Morgunblaðið - 03.04.2021, Side 36

Morgunblaðið - 03.04.2021, Side 36
AF MYNDLIST Anna Jóa Á sýningunni Berangri, semnú stendur yfir í ListasafniÍslands, má sjá verk sem Georg Guðni Hauksson málaði á Berangri, Rangárvöllum, þar sem hann bjó ásamt fjölskyldu sinni. Þessi dáði listamaður, sem hefði fagnað sextugsafmæli sínu í árs- byrjun, varð bráðkvaddur sumarið 2011 er hann, einn á ferð, hneig skyndilega niður í faðm landsins sem hann hafði að sínu helsta viðfangs- efni síðustu æviárin. Um það leyti er Georg Guðni hóf nám við málaradeild Myndlista- og handíðaskólans ríkti mikill endur- vakinn áhugi á málverkinu sem sam- tímamiðli, ekki síst fyrir tilstilli nýja málverksins svokallaða. Orkustigið var hátt í kringum það og stundum ólgusjór. Georg Guðni reyndi fyrir sér á þeim slóðum en snemma bar þó á rósamri íhygli hans gagnvart mál- verkinu og áhuga á frumformunum. Auk þess að vera í öflugum nem- endahópi, naut hann leiðsagnar margra góðra myndlistarmanna í námi sínu við skólann þar sem hann lagði grunninn að myndheimi sínum. Í ljósi þess að verk hans eru ávallt byggð á geómetrísku myndskipulagi og einfölduðu myndmáli – ásamt afar blæbrigðaríku og markvissu sam- spili litatóna – má sérstaklega nefna form- og litafræðikennslu Harðar Ágústssonar sem bjó yfir yfirgrips- mikilli þekkingu og víðsýni á sviði sjónmennta er spannaði allt frá forn- klassískum listhugmyndum til sam- tímans (og tók einnig til arfs íslenskrar byggingarlistar). Við upp- haf ferils Harðar var hugmynda- fræði hins geómetríska málverks, eða konkretmyndlistar, í algleym- ingi, og hann þekkti vel til hugmynda um andlegan kraft lita og forma, sem hann sagði sprottinn úr „þeirri til- kenningu sem heitir að vera og finna til.“ Á 8. áratugnum hafði hann feng- ist við gerð óhlutbundinna verka í anda naumhyggju eftir að hafa til- einkað sér austræn áhrif og ljóðrænu í náttúrutengdri afstraksjón. Í grein um kynni sín af Herði segir Hildur Hákonardóttir myndlistarmaður að Hin djúpa nánd – Málaralist Georgs Guðna Úr safneign Listasafns Íslands Seiðmagn Frá sýningunni Berangur sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands, með verkum sem Georg Guðni málaði á síðustu fimm árunum sem hann lifði. Í málverkum listamannsins „býr sterk skírskotun til náttúrureynslu“. hún hafi smám saman áttað sig á því hvernig áherslur Kurts Zier (fyrrv. skólastjóra Myndlista- og hand- íðaskólans) á „að frá náttúrunni væru öll form komin og til hennar yrði alltaf að leita“ hafi tengst form- fræði Harðar, leitinni að „breyti- möguleikum línu, hrings, þríhyrn- ings og fernings“. Henni varð ljóst að formfræðin „var skipuleg krufn- ing á frumþáttum náttúrulögmál- anna […]. Hún var klassískur grunn- ur að formmenntun í okkar menningarheimi en í eðli sínu var hún zen-búddísk.“ Þessi lýsing Hild- ar virðist eiga vel við um þau viðhorf og kenndir sem eru að verki í medítatífum, samhverfum og kyrr- látum en jafnframt dulúðugum nátt- úruheimi Georgs Guðna. Landslag og hið andlega Viðfangsefni Georgs Guðna – landslagið – gerir að verkum að myndir hans eru listsögulega iðulega greind með hliðsjón af landslags- málun fyrri tíma. Það er raunar at- hyglisvert að í umfjöllun um verk hans var fljótlega farið að vísa til landslagsmyndlistar 19. aldar, og þá sérstaklega verka sem kennd eru við rómantík og síðrómantík við aldarlok. Hið síðrómantíska landslagsmálverk felur iðulega í sér andrúm draum- kenndrar eða dulúðugrar kyrrðar sem sköpuð er með myndbyggingu, einföldun forma og litameðferðar í þágu táknrænnar merkingar fremur en raunsæislegri eftirlíkingu náttúr- unnar. Í tengslum við listsögulegt endurmat sem átti sér stað um það leyti er ferill Guðna hófst, tóku æ fleiri til skoðunar þá hugmynd að rætur 20. aldar afstraktmyndlistar væri meðal annars að finna í því hvernig andlegri merkingu er miðlað á táknrænan hátt í landslagsverkum 19. aldar. Nefna má sérstaklega sýninguna The Spiri- tual in Art: Abstract Painting 1890- 1985 og samnefnda bók sem kom út 1986 og vakti mikla athygli en þar var gert út á tengsl afstraktlistar og hug- myndastrauma er tengdust andlegum víddum í Evrópu í kringum aldamótin 1900. Í því samhengi er vert að staldra við snemmbæran áhuga Georgs Guðna á geómetrískri einföldun forma. Í verkinu „Kögunarhóll“, einni fjallamyndanna á fyrstu einkasýningu Georgs Guðna í Nýlistasafninu árið 1985, birtist einfaldað form nafn- greinds fjalls, sem fyllir að miklu leyti út í myndflötinn, án sérstaks for- grunns, nánast eins og um portrett- mynd sé að ræða. Engu er líkara en að dimmleitt og dularfullt fjallið horfi á mann – eða sjáum við aftan á fjall sem horfir inn á við? Það er ekki að- eins formið, heldur efniskenndin og fínleg tónablæbrigði olíulitarins – ein- tóna eða tvítóna, gráir og bláir litir – sem skapa í senn tilfinningu fyrir jarðbundnu „fjalli“, kyrru andrúms- lofti næturhúms, og jafnframt þann huglæga andblæ sem gagnrýnendur nefndu í umsögnum sínum um sýn- inguna með vísun til 19. aldar róman- tíkur. Hið þrönga myndrými – þar sem áhorfandinn virðist svífa í lausu lofti frammi fyrir hinu fremur flata formi – leiða hugann að næturljóði („nocturne“) symbólistanna og þeirri metafýsísku skírskotun til handan- veruleika sem býr að baki táknmynd- inni. Jöfnum höndum skapar Georg Guðni sterka tilfinningu fyrir nær- veru og dregur áhorfandann að „fjall- inu“ og þar með inn í efnisveruleika sjálfs málverksins. Fjallið úr huganum Á sýningunni í Nýlistasafninu voru myndir af fleiri nafngreindum fjöllum úr umhverfi listamannsins, til að mynda Esjunni, og þegar hann um haustið heldur til tveggja ára framhaldsnáms við Jan van Eyck-akademíuna í Maastricht í hinu fjallalausa Hollandi, málar hann áfram myndir af fjöllum. En þótt fjöll móti ekki lengur umhverfi listamannsins – þá snýr hann sér að því að mála fjallið sem býr innra með honum, „fjallið úr huganum“, eins og hann kemst sjálfur að orði. Það er þá sem Georg Guðni gerði sér grein fyrir því að einmitt þannig vildi hann hafa það, enda runnu þá saman hughrif og kenndir tengdar ýmsum fjöllum. Þessi uppgötvun virðist hafa styrkt hugmyndalega nálgun listamannsins og ef til vill einnig veitt einhver svör við grund- vallarspurningum eins og þeim sem hann skrifar hjá sér á einum stað í skissubók: Af hverju að mála Af hverju að mála landslag Hvað er landslagsmálverk Það er í Hollandi sem Georg Guðni fer að þróa þá tækni að bæta íblöndunarefnum eins og fernisolíu út í olíulitinn, leggja hálfgagnsæjan litinn hægt á flötinn og byggja þann- ig upp myndir sínar með mörgum, örþunnum lögum af olíulit. Með þessari aðferð, og næmni á eiginleika olíulita, náði hann að gæða myndir sínar mikilli litadýpt og vissri innri birtuglóð. Þessi aðferð þróaðist á endurreisnartímanum og frum- kvöðlar aðferðarinnar voru raunar flæmsku og hollensku meistararnir – Rembrandt, Vermeer og Van Eyck. Þessi aðferð er jafnan notuð til að skapa tilfinningu fyrir fjarlægð í landslagsmálverki, svonefndri loft- fjarvídd, á þann hátt að þunn litalög mýkja útlínur forma og lýsa þau þannig að þau virðast hverfa inn í fjarlægðarmóðu, þar sem bláir tónar hörfa mest. Því má ímynda sér að dvölin í Hollandi hafi veitt Guðna mikilvægan innblástur. Sjálfur sagð- ist hann hafa kannað landslag í bak- grunni trúarlegra mynda – þar sem loftfjarvíddinni er einmitt beitt – og eitthvað hlýtur flatt, einsleitt lands- lag Hollands og áhersla hollensku 17. aldar landslagsmeistaranna á sér- kenni eigin landslags: sjóndeild- arhringinn og víðáttumikinn himin – og heildarandrúmsloft sem túlka átti kraftbirtingu guðdómsins – að hafa hreyft við honum eins og hún gerði í tilviki Caspars Davids Friedrich, Turners, Constable og fleiri 19. aldar landslagsmálara. Þessir listamenn voru í miklum metum hjá Guðna. Hollendingarnir fyrrnefndu voru, með nýjungum sínum í myndbygg- ingu og tækni, brautryðjendur á sviði landslagsmálunar. Geómetrían og grindin Meðan á Hollandsdvölinni stóð varð vart geómetrískrar einföldunar forma í verkum Georgs Guðna, auk tilrauna með stærð og lögun mynda. Í verkinu „Ernir“ nálgast hann mjög hið óhlutbundna með því að skipta myndfletinum í tvennt með mjúkri skálínu sem listamaðurinn gaumgæfir annars vegar sem mót himins og jarð- ar, eða fjallshlíðar, og hins vegar sem snertingu tveggja forma á myndfleti málverksins. Hér er listamaðurinn farinn að vinna á markvissan hátt með vefnaðarkenndar, láréttar og lóð- réttar pensilstrokur en í fjallshlíðinni fylgja þær þó enn lögun hennar og gefa til kynna að um landslagsform sé að ræða. Þó er sem þetta form sé byrjað að gufa upp í ljósu pensil- strokunum sem túlka andrúmsloftið umhverfis fjallið og virðast líkt og gæla við það í eins konar mjúku aðflugi listamannsins „inn í fjallið“. Þannig tengir pensilfarið áhorfand- ann á skynrænan hátt – í gegnum bæði myndmál og hið málaða far – einnig við líkama málarans. Það er jafnframt túlkun hins efniskennda andrúmslofts í málverkinu sem ljær því dýpt og sterka skírskotun til hlut- veruleikans og spornar gegn lestri sem lýtur eingöngu að samspili óhlut- bundinna lita og forma á ferhyrndum fleti. Ætla má að sú aðferð að mála fjöll og landslag eftir minni, hafi skerpt staðarkennd Georgs Guðna, því hvað er það sem situr eftir annað en tilfinning? En sú tilfinning á rætur sínar í lifaðri reynslu. Í kjölfar mál- verksins „Ernir“ tekur við um tveggja » Þótt listamaðurinn sé horfinn á braut – á vit „buskans“, svo notað sé orðalag Guðna – á vit hins óútskýrða, býr andi hans í efninu, í ummerkj- um um nærveru hans í heimi málverksins – heimi sem við eigum á einhvern hátt einnig hlutdeild í, stödd á milli málverks og myndar, efnis og anda. Úr safneign Listasafns Íslands Kögunarhóll Verkið var á fyrstu einkasýningu Georgs Guðna 1985. 36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 BRÚÐKAUPSBLAÐIÐ Kemur út 16. apríl Viðtöl viðBRÚÐHJÓN Fatnaður, förðun og hárgreiðsla Giftingahringir BRÚÐKAUPSVEISLUR Veisluþjónustur og salir Dekur fyrir brúðhjón Brúðkaupsferðir ÁSTARSÖGUR og margt fleira PÖNTUN AUGLÝSINGA til mánudagsins 12. apríl Katrín Theódórsdóttir S. 569 1105 kata@mbl.is - meira fyrir áskrifendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.