Fréttablaðið - 23.09.2021, Síða 18

Fréttablaðið - 23.09.2021, Síða 18
Starfshópur um þjóðarleik- vang fyrir frjálsíþróttir hefur skilað tillögum og greinargerð til mennta- og menningar- málaráðuneytis. Fyrir liggja tillögur starfshóps um þjóðar- leikvang fyrir inniíþróttir og enn eru skoðaðar fjórar sviðsmyndir um endurnýjun Laugardalsvallar sem þjóðar- leikvangs fyrir knattspyrnu. benediktboas@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR „Nú held ég að við séum komin með góðan efnivið og það sé kominn tími til að hefja uppbygg- ingu í Laugardalnum,“ segir Freyr Ólafsson, formaður Frjálsíþrótta- sambands Íslands (FRÍ), en hann af henti Lilju Dögg Alfreðsdóttur íþróttamálaráðherra skýrslu um þjóðarleikvang í frjálsum íþróttum. Segir Freyr meðal annars að eitt af aðalstefjum skýrslunnar sé að FRÍ vilji stjórna tímanum sem sam- bandið fær, en eins og staðan er núna ræður Knattspyrnusamband Íslands í raun hvenær frjálsíþrótta- fólk fær að æfa á Laugardalsvelli. Hópurinn kemst að þeirri niður- stöðu að ef þjóðarleikvangur í knattspyrnu verður áfram á Laugar- dalsvelli sé framtíð frjálsíþrótta- starfs best borgið á nýjum leikvangi fyrir norðan Suðurlandsbraut, aust- an frjálsíþróttahallar við Engjaveg. Mannvirkið myndi þannig tengj- ast núverandi frjálsíþróttahöll, öðrum íþróttamannvirkjum sem og öðrum opnum svæðum í Laugardal. Starfshópurinn sér fram á að mann- virkið verði vel nýtt fyrir alþjóðlegt keppnishald og stærri mót á vegum Frjálsíþróttasambands Íslands og Íþróttasambands fatlaðra, æfingar afreksmanna, æfingar barna, ungl- inga og annarra í hverfafélögum í Reykjavík, en einnig sem möguleg aðstaða fyrir afreksíþróttamiðstöð í Laugardalnum, auk rannsókna, þjálfunar og kennslu í skólum. Frumáætlanir gera ráð fyrir að stofnkostnaður vegna slíks þjóðar- leikvangs sé um tveir milljarðar króna. „Það er gleðilegt að fram sé komin þessi sameiginlega niðurstaða. Það hefur sýnt sig undanfarin misseri hvað það er mikilvægt að frjáls- íþróttafólk geti æft og keppt, óháð öðrum íþróttum og viðburðum. Nú erum við með einstakt tæki- færi til að tryggja það til framtíðar,“ segir Freyr og tekur fram að hann sé þakklátur fyrir frumkvæði Lilju í þessu máli. Framtíðarsýn Laugardals er því farin að taka á sig mynd, en eins og trúlega flestir vita er margt sem þar stendur komið á tíma. Frá því að reglugerð um viðurkenningu þjóð- arleikvanga í íþróttum var sett árið 2018 hefur fjölbreyttri greiningar- vinnu verið hrundið af stað vegna uppbyggingar slíkra innviða. Fyrir liggja tillögur starfshóps um þjóðar- leikvang fyrir inniíþróttir og unnið er eftir fjórum sviðsmyndum um nýjan Laugardalsvöll. Lilja sjálf var hrifin af ástríðunni í orðum Freys og benti á að til að eiga íþróttafólk í fremstu röð á heims- vísu verði að bæta úr aðstöðumál- um. Fram undan sé að tryggja fjár- mögnun, ráðast í hönnun og grípa skófluna. „Fólkið sem er að vinna við íþrótt- ir brennur fyrir að bæta aðstöðu og það er okkar hlutverk að vinna með væntingar og hvað er raunhæft. Núna erum við komin með heildar- myndina um þjóðarleikvanga, bæði inniíþróttir, frjálsar og knattspyrnu. Nú verður þessi vinna tekin saman og séð hvað er hagkvæmt og hvern- ig við látum þetta ganga allt upp,“ segir Lilja. ■ Hugmyndir um þjóðarleikvanginn komnar í hendur stjórnmálafólks Frumáætlanir starfshópsins gera ráð fyrir að stofnkostnaður vegna þjóðar- leikvangs fyrir frjálsar íþróttir séu um tveir milljarðar. Fyrir eru til skýrslur um inniíþróttir og áfram er unnið að nýjum Laugardalsvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Núna erum við komin með heildarmyndina um þjóðarleikvanga, bæði inniíþróttir, frjálsar og knatt- spyrnu. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, íþróttamálaráðherra Það hefur sýnt sig undanfarin misseri hvað það er mikilvægi að frjálsíþróttafólk geti æft og keppt óháð öðrum íþróttum og viðburðum. Freyr Ólafsson, formaður FRÍ kristinnpall@frettabladid.is KÖRFUBOLTI Í nýjasta tölublaði Vík- urfrétta kemur fram að bæjaryfir- völd í Reykjanesbæ hafi undirritað verksamninga um næsta áfanga Stapaskóla, sem mun um leið taka við sem íþróttahús körfuknatt- leiksdeildar Njarðvíkur. Með því er ljóst að Njarðvíkingar munu yfir- gefa Ljónagryfjuna, frægan heima- völl liðsins, en stefnt er að því að framkvæmdum ljúki öðru hvorum megin við áramótin 2022-2023. Kemur fram að nýr heimavöllur Njarðvíkur komi til með að geta hýst ellefu hundruð manns, eða rúmlega helmingi f leiri en Ljóna- gryfjan sem getur tekið f imm hundruð manns. ■ Njarðvík kveður Ljónagryfjuna Eins og sést á þessari gömlu mynd er oft þröngt um manninn í Ljónagryfj- unni á leikjum Njarðvíkinga. kristinnpall@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR Íþrótta- og Ólympíusam- band Íslands, ÍSÍ, tilkynnti í gær að Hafrún Kristjánsdóttir, Kjartan Bjarni Björgvinsson og Rán Ingvars- dóttir hefðu verið skipuð í nefnd sem mun gera úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna kyn- ferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands. KSÍ leitaði eftir því að ÍSÍ stofnaði nefnd sem tæki út viðbrögð sam- bandsins, eftir að það kom í ljós að KSÍ hafði hylmt yfir of beldisbrot landsliðsmanna karlalandsliðsins í knattspyrnu. Nefndin mun um leið leggja fram tillögur um úrbætur á verklagi eða um frekari viðbrögð. Þá hefur KSÍ lofað því að nefndin fái aðgang að öllum þeim gögnum sem hún óskar eftir og er von á nið- urstöðum til framkvæmdastjórnar ÍSÍ í nóvember. ■ Rannsóknarnefnd ÍSÍ hefur störf 16 Íþróttir 23. september 2021 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 23. september 2021 FIMMTUDAGUR hjorvaro@frettabladid.is FÓTBOLTI Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félags- málafræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands og knattspyrnu- þjálfari, greindi frá því í gær að hún ætli að gefa kost á sér á aukaþingi knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, sem haldið verður 2. október næst- komandi. „Ég hef á kveðið að bjóða mig fram til formanns Knatt spyrnu- sam bands Ís lands. Ég hef fengið fjölda á skorana frá fjöl skyldu og vinum, frá fjöl breyttum hópi fólks í sam fé laginu og úr knatt spyrnu- hreyfingunni sjálfri,“ segir Vanda um ákvörðun sína. Heimildir Fréttablaðsins herma að Björn Einarsson, framkvæmda- stjóri sölu og viðskiptastýringar- sviðs Eimskips og formaður Víkings, liggi undir feldi hvað formanns- framboð varðar, en hann bauð sig fram til formanns árið 2017. Þá fór Guðni Bergsson, sem sagði sig frá embættisstörfum um mánaðamótin ágúst og september í kjölfar gagnrýni á viðbrögð við meintum og staðfestum of beldis- brotum leikmanna íslenska karla- landsliðsins, með sigur af hólmi í framboðsslag. Framboðsfrestur vegna stjórnar- kjörs KSÍ rennur út 25. september. Sá formaður sem verður kosinn á þinginu 2. október mun sitja fram að næsta ársþingi  KSÍ sem hald- ið verður í febrúar á næsta ári.   Fram undan hjá KSÍ er ársreikn- ingsgerð fyrir komandi ársþing en á sama tíma hefur sambandið boðað breytta verkferla við meðhöndlun ofbeldismála innan sinna vébanda. Þannig hefur núverandi stjórn KSÍ hefur farið þess á leit við Íþrótta- og Óly mpíusamband Íslands, ÍSÍ, að sett verði á stofn nefnd til að gera úttekt á viðbrögð- um og málsmeðferð KSÍ vegna kyn- ferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands. Nefndinni er ætlað að fara yfir þá atburðarás sem leiddi til afsagnar formanns og stjórnar KSÍ og bregð- ast við ásökunum um þöggun. Þá á nefndin að taka sérstaklega til athugunar hvort einhverjar þær aðstæður séu uppi innan KSÍ sem hamla þátttöku kvenna í starfi þess. Tveir faghópar hafa þegar tekið til starfa hjá ÍSÍ og KSÍ sem hafa það hlutverk að skoða ferla, vinnubrögð og heimildir til aðgerða hjá sam- böndunum. Leikmannahópur fyrir komandi leiki íslenska karlalandsliðsins í undankeppni HM 2022 verður til- kynntur eftir slétta viku. Fram kemur í fundargerðum stjórnar KSÍ að stjórnin hafi tekið fram fyrir hendurnar á þjálfara íslenska liðsins og yfirmanni knattspyrnumála hjá sambandinu varðandi val á Kol- beini Sigþórssyni vegna of beldis- brots hans. Nú hefur félagslið Kolbeins, Gautaborg, tilkynnt að félagið muni standa við bakið á honum og hann verði áfram í röðum félagsins. Ekki liggur fyrir hver afstaða núverandi stjórnar er til vals á Kolbeini í kom- andi hóp. Ómar  Smárason, fjölmiðlafull- trúi KSÍ, sagði í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins að ekki væri hægt að svara því að svo stöddu hvort einhverjir leikmenn komi ekki til greina vegna meintra eða staðfestra of beldisbrota fyrir komandi hóp íslenska liðsins. Arnar Þór lét hafa eftir sér í við- tölum við fjölmiðla fyrr í þessum mánuði að ljóst væri að hann gæti ekki unnið í umhverfi þar sem hann þyrfti að leggja þann landsliðshóp sem hann vill velja fyrir stjórn, til samþykkis um hverjir megi  spila fyrir Íslands hönd og hverjir ekki. ■ Óvíst hvort einhverjir leikmenn komi ekki til greina Vanda Sigurgeirsdóttir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.