Fréttablaðið - 23.09.2021, Page 20
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir,
elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s.
550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 |
Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir,
thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is,
s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, jo
hannwaage@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Næturkremið frá TARAMAR hefur
farið sigurför um heiminn en þetta
sérstaka krem hefur unnið gull- og
silfurverðlaun fyrir gæði, hrein-
leika og virkni í fjórum alþjóðleg-
um samkeppnum. Næturkremið
hlaut meðal annars gullverðlaun
í bæði skandinavísku og bresku
Global Makeup Awards 2020 og
2021, silfurverðlaun í Green Global
Makeup Awards og silfurverðlaun
sem besta andlitskremið hjá Free
From Skincare Awards 2021, segir
Guðrún Marteinsdóttir, annar
stofnenda og framkvæmdastjóri
fyrirtækisins. „Íslenskir neyt-
endur eru svo sannarlega sammála
þessum úrslitum og í dag nota
hundruð Íslendinga, bæði konur
og karlar, þetta krem á hverjum
degi.“
Hún segir að þótt næturkremið
gagnist vel bæði sem dag- og næt-
urkrem þá hafi grunnhugmyndin
að þessari vöru verið að skapa
krem sem aðstoðaði við hreinsun
og uppbyggingu húðarinnar
sem fram fer á nóttunni. „Þann-
ig hjálpar næturkremið húðinni
við að losa út úrgangsefnin, draga
úr rakatapi, stoppa oxun, styrkja
kollagenmyndun og efla bandvefs-
tengingar sem halda hinum mis-
munandi húðlögum þétt saman.“
Lífvirku efnin vinna með
húðfrumurnar
Næturkremið inniheldur útdrætti
úr íslensku þangi, lífrænt rækt-
uðum fjólum og augnfró. „Líf-
virku efnin úr þanginu vinna með
frumurnar á margvíslegan hátt,
meðal annars með því að stoppa
niðurbrot á kollageni um leið
og þau draga úr oxun og hindra
skaðleg áhrif sindurefna. Fjólurnar
og augnfróin eru valin í þetta krem
því lífvirku efnin í þessum jurtum
hafa einstaka getu til að byggja
upp raka í húðinni, efla frumu-
virkni og styrkja frumuhimnur.“
Auk þessa inniheldur nætur-
kremið ákaflega góð peptíð sem
hafa áhrif á tengingar á milli húð-
laganna. Peptíðin örva myndun
eggjahvítuefnanna integrin og
laminin, sem eru mikilvæg í að
halda þessum tengingum góðum,
bætir Guðrún við. „Þannig er
minni hætta á að húðin verði slöpp
og fari að síga.“
Samhljómur efna hefur
undursamleg áhrif á húðina
Eitt af því sem gerir TARAMAR
vörurnar svo sérstakar, að sögn
Guðrúnar, er hinn fullkomni
samhljómur á meðal hinna nátt-
úrulegu efna sem eru í vörunum.
„Margir gera sér ekki grein fyrir
því að lífvirkni er hugtak sem
stendur fyrir tíðni og orkubirtingu
náttúrulegra mólekúla og sam-
einda.“
Frá því TARAMAR var sett á fót
hafa stofnendur þess, Guðrún og
Kristberg Kristbergsson, stundað
rannsóknir á tíðni náttúrulegra
efna. Strax í upphafi var markmið
að velja efnin saman þannig að þau
mynduðu samhljóm (e. synergy),
segir Guðrún. „Þetta er eitthvað
sem finnst mjög sjaldan í vörum á
markaði og framleiðendur virðast
ekki vera meðvitaðir um mikil-
vægi þessara þátta. Þannig má oft
sjá efni saman í vöru sem vinna
á móti hvert öðru og geta jafn-
vel dregið úr virkni annarra efna
sem sett eru í formúluna. Einnig
er algengt að sjá formúlur sem eru
samsettar úr gríðarlega miklum
fjölda efna sem veldur því að tíðni
formúlunnar verður ruglingsleg og
jafnvel óþægileg.“
Framkallar ánægju og betri
líðan hjá neytendum
Hún segir rannsóknir þeirra
Íslensku jurt
irnar morgunfrú
og rauðsmári
eru á meðal
þeirra lækninga
jurta sem gera
TARAMAR vör
urnar lífvirkar
og einstaklega
góðar fyrir
húðina. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
Framleiðsluteymi TARAMAR (frá vinstri): Sólrún Anna Símonardóttir, Ragnhildur Einarsdóttir, Guðrún Marteinsdóttir,
Kristberg Kristbergsson og Júlía Stefánsdóttir. MYND/AÐSEND
Þannig hjálpar
næturkremið
húðinni við að losa út
úrgangsefnin, draga úr
rakatapi, stoppa oxun,
styrkja kollagenmyndun
og efla bandvefstenging-
ar sem halda hinum
mismunandi húðlögum
þétt saman.
Guðrún Marteinsdóttir
benda til að náttúrulegar vörur
sem hafi góðan samhljóm hafi
betri virkni og skapi betri líðan
hjá neytendum. „Því meira sem
við aukum skilning okkar á tíðni
og sviði mólekúlanna, því betur
erum við í stakk búin til að gera
vöru sem í raun heldur uppi sam-
ræðum við húðina. Við vitum
betur núna að húðin býr yfir sínu
eigin hormónakerfi og að efna-
skipti yfir húðina byggja meðal
annars á örfínum raf boðum í
frumuhimnum og innra umhverfi
frumanna. Með því að hanna
vöru sem fellur rétt að þessum
raf boðum þá nálgumst við hina
fullkomnu vöru fyrir húðina. Við
teljum að neytendur finni þetta
þó þeir geri sér ekki grein fyrir
því en við eigum óvenjumargar
umsagnir þar sem fólk talar um
hvað vörurnar framkalli mikla
vellíðan og gleði.“
Hátíðartilboð vegna
góðs árangurs
Móttökurnar á TARAMAR vör-
unum og ekki síst næturkreminu
hafa verið stórkostlegar. „Við hjá
TARAMAR viljum þakka íslensk-
um neytendum og íslenskri nátt-
úru fyrir allar gjafirnar og þær frá-
bæru undirtektir sem TARAMAR
vörurnar hafa fengið hér heima.
Með þetta í huga og til að fagna
hinum glæsilega árangri sem
næturkremið hefur náð á erlendri
grund þá verður sérstakt tilboð á
heimasíðu TARAMAR, taramar.is,
og hjá Lyfjaveri, Íslandsapóteki og
Hagkaup í Kringlunni, Smáranum,
Garðabæ og á Akureyri. Til-
boðið er þannig að þú kaupir eitt
TARAMAR augnkrem og færð með
sem kaupauka verðlaunanætur-
kremið okkar í fullri stærð.“ ■ww
Sindurefni
Sindurefni eru óstöðug efni sem geta valdið skaða á húð og líkama.
Þessi efni eru óstöðug því þau vantar rafeindir í ysta hjúp móle
kúlanna. Til að vega upp á móti þessu þá ráðast þau á heilbrigða
vefi og draga til sín rafeindir frá lifandi frumum og valda þeim um
leið skaða. Þessi framgangur verður að keðjuverkun sem veldur enn
meiri skaða og hraðar öldrun húðarinnar. Til að stoppa þessa keðju
verkun þarf andoxunarefni. Íslensku þörungarnir eru einstaklega
öflugir þegar kemur að þessu en þeir innihalda andoxunarefni sem
geta gefið frá sér rafeindir og þannig núllað út áhrif sindurefnanna.
2 kynningarblað A L LT 23. september 2021 FIMMTUDAGUR