Morgunblaðið - 03.04.2021, Side 33

Morgunblaðið - 03.04.2021, Side 33
HANDBOLTI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Línu- og varnarmaðurinn öflugi Anna Úrsúla Guðmundsdóttir tók á dögunum fram skóna á ný og hóf að æfa og spila með Val, þar sem hún varð margsinnis Íslandsmeistari. Anna Úrsúla hætti formlega hand- boltaiðkun fyrir um ári, en hafði þó ekkert leikið með Val tímabilið á undan, 2019/2020. Ekki nóg með það að hún sé ný- byrjuð aftur í handboltanum eftir tæplega tveggja ára fjarveru heldur var hún sömuleiðis valin í æfingahóp landsliðsins sem býr sig undir um- spilsleiki gegn Slóveníu síðar í mán- uðinum. Á hún 101 landsleik að baki, þar sem hún hefur skorað 221 mark, en spilaði síðast landsleik fyrir rúm- um fimm árum. Er allt of greiðagóð við fólk Þegar blaðamaður sagðist vilja spyrja hana út í þessa endurkomu svaraði Anna Úrsúla um hæl: „End- urkoma er svolítið sterkt orð!“ En spurð um hvernig það væri að vera byrjuð aftur sagði hún beiðni Ágústs Jóhannssonar, þjálfara Vals og að- stoðarþjálfara landsliðsins, um að koma á æfingar hjá Val hafa undið upp á sig. „Þetta er bara ágætt. Þetta er samt eins og maðurinn minn [Finnur Ingi Stefánsson, leikmaður Vals] segir, ég er allt of greiðagóð við fólk. Það datt svolítið botninn úr liðinu hjá Val og Gústi, sökudólgurinn, höfðaði til mín með samviskunni að gera þetta fyrir liðið og félagið. Að dóttir mín væri nú í þessu félagi og allt þetta. Ég ætlaði nú bara að koma þarna, mæta á æfingar og að- eins að hreyfa mig í þessu Covid- drasli! Þau voru voða indæl að leyfa mér það. Svo fór þetta alltaf aðeins lengra og lengra,“ sagði Anna Úr- súla í samtali við Morgunblaðið. Þrjár á línunni óléttar Henni þykir það skondið að hafa aðeins náð að spila tvo leiki með Val í Olísdeildinni áður en æfingar og keppni voru bannaðar að nýju vegna kórónuveirufaraldursins. „Þetta er náttúrulega mjög súrrealískt en ég ætlaði bara að redda þeim aðeins. Ég veit ekki hversu margir leik- menn hafa annaðhvort meiðst eða orðið óléttar í Valsliðinu, ég held að það séu þrír línumenn, sem ég held að sé eitthvað sem enginn hefur heyrt um áður!“ Hún kveðst því ekki fyllilega viss um hvernig framhaldið verður, hvort hún klári tímabilið með Val eður ei. Það þurfi að koma í ljós. „Ég hugs- aði bara að ég ætlaði að spila þetta svolítið eftir eyranu og það hefur eiginlega alltaf verið svoleiðis. Ég er ekkert að gráta það ef eitthvað gengur ekki upp, þetta var bara fyrst og fremst hugsað sem hreyfing fyrir mig.“ Fannst bara eðlilegt að hringja í mig Anna Úrsúla sagði það að vera kölluð í æfingahóp landsliðsins sömuleiðis hafa verið afar súrreal- ískt. „En það er náttúrulega bara leiðinlegt að greyin Steinunn [Björnsdóttir] og Sunna [Jónsdóttir] hafi meitt sig og séu úr leik. Þeim fannst þá bara eðlilegt að hringja í mig til að koma inn! Þeir báðu mig um einhverja að- stoð með reynslu og allt þetta. Ég sagði nú að þeir væru ekki að fá 25 ára gamla mig, þeir væru að fá 36 ára þriggja barna móður! Það væri því ekki hægt að fá mikið út úr mér. En þeir voru til í einhvern peppara þarna og ég sagðist nú alveg geta gert það.“ Yrði endalaust gert grín að mér Veit Anna Úrsúla hvort hún sé einungis hugsuð sem hluti af æf- ingahópi eða hvort hún eigi mögu- leika á að taka þátt í leikjunum gegn Slóveníu? „Ekki spyrja mig að því, ég veit eiginlega ekki neitt, það yrði endalaust gert grín að mér ef ég segði eitthvað um það. Ég veit bara hvenær næsta æfing er og ég þarf að skipuleggja hvernig ég kemst á þá æfingu. En nei, við töluðum bara um það að ég myndi koma og æfa og kannski aðeins reyna að koma með smá karakter eða eitthvað í þeim dúr. Bara svona að hafa gaman. En þær eru ótrúlega magnaðar þessar stelpur og vonandi komast þær áfram í þessa loka- keppni, ég hef fulla trú á því,“ sagði hún. Var alveg hætt Anna Úrsúla er eins og hún nefnir hér að ofan þriggja barna móðir og hefur ávallt snúið aftur á völlinn eft- ir barnsburð, þó að í þetta skiptið sé það ögn seinna en í hin tvö skiptin. „Þegar ég átti stelpuna mína fyrir sex árum fór ég í bráðakeisara þannig að ég sneri aftur sex vikum eftir að ég átti. Svo með annan strákinn minn var það aðeins minna.“ Hún var þó endanlega hætt þegar hún tilkynnti það formlega á síðasta ári. „Þá leið mér þannig að ég væri alveg hætt. Það var alveg rætt í fjöl- skyldunni og þetta var bara komið gott. Ég var ólétt af þessu þriðja barni og fannst þetta bara fínn tíma- punktur. Þannig að þetta er einhver biluð greiðasemi sem ég held að ég sé að gera fólki.“ Ég er bara að redda honum „Þetta er mjög steikt og mér finnst þetta ofboðslega kjánalegt en svo er ég einmitt svo greiðagóð að ég segi alltaf: „Ég er bara að redda honum.“ Þannig að það er mjög mik- ið hlegið að mér í fjölskyldunni. Maður verður að fara að hætta þessu greiðasemisdrasli, fara að hugsa um sjálfan sig og fjölskyld- una,“ sagði hún og hló. Anna Úrsúla tekur þó jákvæða hluti úr því að vera komin aftur á handboltavöllinn. „Sem betur fer í þessu Covid- ástandi fær maður að fara og fá út- rás og smá félagslega tengingu. Maður kemur á æfingar og það gerir rosalega mikið fyrir mig, þannig að það var æðislegt að ég gat verið með,“ sagði hún að lokum í samtali við Morgunblaðið. Ætlaði aðeins að hreyfa sig en endaði í landsliðinu - Anna Úrsúla Guðmundsdóttir var hætt eftir að hafa eignast sitt þriðja barn Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Öflug Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skorar fyrir Val gegn ÍBV í fyrsta leik sínum með liðinu í tæp tvö ár. ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 Íþróttafréttamenn áttu heldur betur að eiga annríkt um páskana, enda stóð til að spila heilu umferðirnar á Íslands- mótum í hand- og körfubolta, bæði hjá körlum og konum. Und- irritaður sá því fram á að vera önnum kafinn þessa helgina. Annað kom þó á daginn eftir að yfirvöld boðuðu hertar að- gerðir til að sporna við veirunni góðu, sem nú hefur fylgt okkur í meira en ár. Í staðinn fyrir er- ilsama en ánægjulega páska, stútfulla af spennandi íþrótta- viðburðum, sit ég uppi með allt of mikinn tíma til að skrifa þenn- an Bakvörð. Í stað þess að segja frá ár- angri og afrekum íþróttafólks okkar snúast flestar fréttir um hver er í sóttkví og hver ekki. Landslið karla í knattspyrnu, U21, er búið að koma sér fyrir í sóttkvíargúlaginu í Þórunnartúni og verður þar yfir páska eftir að hafa tekið þátt á Evrópumeist- aramótinu í Ungverjalandi á dög- unum. Engu máli skiptir að hóp- urinn var í eins öruggu umhverfi og mögulegt var miðað við að- stæður. Ég er löngu hættur að skilja hvernig þessar ákvarðanir eru teknar. Veitingastaðir eru opnir, og líka hársnyrtistofur. Þá sækja þúsundir manna eldgos á hverj- um degi. Fyrir ekkert svo löngu var stranglega bannað að fara í klippingu vegna veirunnar, en núna er það í lagi. Svo mátti alls ekki horfa á nokkurn mann spila körfubolta en að fara í leikhús þótti ágæt og hættulaus af- þreying. Maður er ekki alltaf sam- mála en það fær núverandi stöðu víst ekki breytt. Nú er ég hættur að tuða og farinn að líta hýru auga til páskaeggsins á skrif- borðinu, það er ekki búið að banna það. Gleðilega páska. BAKVÖRÐUR Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.isKnattspyrnudeild Selfoss hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök á Íslandsmótinu en ástralska lands- liðskonan Emma Checker hefur samið við félagið og leikur með því í sumar. Checker er 25 ára gamall miðvörður sem lengst af hefur leik- ið í heimalandinu en einnig hefur hún spilað í Suður-Kóreu og í Frakklandi. Hún á fimm A- landsleiki að baki með Ástralíu og er nú í leikmannahópi landsliðsins sem mætir Þýskalandi í æfinga- leikjum í apríl. Hún flýgur svo til Ís- lands að því verkefni loknu. Landsliðskona til liðs við Selfoss Ljósmynd/Selfoss Ástralía Emma Checker skrifar undir samning við Selfoss. Júdómaðurinn Sveinbjörn Iura greindist í gær með kórónuveiruna og hefur því þurft að draga sig úr keppni á móti í Tyrklandi. Sveinbjörn náði góðum árangri þegar hann komst í 16-manna úrslit á sterku móti í Tbilisi, höfuðborg Georgíu, í vikunni en Sveinbjörn ætlar sér á Ólympíuleikana í Tók- ýó. Hann sagði frá því á Facebook- síðu sinni í gær að það séu gríð- arleg vonbrigði að fá veiruna, enda ætlaði hann sér að taka annað skref í átt að Ólympíuleikunum með góð- um árangri í Tyrklandi um helgina. Sveinbjörn með kórónuveiruna Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Jákvæður Sveinbjörn greindist með veiruna og getur því ekki keppt. Meistaradeild Evrópu 16-liða úrslit, L-riðill: Zaragoza – Nymburk.......................... 90:71 - Tryggvi Snær Hlinason skoraði 2 stig fyrir Zaragoza og tók 2 fráköst á þremur mínútum. _ Zaragoza og Nymburk eru bæði komin í átta liða úrslit. Þýskaland Fraport Skyliners – Chemnitz........... 76:89 - Jón Axel Guðmundsson skoraði 13 stig fyrir Fraport, átti 5 stoðsendingar og tók eitt frákast á 35 mínútum. Fraport er í 12. sæti af 18 liðum og á átta leiki eftir, en er sex stigum frá áttunda sætinu. Evrópudeildin Alba Berlín – Valencia........................ 86:90 - Martin Hermannsson lék ekki með Val- encia vegna meiðsla gegn sínu gamla félagi í Þýskalandi. NBA-deildin Cleveland – Philadelphia ................... 94:114 Detroit – Washington......................... 120:91 Brooklyn – Charlotte ......................... 111:89 Miami – Golden State....................... 116:109 New Orleans – Orlando........... (frl.) 110:115 San Antonio – Atlanta ........... (2frl.) 129:134 LA Clippers – Denver........................ 94:101 Staðan í Austurdeild: Brooklyn Nets 34/15, Philadelphia 33/15, Milwaukee 30/17, Charlotte 24/23, Miami 25/24, New York 24/24, Atlanta 24/24, Bost- on 23/25, Indiana 21/25, Chicago 19/27, To- ronto 18/30, Washington 17/30, Orlando 17/ 31, Cleveland 17/31, Detroit 14/34. Staðan í Vesturdeild: Utah Jazz 36/11, Phoenix 33/14, LA Clip- pers 32/18, LA Lakers 30/18, Denver 30/18, Portland 29/18, Dallas 25/21, San Antonio 24/22, Memphis 22/23, Golden State 23/25, Sacramento 22/26, New Orleans 21/26, Oklahoma City 20/27, Houston 13/34, Minnesota 12/36. 4"5'*2)0-#

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.