að blaða í nýútkominni
bók Bandaríkjamannsins Johns Do-
naldssons en titill hennar er: Bobby
Fischer and his world og undirtitill:
The man, the riddle, and the colorful
characters who surrounded him.
Þetta mikla verk er 644 blaðsíður í
stóru broti og prýtt fjölda ljós-
mynda. Þar sem Ísland leikur stórt
hlutverk í lífshlaupi söguhetjunnar
verður lesningin enn áhugaverðari.
John Donaldsson, sem verið hefur
liðsstjóri bandaríska ólympíuliðsins
um áratuga skeið, fer út um víðan
völl en rauði þráðurinn í skrifum
hans er virðing fyrir viðfangsefninu.
Kemur það þeim sem þekkja höfund-
inn ekki á óvart. Persónulega finnst
mér þetta ágæta verk benda í þá átt
að afstaða Bandaríkjamanna til Fisc-
hers sé að mildast en ímynd hans
skaddaðist verulega eftir býsna stór-
karlalegar yfirlýsingar í útvarps-
viðtölum í kringum síðustu aldamót.
Á bls. 203 í bókinni blasir við mynd
sem á erindi við skáksögu okkar:
Ingi R. Jóhannsson að tefla við
Mikhael Tal á Ólympíumótinu í Ha-
vana á Kúbu 1966. Fjær sést Boris
Spasskí sem þennan dag tefldi á 1.
borði fyrir Sovétmenn gegn Friðriki
Ólafssyni.
Ingi fékk ekki góða stöðu eftir
byrjunina í skákinni við Tal og tapaði
eftir 44 leiki en íslenska sveitin
komst í A-úrslit og varð í 11. sæti,
sem lengi vel var besti árangur ís-
lensks liðs á ólympíumóti.
Ingi R. hafði ekki teflt mikið í að-
draganda skákhátíðarinnar í Ha-
vana. Hann byrjaði vel og átti sinn
þátt í því að Íslendingar náðu inn í A-
úrslit. Í undanrásunum vann hann
einn besta skákmann Mongólíu sem
síðar vann sér það til frægðar að
gera jafntefli við Bobby Fischer á
millisvæðamótinu í Palma árið 1970:
ÓL í Havana 1966; 3. umferð und-
anrása:
Tudev Ujtumen (Mongólía) – Ingi
R. Jóhannsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 e6 5. Rc3 Dc7 6. g3 a6 7. Bg2
Rf6 8. 0-0 Be7 9. Be3
Uppstilling léttu mannanna í
þessu afbrigði sikileyjarvarnar
skiptir öllu máli. Sennilega er beitt-
ara að leika 9. He1 eða 9. b3.
9. … 0-0 10. De2 d6 11. Had1 Bd7
12. h3 Hac8 13. a3 b5 14. f4 Rxd4 15.
Hxd4 Bc6 16. Hd2 Db7 17. Bd4 Rd7
18. Kh2
Eftir varfærnislega byrjun missti
hvítur af eina tækifærinu sem hann
fékk í skákinni. Hér var18. Rd5 best
sem tryggir a.m.k. jafnvægi því að
18. … Bd8 má svara með 19. Rb4.
18. … e5 19. fxe5 dxe5 20. Rd5
Of seinn! Nú kom þessi leikur en
Ingi kunni að svara fyrir sig.
20. … Bxd5 21. exd5 Bd6 22. Be3
f5!
Hann hefur náð að skorða peð
hvíts á drottningarvæng en jafn-
framt byggt upp sterka peðastöðu á
kóngsvæng.
23. Kh1 Hce8 24. Dh5 g6 25. Dh4
Dc7 26. Bh6 Hf7 27. He2 e4 28. g4
Dc4!
Snarplega leikið. Drottningin ryð-
ur braut svörtu peðanna.
29. Hee1 f4 30. Df2 f3 31. Kg1
Dxd5 32. Bh1
32. …g5! 33. b4 Bc7 34. Hd1 De5
– og hvítur gafst upp.
Lausn á skákdæmi
Tveir riddarar eiga ekki að geta
knúið fram mát nema peði eða peð-
um andstæðingsins sé til að dreifa.
Þetta skýrist vel í dæminu sem birt-
ist í síðasta pistli.
Hvítur leikur og mátar.
Lausnin:
1. Rf5!
a) 1. …Kf1 2. Re3+ Ke1 3. Kc2 f2
3. Kc1 f1 (D, H, B, R) 4. Rc2 mát.
b) 1. …f2 2. Re3 f1 (D, H, B, R) 3.
Rc2 mát.
c) 1. …e3 2. Rxe3 f2 3. Rf4 f1 (D,
H, B, R) 4. Rd3 mát.
Eitt augnablik
í skáksögunni
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Elskandi Guð! Takk
fyrir sigur lífsins.
Takk fyrir að vekja
son þinn Jesú Krist
upp frá dauðum og
gera hann að frelsara
okkar og eilífum líf-
gjafa. Takk fyrir að
deila sigrinum með
okkur og velja okkur
í hið vonarríka sig-
urlið sem ekkert fær sigrað. Ekki
einu sinni sjálfur dauðinn.
Takk fyrir að opinbera þetta
okkur smælingjunum en ekki endi-
lega fyrst og fremst einhverjum
hyggindamönnum sem telja sig al-
veg vera með allt á þurru og hafa
svörin við öllum gátum lífsins.
Minntu okkur á hver við erum
og að við erum þín. Hjálpaðu okk-
ur að ganga fram í auðmýkt og
einlægni með þakklæti og friðgef-
andi hugarfari. Hjálpaðu okkur að
halda í vonina og stefna ótrauð
áfram þangað sem fyrirheitin er
að finna og raunverulega huggun
að sækja. Gef að þín vera, líf, ljós
og fyrirheit verði okkur ljóslifandi
svo við getum haldið göngunni
áfram og komumst upp á veginn
aftur þegar við kunnum að ráfa út
af.
Þú ert hið sanna eilífa lífsins
skjól og ert okkur nálægur í mót-
vindi ævinnar, í hvers kyns von-
brigðum og óáran sem á okkur
kann að sækja. Og veitir okkur þá
björtu framtíðarsýn sem segir að
okkur sé borgið þrátt fyrir allt. Þá
sýn á núið og framtíðina sem við
öll þurfum á að halda.
Ævigangan getur oft og tíðum
verið þyrnum stráður
táradalur en þegar
við vitum og skynjum
að þú ert með okkur
alltaf og yfirgefur
okkur aldrei verður
allt eitthvað svo fal-
legt og spennandi
þannig að við tökum
að brosa í þakklæti í
gegnum tárin og upp-
lifa sólina hækka á
lofti að nýju. Sólina
þína sem yljar okkur
svo fallega og vermir
þannig að okkur tekur að líða bet-
ur, jafnvel þrátt fyrir allt.
Hefur heitið okkur
eilífri samfylgd
Þú höfundur og fullkomnari lífs-
ins! Hjálpaðu okkur að lifa saman
í kærleika og friði, sátt og sam-
lyndi þar sem réttlæti mætti ríkja.
Minntu okkur á að lifa í auðmýkt
og fara vel með allar þínar góðu
lífsins gjafir. Gef að hugvit og ný-
sköpun fái blómstrað okkur öllum
til heilla og blessunar án þess að
skaða jörð, náttúru eða loftslag og
hvert annað.
Veit okkur þá náð að horfa í
augu hvert annars og vera hvert
öðru til blessunar. Hjálpaðu okkur
einnig að horfa í þín lífgefandi og
elskandi augu svo við fáum fundið
og skynjað að við erum elskuð af
þér út af lífinu.
Hjálpaðu okkur að muna ávallt
að ekkert fær okkur hrifið úr
frelsarans fangi sem við höfum
verið færð í af einskærri ást. Þú
þekkir okkur með nafni og hefur
skráð nöfn okkar í hina eilífu lífs-
ins bók. Með himnesku letri sem
ekki fæst afmáð og ekkert strok-
leður fær þurrkað út. Þú sem hef-
ur heitið okkur eilífri samfylgd í
skjóli skaparans. Lof sé þér og
dýrð.
Í þakklæti fyrir frelsi þitt og
hina eilífu lífgjöf. Í Jesú nafni.
Amen.
Með kærleikis- og friðarkveðju.
– Lifi lífið!
Takk fyrir
sigur lífsins
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
»Hjálpaðu okkur
að muna ávallt að
ekkert fær okkur hrifið
úr frelsarans fangi sem
við höfum verið færð í
af einskærri ást. Takk
fyrir þína eilífu lífgjöf.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Eiríkur Guðnason fæddist 3.
apríl 1945 í Keflavík og ólst þar
upp. Foreldrar hans voru
Guðni Magnússon málara-
meistari, f. 1904, d. 1996, og
Hansína Kristjánsdóttir hús-
móðir, f. 1911, d. 1997.
Eiríkur var viðskiptafræð-
ingur að mennt frá HÍ og hóf
störf við hagfræðideild Seðla-
bankans árið 1969. Hann var
forstöðumaður peningadeildar
1977-1984, þegar hann var ráð-
inn aðalhagfræðingur bankans.
Eiríkur varð aðstoðarbanka-
stjóri árið 1987 en var skipaður
bankastjóri vorið 1994 og
gegndi því starfi til 2009.
Auk þess gegndi Eiríkur
margs konar trúnaðarstörfum
á fjármálamarkaði og var m.a.
formaður stjórnar Verð-
bréfaþings Íslands 1986-1999
og sat um árabil í stjórn
Reiknistofu bankanna. Einnig
átti Eiríkur sæti í stjórn
Þjóðhátíðarsjóðs. Eftir Eirík
liggur fjöldi ritgerða um pen-
ingamál og fjármálakerfi.
Eiríkur var virkur í fé-
lagsstörfum, var m.a. félagi í
Rótarý Miðborg og Árnes-
ingakórnum í Reykjavík.
Ekkja Eiríks er Þorgerður
Lára Guðfinnsdóttir kennari, f.
1946, búsett í Kópavogi. Börn
þeirra eru fjögur.
Eiríkur lést 31.10. 2011.
Merkir Íslendingar
Eiríkur
Guðnason
Ljósmynd/Úr bók John Don.
Toppslagur Ingi R. að tefla við Tal. Fjær sést Boris Spasskí.