Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 20
Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit­ stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, jo­ hannwaage@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Næturkremið frá TARAMAR hefur farið sigurför um heiminn en þetta sérstaka krem hefur unnið gull- og silfurverðlaun fyrir gæði, hrein- leika og virkni í fjórum alþjóðleg- um samkeppnum. Næturkremið hlaut meðal annars gullverðlaun í bæði skandinavísku og bresku Global Makeup Awards 2020 og 2021, silfurverðlaun í Green Global Makeup Awards og silfurverðlaun sem besta andlitskremið hjá Free From Skincare Awards 2021, segir Guðrún Marteinsdóttir, annar stofnenda og framkvæmdastjóri fyrirtækisins. „Íslenskir neyt- endur eru svo sannarlega sammála þessum úrslitum og í dag nota hundruð Íslendinga, bæði konur og karlar, þetta krem á hverjum degi.“ Hún segir að þótt næturkremið gagnist vel bæði sem dag- og næt- urkrem þá hafi grunnhugmyndin að þessari vöru verið að skapa krem sem aðstoðaði við hreinsun og uppbyggingu húðarinnar sem fram fer á nóttunni. „Þann- ig hjálpar næturkremið húðinni við að losa út úrgangsefnin, draga úr rakatapi, stoppa oxun, styrkja kollagenmyndun og efla bandvefs- tengingar sem halda hinum mis- munandi húðlögum þétt saman.“ Lífvirku efnin vinna með húðfrumurnar Næturkremið inniheldur útdrætti úr íslensku þangi, lífrænt rækt- uðum fjólum og augnfró. „Líf- virku efnin úr þanginu vinna með frumurnar á margvíslegan hátt, meðal annars með því að stoppa niðurbrot á kollageni um leið og þau draga úr oxun og hindra skaðleg áhrif sindurefna. Fjólurnar og augnfróin eru valin í þetta krem því lífvirku efnin í þessum jurtum hafa einstaka getu til að byggja upp raka í húðinni, efla frumu- virkni og styrkja frumuhimnur.“ Auk þessa inniheldur nætur- kremið ákaflega góð peptíð sem hafa áhrif á tengingar á milli húð- laganna. Peptíðin örva myndun eggjahvítuefnanna integrin og laminin, sem eru mikilvæg í að halda þessum tengingum góðum, bætir Guðrún við. „Þannig er minni hætta á að húðin verði slöpp og fari að síga.“ Samhljómur efna hefur undursamleg áhrif á húðina Eitt af því sem gerir TARAMAR vörurnar svo sérstakar, að sögn Guðrúnar, er hinn fullkomni samhljómur á meðal hinna nátt- úrulegu efna sem eru í vörunum. „Margir gera sér ekki grein fyrir því að lífvirkni er hugtak sem stendur fyrir tíðni og orkubirtingu náttúrulegra mólekúla og sam- einda.“ Frá því TARAMAR var sett á fót hafa stofnendur þess, Guðrún og Kristberg Kristbergsson, stundað rannsóknir á tíðni náttúrulegra efna. Strax í upphafi var markmið að velja efnin saman þannig að þau mynduðu samhljóm (e. synergy), segir Guðrún. „Þetta er eitthvað sem finnst mjög sjaldan í vörum á markaði og framleiðendur virðast ekki vera meðvitaðir um mikil- vægi þessara þátta. Þannig má oft sjá efni saman í vöru sem vinna á móti hvert öðru og geta jafn- vel dregið úr virkni annarra efna sem sett eru í formúluna. Einnig er algengt að sjá formúlur sem eru samsettar úr gríðarlega miklum fjölda efna sem veldur því að tíðni formúlunnar verður ruglingsleg og jafnvel óþægileg.“ Framkallar ánægju og betri líðan hjá neytendum Hún segir rannsóknir þeirra Íslensku jurt­ irnar morgunfrú og rauðsmári eru á meðal þeirra lækninga­ jurta sem gera TARAMAR vör­ urnar lífvirkar og einstaklega góðar fyrir húðina. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ERNIR Framleiðsluteymi TARAMAR (frá vinstri): Sólrún Anna Símonardóttir, Ragnhildur Einarsdóttir, Guðrún Marteinsdóttir, Kristberg Kristbergsson og Júlía Stefánsdóttir. MYND/AÐSEND Þannig hjálpar næturkremið húðinni við að losa út úrgangsefnin, draga úr rakatapi, stoppa oxun, styrkja kollagenmyndun og efla bandvefstenging- ar sem halda hinum mismunandi húðlögum þétt saman. Guðrún Marteinsdóttir benda til að náttúrulegar vörur sem hafi góðan samhljóm hafi betri virkni og skapi betri líðan hjá neytendum. „Því meira sem við aukum skilning okkar á tíðni og sviði mólekúlanna, því betur erum við í stakk búin til að gera vöru sem í raun heldur uppi sam- ræðum við húðina. Við vitum betur núna að húðin býr yfir sínu eigin hormónakerfi og að efna- skipti yfir húðina byggja meðal annars á örfínum raf boðum í frumuhimnum og innra umhverfi frumanna. Með því að hanna vöru sem fellur rétt að þessum raf boðum þá nálgumst við hina fullkomnu vöru fyrir húðina. Við teljum að neytendur finni þetta þó þeir geri sér ekki grein fyrir því en við eigum óvenjumargar umsagnir þar sem fólk talar um hvað vörurnar framkalli mikla vellíðan og gleði.“ Hátíðartilboð vegna góðs árangurs Móttökurnar á TARAMAR vör- unum og ekki síst næturkreminu hafa verið stórkostlegar. „Við hjá TARAMAR viljum þakka íslensk- um neytendum og íslenskri nátt- úru fyrir allar gjafirnar og þær frá- bæru undirtektir sem TARAMAR vörurnar hafa fengið hér heima. Með þetta í huga og til að fagna hinum glæsilega árangri sem næturkremið hefur náð á erlendri grund þá verður sérstakt tilboð á heimasíðu TARAMAR, taramar.is, og hjá Lyfjaveri, Íslandsapóteki og Hagkaup í Kringlunni, Smáranum, Garðabæ og á Akureyri. Til- boðið er þannig að þú kaupir eitt TARAMAR augnkrem og færð með sem kaupauka verðlaunanætur- kremið okkar í fullri stærð.“ ■ww Sindurefni Sindurefni eru óstöðug efni sem geta valdið skaða á húð og líkama. Þessi efni eru óstöðug því þau vantar rafeindir í ysta hjúp móle­ kúlanna. Til að vega upp á móti þessu þá ráðast þau á heilbrigða vefi og draga til sín rafeindir frá lifandi frumum og valda þeim um leið skaða. Þessi framgangur verður að keðjuverkun sem veldur enn meiri skaða og hraðar öldrun húðarinnar. Til að stoppa þessa keðju­ verkun þarf andoxunarefni. Íslensku þörungarnir eru einstaklega öflugir þegar kemur að þessu en þeir innihalda andoxunarefni sem geta gefið frá sér rafeindir og þannig núllað út áhrif sindurefnanna. 2 kynningarblað A L LT 23. september 2021 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.