Fréttablaðið - 23.09.2021, Síða 10
Skattfrádráttur
rannsókna- og þróunarverkefna
Umsóknarfrestur er til og með 1. október
Nánari upplýsingar rannis.is
Nýsköpunarfyrirtæki, sem eru eigendur að rannsókna- og
þróunarverkefnum og hlotið hafa staðfestingu Rannís, eiga
samkvæmt lögum rétt á frádrætti gegnum skattkerfið.
Stuðningur við verkefni getur numið allt að 35% af útlögðum
kostnaði í tilviki lítilla og meðalstórra fyrirtækja, en 25% í
tilviki stórra fyrirtækja.*
*skattárin 2020 og 2021 (til endurgreiðslu 2021 og 2022)
helgivifill@frettabladid.is
Hagnaður Hofgarða, félags í eigu
Helga Magnússonar, nam 420 millj-
ónum króna árið 2020. Hofgarðar
eru hluthafi í Torgi sem gefur út
Fréttablaðið. Helgi er formaður
stjórnar Torgs.
Hofgarðar hafa fjárfest í skráð-
um og óskráðum verðbréfum hér
á landi og erlendis. Af koman af
þessum viðskiptum hefur verið
sveiflukennd. Árið 2018 nam hagn-
aður félagsins 180 milljónum króna,
hagnaður var rúmar 900 milljónir
árið 2019 og 420 milljónir króna í
fyrra. Bókfærð eiginfjárstaða félags-
ins var um þrír milljarðar króna í
árslok 2020. ■
Hofgarðar hagnast um 420 milljónir
Helgi Magnús-
son, stjórnarfor-
maður Torgs
Stjórnarflokkarnir segja
að mikið hafi verið gert á
kjörtímabilinu til að efla
nýsköpun. Stjórnarandstaðan
er þeirrar skoðunar að ekki
hafi verið nóg að gert.
magdalena@frettabladid.is
Stjórnmálaf lokkarnir hafa fjöl-
breytt áhersluatriði í nýsköpunar-
málum. Núverandi stjórnarflokkar
leggja áherslu á að tekið verði tillit
til loftslagsmála og eflingar nýsköp-
unar á landsbyggðinni. Þá vilja
nokkrir stjórnarandstöðuflokkar
meiri fyrirsjáanleika og einfaldara
skattaumhverfi. Markaðurinn sendi
fyrirspurnir til f lokkanna og bað þá
um að lýsa nýsköpunarstefnu sinni.
Í svari Vinstri grænna við fyrir-
spurn Markaðarins segir að þau vilji
leggja áherslu á grænar fjárfestingar
og loftslagsvæna nýsköpun. Jafn-
framt er tekið fram að mikið hafi
áunnist í þessum málaf lokki á
kjörtímabilinu og að framlög á fjár-
lögum til nýsköpunar og rannsókna
hafi aukist um ríflega 130 prósent á
kjörtímabilinu.
„Vinstri-græn vilja framlengja
endurgreiðslur vegna rannsókna
og þróunar og auka enn frekar við
stuðning við Rannsóknasjóð og
Tækniþróunarsjóð. Vinstri græn líta
á skapandi greinar sem mikilvægan
hluta þessa umhverfis og vilja gera
fjölgun listamannalauna varanlega
og hækka upphæð þeirra. Halda
þarf áfram á þeirri braut að fram-
lög til nýsköpunar nái að minnsta
kosti 3 prósentum af vergri lands-
framleiðslu árlega,“ segir í svarinu.
Þá segir jafnframt að flokkurinn
vilji skoða að lögfesta skyldur lífeyr-
issjóða og fjármálastofnana um að
fjárfestingar þeirra verði metnar út
frá loftslagsáhrifum og samfélags-
legum áhrifum. Einnig er tekið
fram að veita þurfi svigrúm fyrir
nýsköpun þegar kemur að almanna-
þjónustu og að sérstök áhersla verði
lögð á að styðja við nýsköpun í heil-
brigðiskerfinu og velferðarþjónustu
á næstu árum.
Vinstri græn vilja aukinheldur
tryggja að fjármagni til nýsköpunar
sé dreift með sanngjörnum hætti
milli landshluta og að aðgengi hópa
og kynja til nýsköpunar skuli ef lt
með markvissum aðgerðum.
Sjálfstæðisf lokkurinn undir-
strikar að margt gott hafi verið gert
í þessum málaflokki á kjörtímabil-
inu og nefnir meðal annars þróun
og innleiðingu nýsköpunarstefnu
og stofnun Kríu, sem er hvatasjóður
vísisfjárfestinga.
Það er markmið Sjálfstæðis-
f lokksins að halda áfram innleið-
ingu nýsköpunarstefnunnar, en í
henni felst meðal annars að beina
fjármagni til rannsókna og frum-
kvöðla, fremur en í umsýslu og yfir-
byggingu. Í nýsköpunarstefnunni
felst meðal annars að koma á fót sér-
stöku nýsköpunar- og frumkvöðla-
ráði og auk þess stuðla að því að
almenningur hafi skattalega hvata
til að fjárfesta í skráðum nýsköp-
unarfyrirtækjum eða taka þátt í
sjóðum sem fjárfesta í nýsköpun.
Þá vill f lokkurinn jafnframt
leggja áherslu á þekkingu og færni
í skólakerfinu sem líkleg er til að
nýtast í framtíðinni svo sem STEM-
greinar, hönnunar, tungumála og
verklega þekkingu.
Framsóknarf lokkurinn leggur
áherslu á kolefnishlutlaust Ísland
árið 2040 og bætt skattaumhverfi
nýsköpunarfyrirtækja. Flokkur-
inn vill einnig styðja við atvinnu-
u ppbyggingu og nýsköpun á lands-
byggðinni. Í svari Framsóknar
segir jafnframt að f lokkurinn vilji
stórefla nýsköpun í matvælafram-
leiðslu og landnýtingu.
„Stefna ber að því að öll land-
nýting og ræktun sé sjálf bær og
stuðningur hins opinbera þarf í
meira mæli að beinast að því að efla
fjölbreytta ræktun og landnýtingu,
þar með talið kolefnisbindingu. Efla
þarf vetnisframleiðslu en eftirspurn
eftir framleiðslu úr grænni orku og
hreinu vatni fer hraðvaxandi um
allan heim. Framsókn vill því nýta
tækifæri til útflutnings á orkuþekk-
ingu og orku í formi rafeldsneytis.“
Píratar vilja auka stuðning við
uppbyggingu þróunarsetra og ein-
falda skattaumhverfi nýsköpunar
og rekstur fyrirtækja. „Það yrði
til dæmis gert með því að skil-
greina nýtt fyrirtækjaform, frum-
kvöðlafélög, sem er skilvirkara og
hagkvæmara að stofna og reka en
einkahlutafélög. Þörf yrði þá á að
hafa skýra leið til þess að umbreyta
frumkvöðlafélögum í hlutafélög
þegar þau vaxa,“ segir í svari við
fyrirspurn blaðsins. Flokkurinn
tekur jafnframt fram að hann vilji
tryggja fjölbreytta nýsköpun og
stafræn umbylting verði sett á odd-
inn innan alþjóðlega geirans.
Viðreisn dró sína nýsköpunar-
stefnu saman í þrjú lykilorð: stöð-
ugleika, fyrirsjáanleika og úthald.
Segir í svari flokksins við fyrirspurn
Markaðarins að í því felist stöðugt
gengi, lágir vextir og lág verðbólga.
Einnig að stuðningskerfi á borð við
endurgreiðslur vegna rannsókna og
þróunar og ýmis framlög og styrkir
verði ákveðnir, til að minnsta kosti
tíu ára í senn. Auk þess að trúa á
og vinna að langtímasýn og fylgja
henni eftir þó að illa ári.
Sósíalistaf lokkurinn telur að
núverandi nýsköpunarstefna gangi
út á eftirlitslausar endurgreiðslur
til atvinnulífsins, sem muni ekki
endilega leiða til nýsköpunar og til
að vinda ofan af því vill f lokkur-
inn aukna aðkomu ríkisins. Í svari
flokksins við fyrirspurn Markaðar-
ins segir: „Menntastefnan okkar
tæpir á nokkrum öðrum atriðum
sem ýta undir nýsköpun. Þar má
nefna öflugra námsstyrkjakerfi og
virkjun rannsókna-, vísinda-, og
fræðaumhverfisins.“
Ekki bárust svör frá Samfylk-
ingunni, Flokki fólksins eða Mið-
flokknum. ■
Flokkarnir setja nýsköpun á oddinn
Ýmislegt er hægt að gera til að efla nýsköpun og hafa flokkarnir lagt fram sínar áherslur. FRÉTTABLADID/EYÞÓR
Förum á mis við tækifæri
Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins, segir að þegar
kemur að áherslum stjórnvalda
í málefnum nýsköpunar sé
þrennt sem skipti mestu máli.
„Í fyrsta lagi þurfa þær aðgerðir
sem ráðist var í vegna Covid-19
heimsfaraldursins, svo sem
þegar hvatar vegna rannsókna
og þróunar voru hækkaðir, bæði
hlutfall og þak, að vera gerðar
ótímabundnar,“ segir hann og
bætir við að um sé að ræða fjár-
festingu í framtíðartekjum en
ekki eyðslu.
Auk þess nefnir hann að mikil-
vægt sé að sérstakur ráðherra
iðnaðar, nýsköpunar og erlendra
fjárfestinga þurfi að sjá um
málaflokkinn. „Þessi mál hafa
ekki haft þann sess sem þau
þurfa að fá til að það sé hægt að
sækja öll þau tækifæri sem við
stöndum frammi fyrir.“
Hann bætir við að þriðja
atriðið sem skipti miklu máli
snúi að mannauði. „Skortur á
sérfræðiþekkingu hér á landi
á ýmsum sviðum hefur reynst
hindrun í vexti fyrirtækja í hug-
verkaiðnaði. Tvennt þarf að
koma til samtímis til að greiða
úr þessum vanda. Annars vegar
að breyta áherslum í mennta-
kerfinu þannig að fleiri útskrifist
úr tækni- og raungreinum, en
einnig þarf að liðka verulega
fyrir ráðningu sérfræðinga
hingað til lands.“
Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
MARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 23. september 2021 FIMMTUDAGUR