Morgunblaðið - 03.04.2021, Page 27

Morgunblaðið - 03.04.2021, Page 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 Jarðeldarnir í Geld- ingadölum eru sjónarspil. Fólk finnur til smæðar sinnar, þótt gosið sé lítið. Það er stórkostleg náttúruprýði í okkar augum. Þegar maður gengur að gosinu og virðir fyrir sér rauðglóandi kvikuna spýtast djúpt úr iðrum jarðar blasir líka við gas sem streymir burt. Hvað ætli eldgosið mengi mikið? veltir maður kannski fyrir sér. Svarið kemur eflaust mörgum á óvart. Ár hvert losar mannkynið um það bil 37 milljarða tonna af koldíoxíði (CO2) út í andrúmsloftið með því að brenna kolum, olíu og gasi. Af okkar völdum bætast ríf- lega 100 milljónir tonna af gróðurhúsalofttegundum við andrúmsloftið dag hvern. Mælingar benda til að í Geldingadölum komi upp 5- 10 þúsund tonn af CO2 á dag. Standi gosið yfir í eitt ár mun losun frá því nema frá 1,8 til 3,6 milljónum tonna. (Sumar áætlanir gefa raunar upp minna magn, 3-6 þúsund tonn, en gerum samt ráð fyrir að hærri gild- in séu réttari.) Á einu ári nemur losun Íslands, með landnotkun, næstum 15 milljónum tonna. Það gera rúmlega 40 þús- und tonn af CO2 á dag. Án landnotkunar er losunin tæplega fimm milljónir tonna. Gosið í Geldingadölum þyrfti því að standa yfir í tvö til fjögur ár til að losa jafn mikið af gróðurhúsa- lofttegundum og við sjálf gerum á aðeins einu ári. Við erum miklu stærri en eld- fjallið. Er þetta lítið gos? En hvernig lítur dæmið þá út á heimsvísu? Er gosið í Geldingadölum ekki hvort eð er svo lítið? Mælingar sýna að árleg losun gróð- urhúsaloftteg- unda frá öllum eldfjöllum heims, gjósandi og dormandi, er að meðaltali um 300 milljónir tonna (0,3 millj- arðar tonna). Mannkynið er því aðeins þrjá sólarhringa að losa jafn mikið af gróðurhúsaloftteg- undum og öll eldfjöll jarðar gera á heilu ári. Að meðaltali eru um 45 misstór eldfjöll gjósandi um plánetuna okkar á hverjum tíma. Þegar þetta er skrifað gýs til að mynda Etna á Sikiley mun stærra gosi. Samt er það bara dropi í hafið. Þegar Eyjafjallajökull gaus árið 2010 nam losunin um 150 þúsund tonnum á dag. Til að jafna mannkynið þyrftu ríflega 600 Eyja- fjallajökulsgos að standa yf- ir dag hvern allt árið. Hefð- um við áhyggjur af stöðu mála ef það væru ríflega 600 eldgos stöðugt í gangi samtímis ár eftir ár? Eldgos standa oftast stutt yfir. Bálið sem við brennum til að knýja samfélagið er risastórt og stendur stöðugt yfir – dag eftir dag, ár eftir ár, áratugum saman. En hvað um brenni- steinsdíoxíðið, SO2? Áætlað er að í Geld- ingadölum komi upp um 3.000 tonn af brennisteins- díoxíði á dag. Það er gríð- armikið magn. En brenni- steinsdíoxíð er ekki gróðurhúsalofttegund held- ur loftmengunarefni. Sem loftmengunarefni hefur það öfug gróðurhúsaáhrif. Þegar það streymir úr eldfjöllum verða efnahvörf sem breyta því í svifryk. Svifrykið end- urvarpar sólarljósi eins og spegill aftur út í geiminn. Það þekkist enda að eftir stór eldgos, þar sem gosefni komast upp í heiðhvolfið í meira en 10 km hæð, geta gosefni svífið mánuðum og árum saman og kælt jörðina í nokkra mánuði – jafnvel fáein ár. Manngert brennisteins- díoxíð er umhverfisvanda- mál. Það losnar nefnilega sem mengunarefni þegar við brennum jarðefnaeldsneyti eins og kolum og olíu, til dæmis í skipum og álverum, en líka þegar við vinnum jarðvarma. (Á Hellisheiði er hluta af brennisteinsdíox- íðinu dælt ofan í jörðina með Carbfix-aðferðinni þar sem það breytist í glópa- gull). Fyrir nokkrum áratugum lá brennisteinsmengaður kola- og olíureykur yfir borgum og bæjum víða um heim. Reykjavík þar á með- al. Mengunin leiddi til súrs regns og loftmengunar sem skerti lífsgæði fólks og stytti ævi þess. Hertar reglugerðir Víðsvegar hefur verið tek- ið á þessum umhverfisvanda með hertum reglugerðum. Því miður ekki alls staðar. Loftgæði hafa aukist þar sem ekki er lengur leyfilegt að losa brennisteinsdíoxíð óheft út í andrúmsloftið og skipt hefur verið yfir í um- hverfisvæna, endurnýj- anlega orkugjafa. Loft- og lífsgæði hafa aukist. Eldgosin minna okkur á hve tröllaukin áhrif okkar manna eru á náttúruna. Verkefni mannkynsins núna er snúa frá villu síns vegar. Draga hratt og verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda og hætta að raska nátt- úrulegri hringrás kolefnis með öllum þeim hörmulegu afleiðingum sem það hefur. Við getum það og gerum heiminn betri í leiðinni. Eftir Sævar Helga Bragason » Gosið í Geld- ingadölum þyrfti að standa yfir í tvö til fjögur ár til að losa jafn mikið af gróðurhúsaloftteg- undum og við sjálf gerum á aðeins einu ári. Sævar Helgi Bragason Höfundur er jarðfræðingur, vísindamiðlari og starfar á sviði loftgæða- og loftslags- mála hjá Umhverfisstofnun. Hvað mengar eldgosið mikið? Hið óþekkta vekur gjarnan ótta. Það get- ur verið óþægilegt að vita ekki við hverju er að búast. Innra með okkur getur skapast ákveðinn titringur, við förum jafnvel upp á afturlappirnar og setj- um okkur í stellingar með klærnar og krypp- una úti eins og köttur í viðbragðsstöðu. Sum okkar mæta hinu óþekkta og nýj- ungum sem fram koma með hvæsi og vanþóknun. En hið óþekkta er þó hliðið að framtíðinni. Það er aðeins með því að taka áhættu og stíga fyrsta skref- ið að framfarir verða í samfélaginu. Stundum er nauðsynlegt að halda niðri í sér andanum og stökkva út í djúpu laugina. Bæði í okkar per- sónulega lífi, þar sem lykillinn að því að vaxa sem mann- eskjur er að stíga út fyrir þægindaram- mann, og svo sem sam- félag – þar sem framþróunin verður á mörkum hins óþekkta og reynslu liðinna tíma. Um þessar mundir erum við að færa borg- ina inn í 21. öldina með stafrænni umbreytingu og nútímavæðingu þjónustu. Við ráð- stöfum tíu milljörðum í þetta verkefni næstu þrjú árin sem er rúmlega þreföldun frá því sem áður var. Mörg mæta þessari framþróun með efasemdum í dag en eins og áður hefur sést getur grát- kór hins liðna á augabragði viljað Lilju kveðið hafa. Oftar en ekki kostar að fjárfesta í framtíðinni og mikilvægum breytingum sem munu gagnast okkur til lengri tíma svo við sem heild getum tekið flugið. Margt er að breytast en sumt breytist aldrei. Þótt tækniframfarir geti nýst okkur vel er hinn mannlegi þáttur mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Til þess að vera reiðubúin und- ir þær breytingar sem þegar eru hafnar eru tilfinningagreind og sam- skiptahæfileikar okkar öflugustu vopn. Hér tala ég um hæfni til að bregðast við hinu óþekkta. Ef ein- hver hélt að hugvísindin og húm- anisminn væru á leið út í skiptum fyrir tæknikunnáttu þá er það mikill misskilningur. Hugvísindi og sam- félagsgreinarnar, þessi fagþekking sem eflir skilning okkar á samfélag- inu, stóra samhengi hlutanna og styður við sveigjanlega og frjóa hugsun, er stökkbretti framþróunar. Borgarlínan er dæmi um framþróun sem hefur raðað fólki í fylkingar þar sem önnur hliðin virð- ist eiga erfitt með að horfast í augu við nýja tíma. Þetta er jafnvel óháð staðreyndum máls og rökum með og á móti. Stundum er þörfin að til- heyra einfaldlega yfirsterkari stað- reyndunum. En kannski eru örar breytingar einmitt valdar að því er jaðrar við örvæntingarfulla þörf ein- staklinga til að stilla sér upp með ákveðnu liði og sanna fyrir sjálfum sér og öðrum að þeir tilheyri. Búi að föstum og öruggum stað í ófyr- irsjáanlegum hræringunum, eigi sér vin í eyðimörkinni, geti fundið logn- ið í storminum. Þetta getur reynst lýðræðinu hættulegt. Aukin pól- arísering er ekki til þess fallin að ýta undir efnislega og málefnalega umræðu sem grundvöll ákvarð- anatöku. Í umhverfi þar sem nágrannar hafa mikið til umbreyst í ókunnugt fólk, þar sem samfélög og samvistir sem fólk sótti áður í, félagslegar ein- ingar og trúfélög sem áttu sér fast- an sess innan þorpsmenningarinnar hafa breyst og jafnvel gufað upp, er ekkert óeðlilegt að finna fyrir óör- yggi og jafnvel hræðslu. Í umhverfi þar sem samhliða þessu eiga sér stað miklar breytingar með tækni- framförum og áhrifum að utan í sím- innkandi heimi er ekkert óeðlilegt að finna fyrir óöryggi og jafnvel hræðslu. Viðbragð við slíku óöryggi getur verið leit að nýjum sess til að styrkja stoðir sjálfsmyndarinnar með. Þann sess getur verið að finna innan skautaðra fylkinga stjórnmál- anna og samfélagsumræðunnar. Mér finnst brýn ástæða til að reyna að bjóða annan valkost, annan faðm sem er síður til þess fallinn að grafa undan málefnalegri umræðu og skyggja á upplýsta niðurstöðu. Þannig getum við fetað vegslóða sem skartar öllu litrófinu, flokkað og grúskað í sameiningu í stað störu- keppni hins svarta og hvíta. Í veröld framþróunar þar sem breytingar eru örar þurfum við að muna eftir mennskunni. Hvers virði er þetta annars allt saman? Sýnum hvert öðru hlýju og samkennd. Ver- um til staðar. Þannig eigum við auð- veldara með að flæða saman niður fljót framþróunar og getum jafnvel leyft okkur að njóta þess stund- arkorn. Gleðilega páska. Eftir Dóru Björt Guðjónsdóttur »Hið óþekkta er hliðið að framtíðinni. Það er með því að taka áhættu og stíga fyrsta skrefið að framfarir verða – í okkar eigin lífi og í samfélaginu. Dóra Björt Guðjónsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Pírata og formaður nýsköpunarráðs Reykjavíkur. dorabjort@reykjavik.is Fljót framþróunar og óttinn við hið óþekkta Viðreisn hefur lagt fram á Al- þingi tillögu um að fela rík- isstjórninni nú þegar að taka upp viðræður við Evrópusam- bandið um sam- starf í gjaldeyr- ismálum til þess að styrkja stöð- ugleika krónunnar og tryggja að Ísland geti gripið til jafn öflugra viðreisnaraðgerða og helstu viðskiptalöndin. Jafnframt þessu höfum við kynnt tillögu sem felur í sér að treysta þjóðinni til að ákveða hvort halda eigi áfram við- ræðum við Evrópusambandið. Það er varfærið en eðlilegt skref. Það kostar hins vegar vandaðan undirbúning og krefst lengri tíma. Ný nálgun Hér er á ferðinni ný nálgun. Við leggjum höfuðáherslu á að ná alþjóðlegu samstarfi um að styrkja krónuna. Til þess að geta notið kosta innri mark- aðar Evrópusambandsins til fulls þurfum við gjaldmiðil sem stenst samanburð við evruna eða samstarf sem nær sama markmiði. Viðreisn atvinnulífsins þolir enga bið. Upptaka evru með fullri aðild að Evrópusam- bandinu tekur tíma. En við getum á grundvelli EES- samningsins farið fram á gjaldmiðlasamstarf með sama hætti og Danir. Það verkefni viljum við nú setja í forgang. Samkeppnishæfni Íslands er undir. Þjóðviljalummur Ritstjórar Morgunblaðsins rísa upp á afturlappirnar á skírdag vegna þessarar nýju nálgunar á þeim vanda sem við hverjum manni blasir. Þegar ég rýni í rökin þá minn- ir það mig á þegar ég fletti einhverju sinni í gömlum ein- tökum af Þjóðviljanum. Hann hamaðist gegn sérhverju skrefi sem Ísland tók í átt til aukinnar alþjóðasamvinnu með nákvæmlega sama mál- flutningi. Auðvitað styrkjum við full- veldi landsins með aukinni samvinnu við Evrópuþjóð- irnar. Við ger- um það með varnarsam- starfi við þær sömu þjóðir í NATÓ. Það er rökleysa að halda því fram að efnahags- samstarf við þessar þjóðir ógni fullveldinu en varnarsamstarfið styrki það. Með aðildinni að innri markaði Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn tökum við sjálfkrafa upp kjarnann í allri löggjöf þess. Við sitjum hins vegar ekki við borðið eins og í NATÓ. En enginn hefur haldið því fram að Ísland hafi glatað fullveld- inu 1994 þegar EES-aðild var ákveðin. Viðbótarskrefið til fullrar aðildar er miklu minna. Leiðarahöfundar loka augunum Hitt atriðið sem leiðarahöf- undarnir nefna gegn tillög- unum er staðhæfing þeirra um að krónan hafi reynst traustari gjaldmiðill en evran. Hvernig rímar þetta nú við veruleikann? Evran haggaðist ekki þrátt fyrir efnahagssamdrátt í kjöl- far Covid-19. Íslenska krónan hrundi. Ísland er eina landið á Vesturlöndum þar sem efna- hagssamdráttur hefur leitt til aukinnar verðbólgu. Verð- bólguþak Seðlabankans er sprungið. Mun alvarlegri staðreynd blasir við. Krónuhagkerfið er of lítið til þess að prenta pen- inga fyrir ríkissjóð við þessar aðstæður. Fyrir vikið er rík- issjóður að taka innlend lán á hærri vöxtum en grannþjóð- irnar og erlend lán með mikilli gengisáhættu. Þetta gerir það að verkum að svigrúm ríkissjóðs er minna til björgunaraðgerða en annarra þjóða, nema beita eigi skattahækkunum eða nið- urskurði eins og Samtök at- vinnulífsins telja hættu á. Fyrir utan þetta er mesta at- vinnuleysi sögunnar stað- reynd. Fyrir öllu þessu loka leið- arahöfundar augunum. Léttúð Fjármálaráðherra hefur nú lagt fram frumvarp sem færir Seðlabankanum völd til þess að beita jafn umfangsmiklum höftum og gert var eftir hrun. Ísland er eina vestræna ríkið sem er með gjaldmiðil sem heldur ekki velli án þess að Seðlabankinn fái varanlegar heimildir af þessu tagi. Viðskiptaráð líkti þessu frumvarpi við léttúð. Rit- stjórar Morgunblaðsins hafa ekki fjallað mikið um þetta frumvarp. En það er við- urkenning Sjálfstæðisflokks- ins á því að ekki er unnt að stjórna krónunni án hafta. Hvað veldur þögn ritstjóra Morgunblaðsins um hafta- frumvarp formanns Sjálf- stæðisflokksins? Morgunblaðið hefur spáð dauða evrunnar á hverju ári í meir en áratug. Samt er hún annar sterkasti gjaldmiðill í heimi. Lítill skilningur Kjarni málsins er að ís- lenskt atvinnulíf þarf rekstr- arumhverfi sem auðveldar því að hlaupa hraðar. Það gerist ekki með hærri verðbólgu en í samkeppn- islöndunum, ekki með hærri vöxtum en í samkeppnislönd- unum, ekki með óstöðugri gjaldmiðli en í samkeppn- islöndunum og ekki með vald- framsali til Seðlabankans til þess að beita umfangsmeiri gjaldeyrishöftum en sam- keppnislöndin. Ég veit að Viðskiptaráð notaði stórt orð þegar það hakkaði niður haftafrumvarp fjármálaráðherra og sagði það bera vott um léttúð. En ég finn ekki annað betra orð til þess að lýsa skrifum ritstjór- anna. Alltént lýsa þau ekki ríkum skilningi á þeim vanda sem við blasir í ríkisfjár- málum og þeim miklu áskor- unum sem atvinnulífið stend- ur frammi fyrir. Moggaléttúð Eftir Þorgerði Katrínu Gunn- arsdóttur » Það er rökleysa að halda því fram að efnahags- samstarf við þessar þjóðir ógni fullveld- inu en varnarsam- starfið styrki það Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Höfundur er formaður Viðreisnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.