Morgunblaðið - 03.04.2021, Qupperneq 35
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Tildrög þessa pistils eru sérstök.
Þannig er mál með vexti að piltur
að nafni Ingi Jóhann Friðgeirsson
setti sig í samband við ofanritaðan
vegna nýrrar plötu með sveitinni Á
geigsgötum. Rafpóstsspjall hófst í
kjölfarið hvar saga téðs tónlistar-
samlags var undir. Ég hafði séð
þetta nafn endrum og sinnum en
vissi lítið og var forvitinn.
Draumar hverfa skjótt, plata
Á geigsgötum, ku vera 15. útgáfa
MBS. Hljómsveitin var upphaflega
sólóverkefni Inga en þróaðist út í
hljómsveitarverkefni og platan
hefur verið í vinnslu í fimm ár.
Mannskapurinn sem kom að plöt-
unni tilheyrir flestallur ýmsum
sveitum sem hafa starfað undir
merkjum MBS. Völva, Hind-
urvættir, Darth Coyote, Brák,
Buxnaskjónar o.fl.
Í bréfaskiptum mínum og Inga
kom ýmislegt merkilegt í ljós. Ég
fór að hugsa um hvernig senur
þrífast utan höfuðborgarsvæðisins.
Slíkt er hægt, þó að í míkrólíki sé
vegna eðlilegrar mannfæðar.
Stundum koma gjöful ár sem
standa kannski með einum til
tveimur einstaklingum sem eru
virkir. Vélin er viðkvæm, getum
við sagt, og lítið má út af bregða
þegar framkvæmdir standa og
falla með nokkrum eldsálum. MBS
Neðanjarðar norðan heiða
Mógull Ingi Jóhann Friðgeirsson er potturinn og pannan í Á geigsgötum.
virðist líka hafa verið nokkuð sjálf-
bært fyrirbæri og starfað innan
Akureyrarsvæðisins nánast ein-
göngu. MBS-liðar stóðu t.d. fyrir
grasrótartónleikum í Hofi nokkr-
um sinnum þótt ekki hafi það verið
árlegur viðburður.
Mesta orkan í MBS var á árun-
um 2010-2015 þegar liðsmenn voru
ca. á aldrinum átján til tuttugu og
þriggja. Mikið var spilað í Populus
Tremula sem varð síðan að Kaktus
sem var í kjallara Listasafnsins á
Akureyri en einnig voru reglulega
tónleikar í æfingahúsnæði. Eftir
2015 fór hópurinn svo að tvístrast,
eins og gengur. Margir fóru í nám
suður, aðrir í tónlistarnám til út-
landa og einhverjir aðlöguðust sen-
unni í Reykjavík. Þeir sem voru
eftir héldu þó enn æfingahúsnæð-
inu (Gúlaginu), sem enn er starf-
rækt. Ingi tók fyrir það að MBS
væri eitthvert aðal í umræddum
samskiptum, sagði það orðrétt
vera „aðeins hluta af neðanjarð-
arsenu Akureyrar og höfum við
verið viðloðandi ákveðin æfinga-
húsnæði og kjarna og hljómsveit-
irnar margar innræktaðar. Því
myndi ég ekki segja að þetta sé líf-
æð neðanjarðarsenu Norðurlands
en við erum að gera okkar besta til
að halda starfsemi hérna við og
leyfa yngri hljómsveitum að fá
vettvang til að spila og koma sér á
framfæri.“ Með þetta að markmiði
hefur MBS m.a. staðið fyrir opnum
degi í Gúlaginu og hefur hann far-
ið fram árlega síðan 2018. Hátíðin
fer fram í eða við æfingahúsnæðið
á Oddeyri.
Ingi er að sönnu auðmjúkur
þegar hann neitar að taka of mik-
inn heiður af virkninni í höfuðstað
Norðurlands. Tónlistarsaga Akur-
eyrar er merk og kollegi kær,
Skapti Hallgrímsson, ritstýrði efn-
ismiklu blaði sem tengdist sýning-
unni Tónlistarbærinn Akureyri síð-
asta sumar. Í blaðinu er heill heim-
ur sem hefur í raun ekki ratað
„hingað“ suður nema að litlu leyti.
Útþrá er nefnilega eitt, að vera
sjálfum sér nægur er eitthvað allt
annað. Áhersla MBS á að rækta
heimagarðinn fyrst og fremst er
sennilega skynsamleg, í stað þess
að vera að ana út um allar trissur.
Svo oftlega flaska menn á því að
treysta almennilega grunnstoð-
irnar áður en byrjað er að hugsa
stærra og meira. Mestu gildir þó,
líkt og hjá öllum viðlíka hópum, að
búa til skjól fyrir listsköpun og
styðja þá sem hana stunda.
Lýðheilsa landsmanna á allt undir
slíku, það er bara þannig.
»
Margir fóru í nám
suður, aðrir í tónlist-
arnám til útlanda og
einhverjir aðlöguðust
senunni í Reykjavík.
MBS (Mannfólkið
breytist í slím) er tón-
listarsamlag frá Akur-
eyri sem hefur verið
starfrækt í rösk tíu ár
og staðið að ýmsum út-
gáfum og uppákomum.
Lítið hefur verið ritað
um sögu þessarar sam-
steypu þar til nú.
Dularfullir Hindurvættir er sveit sem starfaði undir hatti MBS.
Pönk! Hin sviðna jörð er þriðja
breiðskífa Buxnaskjóna.
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021
Vefurinn The Art Newspaper
greinir frá því að aðsókn að 100
vinsælustu söfnum heims hafi dreg-
ist saman um 77% í fyrra vegna
heimsfaraldursins. Árið 2019 voru
gestir um 230 milljónir en í fyrra 54
og skal engan undra þar sem loka
þurfti fjölda safna til lengri tíma. Í
frétt á vefnum má sjá samdrátt í að-
sókn að einstaka söfnum og það
vinsælasta í heimi, Louvre, var með
72% færri gesti en árið 2019, Lista-
safn Kína með 78% færri, Tate
Modern í London með 77% færri
gesti og Vatíkanið í Róm með 81%
færri gesti. Samdrátturinn var
meiri í Metropolitan Museum of Art
í New York eða 83%.
Morgunblaðið/Einar Falur
Louvre Gestir í einni kös hjá Monu Lisu
árið 1999. Öllu rólegra er þar nú.
Aðsókn 77% minni
að söfnum í fyrra
Antonio Pappano mun taka við af
Simon Rattle sem aðalhljómsveitar-
stjóri London Symphony Orch-
estra, Sinfóníuhljómsveitar Lund-
úna. Pappano hefur gegnt stöðu
stjórnanda Royal Opera House í
London frá árinu 2002. Pappano
tekur við nýja starfinu árið 2024.
Í frétt á vef The Guardian er haft
eftir Pappano að með þessu hafi
draumur hans ræst og hann sé bæði
spenntur og auðmjúkur að taka við
starfinu. Segir hann mikilvægustu
vegferð sína fram undan.
Pappano tekur við
af Rattle hjá LSO
Stjórnandi Antonio Pappano.
Ljósmynd/Musacchio & Ianniello
GLEÐILEGA PÁSKA - SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
VIÐ MÆTUM AFTUR
15. APRÍL
EÐA FYRR EF AÐ COVID LEYFIR.
Risa Páskaknús á ykkur öll og
hlökkum til að hitta alla í bíó aftur.
VÆ
NTA
NLE
G Í
BÍÓ
VÆNTANLEG Í BÍÓ
ÓSKARS-
TILNEFNINGA
MYNDIRNAR
MÆTA AFTUR