Morgunblaðið - 03.04.2021, Side 31

Morgunblaðið - 03.04.2021, Side 31
DÆGRADVÖL 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 „JA, SKO … ÞAÐ VAR ÞÁ. ÞÚ ERT EKKI LENGUR HVOLPUR.“ „ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ KLÁRA KJÚKLINGINN!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að sofa á hlutunum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞAÐ ER EKKI EINS OG ÉG SÉ Í SKÓLA … ÞAÐ ER EKKI EINS OG ÉG SÉ Í VINNU… HEFJUM HELGAR- FRÍIÐ! MIÐV. MIÐV. MIÐV. JAH, ÞETTA VAR ÓHEPPILEGT! EKKI SVO MJÖG … ENGAR LÝS EÐA FLÆR LENGUR! UMBOÐSMENN STJARNANNA KJÚLLI & RIF Dóttir Hauks og Svölu er 1) Svan- hildur Ingibjörg, f. 26.12. 1954, mat- ráður, gift Guðmundi Sigurjónssyni, f. 27.9. 1946, verkstjóra. Þau eru bú- sett á Selfossi. Börn: a) Heiðrún Hödd, f. 1972 (barnsmóðir: Líney Traustadóttir) í sambúð með Pól Eg- holm. Barn: Nína Björk, f. 2011; b) Sigurjón Vídalín, f. 1974, kvæntur Helenu Sif Zophoníasdóttur. Börn: Telma Sif (barnsmóðir: Maríanna Rúnarsdóttir), f. 1999, sambýlis- maður er Alex Orri Runólfsson, f. 1997. Þeirra barn er Tristan Sölvi, f. 2018; Henrika Sif, f. 2011, og Friðrika Sif, f. 2014; c) Karen f. 1977, gift Ívari Grétarssyni, f. 1984. Börn: Guð- mundur Bjarni, f. 2003 (barnsfaðir: Brynjólfur Bjarnason), og Rakel Ingibjörg, f. 2011; d) Haukur, f. 1981, kvæntur Sigríði Elínu Sveinsdóttur, f. 1983. Börn: Sveinn Ísak, f. 2010, Óliver Aron, f. 2015, og Hildur Svava, f. 2017; e) Guðlaug Ingibjörg, f. 1993, í sambúð með Helga Má Guðmunds- syni, f. 1991. Synir Hauks og Grím- hildar eru: 2) Bragi Leifur, f. 24.2. 1959, tölvunarfræðingur, búsettur í Reykjavík; 3) Guðlaugur Ingi, f. 12.7. 1965, forritari, kvæntur Suphaphon Tangwairam, f. 27.10. 1979, herberg- isþernu. Þau eru búsett á Selfossi. Börn: a) Eva, f. 1986 (barnsmóðir: Katrín Guðlaugsdóttir). Sambýlis- maður Evu er Pétur Óskar Pétursson, f. 1986. Börn: Óliver Már, f. 2014 (barnsfaðir: Torfi Már Jónsson), og Katrín Ósk, f. 2020. b) Nína, f. 2001 (kjörbarn af fyrra sambandi eigin- konu). c) Daníel Ingi, f. 2008. Systkini Hauks: Guðrún, f. 15.8. 1924 (samfeðra), skrifstofumaður, bú- sett í Reykjavík; Ingveldur f. 31.1. 1928, d. 5.4. 2017, bankastarfsmaður, búsett í Reykjavík; Jónas, f. 22.7. 1929, d. 29.11. 2019 atvinnurekandi, búsettur í Reykjavík; Páll, f. 28.8. 1939, atvinnurekandi í Svíþjóð; Stein- unn f. 9.5. 1942, verslunarmaður, bú- sett í Reykjavík; Guðleif, f. 26.6. 1945, verslunarmaður, lengst af búsett í Reykjavík. Foreldrar Hauks voru hjónin Guð- laugur Ingvar Pálsson f. 20.2. 1896, d. 16.12. 1993, kaupmaður á Eyrarbakka og Ingibjörg Jónasdóttir f. 22.3. 1905, d. 4.11. 1984 húsfreyja og listakona á Eyrarbakka. Haukur Guðlaugsson Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Kraga á Rangárvöllum Gunnar Eyjólfsson bóndi í Kraga Guðleif Gunnarsdóttir húsfreyja í Garðhúsum Jónas Einarsson sjómaður í Garðhúsum á Eyrarbakka Ingibjörg Jónasdóttir húsfreyja og listakona á Eyrarbakka Sigþrúður Jónsdóttir húsfreyja í Dvergasteinum Einar Einarsson bóndi í Dvergasteinum í Stokkseyrarsókn Helga Jóhannsdóttir húsfreyja í Þorgeirsbrekku á Höfðaströnd, Skag. Ingólfur Ingólfsson bóndi í Þorgeirsbrekku Jóhanna Sesselja Ingólfsdóttir húsfreyja, lengst af í Reykjavík Páll Halldórsson skósmiður, lengst af búsettur í Grimsby Ingveldur Þorgilsdóttir húsfreyja á Eyrarbakka Halldór Guðmundsson snikkari á Eyrarbakka Úr frændgarði Hauks Guðlaugssonar Guðlaugur Ingvar Pálsson kaupmaður á Eyrarbakka Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Axlarskraut, sem ýtar bera. Eru hjónin Gunna og Jón. Stoðarbútur víst má vera. Vættur dulin manna sjón. Helgi Þorláksson á þessa lausn: Djásn á öxlum dvergur er, dvergsnafn Jón og Gunna fá, dvergur ásinn uppi ber, ekki kunnum dverg að sjá. Knútur H. Ólafsson svarar: Axlarskraut sem ýtar bera dvergur er. Eru dvergar litla Gunna og litli Jón. Dvergurinn litli mænisásinn uppi ber. Einbúinn í Dvergasteini’ er hulinn sjón. Helgi R. Einarsson á þessa lausn: Axladvergar öxlum hjá. Eru dvergar Gunna og Jón. Dvergar standa stoðum á. Í steini búa dvergahjón. Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna þannig: Dvergar skreyta axlir ýta. Eru dvergar Gunna og Jón. Dverg sem styrka stoð má nýta. Í steini dvergur hulinn sjón. Þá er limra: Við Jón sterka barðist Bergur, og þó Bergur sé smár eins og dvergur, þá rotaði hann þennan rammeflda mann, og því var hann nefndur Þorbergur. Og ný gáta eftir Guðmund: Þó geisi hér veira og gjósi og glóandi hraunstraumar frjósi, ég gáturnar setja mun saman, því sjálfum finnst mér það gaman: x Prúður á syllu hann situr. Sálum hann boðskapinn flytur. Höfuðið styrkir og styður. Stefnuna sýnir hann yður. Jónas Árnason orti: Hinn meinhægi gamlingi Mundi tróðst undir á Framsóknarfundi. „þetta er nóg, þetta er nóg, þetta er nóg, þetta er nóg,“ sagði meinhægi Mundi og stundi. Og að lokum morgunvísa eftir Kristján Karlsson: Afbragðssól er undir gekk aftur fer að skína: sé ég undan borði og bekk brydda á vini mína. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á gulli verða dvergarnir ginntir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.