Fréttablaðið - 23.09.2021, Page 19
K Y N N I NG A R B L A Ð
ALLT
FIMMTUDAGUR 23. september 2021
Fortnite-persónur í tískufatnaði frá
Balenciaga. MYND/BALENCIAGA.COM
thordisg@frettabladid.is
Einn vinsælasti tölvuleikur heims,
Fortnite, er þekktur fyrir vel
klæddar tölvupersónur og hefur
lengi lagt línur í klæðaburði ung-
menna, danssporum og fleiru. Í
vikunni tók Fortnite skrefið lengra
til að útvíkka áhrif sín í raunheim-
um með samstarfi við hátísku-
risann Balenciaga sem selur nú
sérhannaðan Fortnite-fatnað í
takmörkuðu upplagi. Fortnite-lína
Balenciaga kostar vissulega sitt
fyrir þá sem vilja klæðast þessari
eitursvölu hönnun. Þannig kostar
Fortnite x Balenciaga hettupeysa
um 95 þúsund íslenskar, stutt-
ermabolur 65 þúsund og gallajakki
um 170 þúsund krónur.
Gefur tón fyrir framtíðina
Með samstarfinu fá báðir aðilar
nokkuð fyrir sinn snúð. Það markar
fyrstu hátískuskinn Fortnite og
fást fjögur Bal enci aga-dress á fjórar
vinsælar persónur, þau Doggo,
Ramirez, Knight og Banshee.
Frá því í byrjun vikunnar hafa
spilarar til dæmis getað unnið sér
inn Balenciaga-góss í bakpoka
og fengið frí sprey, en annað þarf
að kaupa og er dýrasta flíkin í
Balenciaga-verslun leiksins á 1.500
V-Bucks, eða um 1.600 krónur.
Útspil Fortnite og Balenciaga
gæti opnað flóðgáttir frekara
tískusamstarfs og ekki ólíklegt
að söguhetjur tölvuleikja klæðist
ferskri hátísku í framtíðinni. ■
Balenciaga sýnir
hátísku í Fortnite
Íslensku TARAMAR húðvörurnar hafa
unnið til átján alþjóðlegra verðlauna
TARAMAR vörurnar eru þróaðar og framleiddar á Íslandi en þær byggja á þangi og lífrænt
ræktuðum jurtum sem koma alls staðar að af landinu. Ár hvert er mikið magn jurta og þangs
unnið með sérstökum aðferðum sem gera TARAMAR vörurnar óvenjuvirkar og hreinar. 2
Júlía Stefánsdóttir og Ragnhildur Einarsdóttir taka á móti jurtum frá Hæðarenda og undirbúa þær fyrir þurrkferlið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR