Fréttablaðið - 23.09.2021, Qupperneq 3
1 8 7 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 2 3 . S E P T E M B E R 2 0 2 1
Fegurð og
von í missi
Flokkarnir setja
nýsköpun á
oddinn
Lífið ➤ 26 Markaðurinn ➤ 8
Mmm ...
Safarík kíví eru
best núna!
Pssst ...
Vissir þú að
kíví heitir líka
loðber?
23. SEPTEMBER - 6. OKTÓBER 25%
AFSLÁTTUR
AF HEILSU- OG
LÍFSSTÍLSVÖRU
M
ALLT AÐ
HEILSUDAGAR Í NETTÓ
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
nú með 20 prósenta fylgi
tveimur dögum fyrir kosn-
ingar. Samfylkingin er enn
næststærsti flokkurinn, en
Píratar bæta við sig einu og
hálfu prósenti.
bth@frettabladid.is
KOSNINGAR Sjálfstæðisflokkurinn
tapar enn fylgi og mælist nú með
20,1 prósent, samkvæmt könnun
sem Prósent gerði fyrir Fréttablaðið.
Tapar flokkurinn rúmu prósenti frá
könnun síðustu viku. Samfylkingin
er næststærsti stjórnmálaflokkur
landsins og mælist með 14,7 pró-
sent. Píratar mælast nú með 13,1
prósent í stað 11,5 prósenta í síðustu
viku og bæta við sig rúmu einu og
hálfu prósenti.
Framsóknarf lokkurinn fær nú
12,2 prósent og VG 10,7 prósent.
Ríkisstjórnin er því kolfallin sam-
kvæmt könnuninni, þar sem sam-
anlagt fylgi f lokkanna þriggja er
aðeins 43 prósent.
Viðreisn fær 9,3 prósent, Sósíal-
istar 6,9 prósent, Miðf lokkurinn
6,6 prósent og Flokkur fólksins
5,2 prósent. Frjálslyndi lýðræðis-
flokkurinn mælist með 1,1 prósent.
Samkvæmt könnuninni koma níu
framboð mönnum á þing, sem yrði
einsdæmi í Íslandssögunni.
Höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins er
hjá formanninum í Kraganum, þar
sem f lokkurinn fær 29,7 prósent.
Samfylkingin er sterkust í Reykja-
vík, hefur 22 prósent í Reykjavík
norður og því f lýgur Jóhann Páll
Jóhannsson á þing samkvæmt
könnuninni og Rósa Björk Brynj-
ólfsdóttir sem vermir 2. sætið í
hinu Reykjavíkurkjördæminu líka,
þar sem flokkurinn er með tæp 20
prósent. Kosninganóttin gæti orðið
spennandi fyrir Guðmund Andra
Thorsson sem vermir 2. sæti í Krag-
anum, þar sem flokkurinn mælist
með 12,2 prósenta fylgi. Oddný
Harðardóttir fellur hins vegar af
þingi samkvæmt könnuninni því
f lokkurinn mælist aðeins með 5,4
prósent í Suðurkjördæmi.
Eins og Samfylking eru Píratar
sterkastir í Reykjavík. Flokkurinn
er með rúm 19 prósent í báðum
Reykjavíkurkjördæmunum en
fylgið er mun lakara á landsbyggð-
inni, þar sem eina þingmannsvonin
virðist vera í Einari Brynjólfssyni í
Norðausturkjördæmi.
Tæpt er að ráðherra Framsóknar-
flokksins, Ásmundur Einar Daða-
son, fái þingsæti í Reykjavík norður
og gæti hann þurft að treysta á jöfn-
unarsæti samkvæmt könnuninni.
Sósíalistar mælast með meira en
6 prósenta fylgi í öllum kjördæmum
nema Kraganum. Fylgi Miðflokks-
ins er undir þremur prósentum í
Reykjavíkurkjördæmunum og því
ekki útlit fyrir að leit f lokksins að
kvenframbjóðendum í borginni
skili sér í þingstyrk. Formaðurinn
er hins vegar öruggur með þingsæti,
en flokkurinn er með 12,5 prósent í
hans kjördæmi fyrir norðan.
Könnunin var framkvæmd dag-
ana 17.-21. september. 2.500 ein-
staklingar voru spurðir og svöruðu
1.244, eða um 50 prósent. ■
Píratar bæta í en
Sjálfstæðismenn
tapa áfram fylgi
0
5
10
15
20
25
Annað
■ Kosningar 2017
■ Könnun 17. sept. 2021
■ Könnun 22. sept. 2021
Hvaða flokk myndirðu kjósa ef gengið yrði til kosninga í dag?
Gríms eyingar fylgdust með kirkjunni sinni brenna til kaldra kola í fyrrinótt. Kirkjan varð alelda skömmu eftir að
eldurinn kom upp og ómögulegt reyndist að ráða við hann. Kirkjan var byggð úr rekaviði árið 1867. Miklar endurbætur
voru gerðar á kirkjunni árið 1956 og var hún þá endurvígð. Kirkjan var friðuð árið 1990. Karen Nótt Halldórsdóttir, íbúi í
Grímsey, myndaði rústirnar fyrir Fréttablaðið. Hún segir brunann mikið tilfinningalegt tjón fyrir íbúa Grímseyjar, sem
hittust í félagsheimili sínu í gærkvöldi til að ræða málin og framhaldið. MYND/KAREN NÓTT HALLDÓRSDÓTTIR