Morgunblaðið - 03.04.2021, Side 35

Morgunblaðið - 03.04.2021, Side 35
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Tildrög þessa pistils eru sérstök. Þannig er mál með vexti að piltur að nafni Ingi Jóhann Friðgeirsson setti sig í samband við ofanritaðan vegna nýrrar plötu með sveitinni Á geigsgötum. Rafpóstsspjall hófst í kjölfarið hvar saga téðs tónlistar- samlags var undir. Ég hafði séð þetta nafn endrum og sinnum en vissi lítið og var forvitinn. Draumar hverfa skjótt, plata Á geigsgötum, ku vera 15. útgáfa MBS. Hljómsveitin var upphaflega sólóverkefni Inga en þróaðist út í hljómsveitarverkefni og platan hefur verið í vinnslu í fimm ár. Mannskapurinn sem kom að plöt- unni tilheyrir flestallur ýmsum sveitum sem hafa starfað undir merkjum MBS. Völva, Hind- urvættir, Darth Coyote, Brák, Buxnaskjónar o.fl. Í bréfaskiptum mínum og Inga kom ýmislegt merkilegt í ljós. Ég fór að hugsa um hvernig senur þrífast utan höfuðborgarsvæðisins. Slíkt er hægt, þó að í míkrólíki sé vegna eðlilegrar mannfæðar. Stundum koma gjöful ár sem standa kannski með einum til tveimur einstaklingum sem eru virkir. Vélin er viðkvæm, getum við sagt, og lítið má út af bregða þegar framkvæmdir standa og falla með nokkrum eldsálum. MBS Neðanjarðar norðan heiða Mógull Ingi Jóhann Friðgeirsson er potturinn og pannan í Á geigsgötum. virðist líka hafa verið nokkuð sjálf- bært fyrirbæri og starfað innan Akureyrarsvæðisins nánast ein- göngu. MBS-liðar stóðu t.d. fyrir grasrótartónleikum í Hofi nokkr- um sinnum þótt ekki hafi það verið árlegur viðburður. Mesta orkan í MBS var á árun- um 2010-2015 þegar liðsmenn voru ca. á aldrinum átján til tuttugu og þriggja. Mikið var spilað í Populus Tremula sem varð síðan að Kaktus sem var í kjallara Listasafnsins á Akureyri en einnig voru reglulega tónleikar í æfingahúsnæði. Eftir 2015 fór hópurinn svo að tvístrast, eins og gengur. Margir fóru í nám suður, aðrir í tónlistarnám til út- landa og einhverjir aðlöguðust sen- unni í Reykjavík. Þeir sem voru eftir héldu þó enn æfingahúsnæð- inu (Gúlaginu), sem enn er starf- rækt. Ingi tók fyrir það að MBS væri eitthvert aðal í umræddum samskiptum, sagði það orðrétt vera „aðeins hluta af neðanjarð- arsenu Akureyrar og höfum við verið viðloðandi ákveðin æfinga- húsnæði og kjarna og hljómsveit- irnar margar innræktaðar. Því myndi ég ekki segja að þetta sé líf- æð neðanjarðarsenu Norðurlands en við erum að gera okkar besta til að halda starfsemi hérna við og leyfa yngri hljómsveitum að fá vettvang til að spila og koma sér á framfæri.“ Með þetta að markmiði hefur MBS m.a. staðið fyrir opnum degi í Gúlaginu og hefur hann far- ið fram árlega síðan 2018. Hátíðin fer fram í eða við æfingahúsnæðið á Oddeyri. Ingi er að sönnu auðmjúkur þegar hann neitar að taka of mik- inn heiður af virkninni í höfuðstað Norðurlands. Tónlistarsaga Akur- eyrar er merk og kollegi kær, Skapti Hallgrímsson, ritstýrði efn- ismiklu blaði sem tengdist sýning- unni Tónlistarbærinn Akureyri síð- asta sumar. Í blaðinu er heill heim- ur sem hefur í raun ekki ratað „hingað“ suður nema að litlu leyti. Útþrá er nefnilega eitt, að vera sjálfum sér nægur er eitthvað allt annað. Áhersla MBS á að rækta heimagarðinn fyrst og fremst er sennilega skynsamleg, í stað þess að vera að ana út um allar trissur. Svo oftlega flaska menn á því að treysta almennilega grunnstoð- irnar áður en byrjað er að hugsa stærra og meira. Mestu gildir þó, líkt og hjá öllum viðlíka hópum, að búa til skjól fyrir listsköpun og styðja þá sem hana stunda. Lýðheilsa landsmanna á allt undir slíku, það er bara þannig. » Margir fóru í nám suður, aðrir í tónlist- arnám til útlanda og einhverjir aðlöguðust senunni í Reykjavík. MBS (Mannfólkið breytist í slím) er tón- listarsamlag frá Akur- eyri sem hefur verið starfrækt í rösk tíu ár og staðið að ýmsum út- gáfum og uppákomum. Lítið hefur verið ritað um sögu þessarar sam- steypu þar til nú. Dularfullir Hindurvættir er sveit sem starfaði undir hatti MBS. Pönk! Hin sviðna jörð er þriðja breiðskífa Buxnaskjóna. MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 Vefurinn The Art Newspaper greinir frá því að aðsókn að 100 vinsælustu söfnum heims hafi dreg- ist saman um 77% í fyrra vegna heimsfaraldursins. Árið 2019 voru gestir um 230 milljónir en í fyrra 54 og skal engan undra þar sem loka þurfti fjölda safna til lengri tíma. Í frétt á vefnum má sjá samdrátt í að- sókn að einstaka söfnum og það vinsælasta í heimi, Louvre, var með 72% færri gesti en árið 2019, Lista- safn Kína með 78% færri, Tate Modern í London með 77% færri gesti og Vatíkanið í Róm með 81% færri gesti. Samdrátturinn var meiri í Metropolitan Museum of Art í New York eða 83%. Morgunblaðið/Einar Falur Louvre Gestir í einni kös hjá Monu Lisu árið 1999. Öllu rólegra er þar nú. Aðsókn 77% minni að söfnum í fyrra Antonio Pappano mun taka við af Simon Rattle sem aðalhljómsveitar- stjóri London Symphony Orch- estra, Sinfóníuhljómsveitar Lund- úna. Pappano hefur gegnt stöðu stjórnanda Royal Opera House í London frá árinu 2002. Pappano tekur við nýja starfinu árið 2024. Í frétt á vef The Guardian er haft eftir Pappano að með þessu hafi draumur hans ræst og hann sé bæði spenntur og auðmjúkur að taka við starfinu. Segir hann mikilvægustu vegferð sína fram undan. Pappano tekur við af Rattle hjá LSO Stjórnandi Antonio Pappano. Ljósmynd/Musacchio & Ianniello GLEÐILEGA PÁSKA - SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SIGURVERARI EVENING STANDARD THE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUT EMPIRE BESTA MYNDIN BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI Frances McDormand BESTI LEIKSTJÓRI Chloé Zhao 6 ÓSKARS TILNEFNINGAR MEÐAL ANNARS ® VIÐ MÆTUM AFTUR 15. APRÍL EÐA FYRR EF AÐ COVID LEYFIR. Risa Páskaknús á ykkur öll og hlökkum til að hitta alla í bíó aftur. VÆ NTA NLE G Í BÍÓ VÆNTANLEG Í BÍÓ ÓSKARS- TILNEFNINGA MYNDIRNAR MÆTA AFTUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.