Fréttablaðið - 23.09.2021, Side 25
CoreData hug-
búnaðurinn upp-
fyllir kröfur um ISO
27001 og fer í gegnum
reglulegar öryggispróf-
anir til að tryggja ströng-
ustu öryggiskröfur.
CoreData stafrænt
vinnusvæði saman-
stendur af nokkrum
lausnum sem eru einföld
í innleiðingu, hvort sem
þú vilt lausn með raf-
rænum undirritunum
fyrir málaskráa- og
skjalastjórnun, stjórnar-
vefgátt, umsóknakerfi,
gagnaherbergi eða samn-
ingakerfi.
CoreData Solution er hug-
búnaðar- og þekkingarfyrir-
tæki. Fyrirtækið sérhæfir
sig í stjórnun og varðveislu
upplýsinga og gagna. Í boði
eru fjölbreyttar og notenda-
vænar lausnir.
„Öll fyrirtæki og stofnanir sem
vilja vera skilvirkari og með
öfluga verkefna- og upplýsinga-
stjórnun geta nýtt sér CoreData,
sem er í grunninn málaskráa- og
skjalakerfi fyrir rafræna geymslu
gagna og skjala. Við bjóðum upp
á fjölbreyttar og notendavænar
lausnir sem henta þeim sem vilja
spara tíma og lækka kostnað.
Stafrænt vinnusvæði CoreData
samanstendur af lausnum sem eru
einfaldar í innleiðingu,hvort sem
leitað er eftir lausn fyrir mála-
skráa- og skjalastjórnun, rafrænar
undirritanir, stjórnarvefgátt,
umsóknakerfi, gagnaherbergi eða
samningakerfi.
Hugbúnaðinn er auðvelt að
aðlaga að öllum stærðum fyrir-
tækja og hann er afar notenda-
vænn,“ segir Kjartan Hrafn
Kjartansson, vörustjóri CoreData
Solutions. Lausnir CoreData gera
viðskiptavinum kleift að hámarka
afköst, sama af hvaða stærðar-
flokki félögin eru. Á sama tíma
eru þær einfaldar og þægilegar í
notkun,“ segir Kjartan.
Ekki þarf sérstakan búnað
„Einn af kostum CoreData
hugbúnaðarins er að ekki þarf
sérstakan búnað við innleiðingu
hans, en við rekum hugbúnaðinn
alfarið fyrir viðskiptavini okkar.
Með CoreData hugbúnaðinum
fylgja samþættingar, eins og
sýndardrif og tölvupóstur, ásamt
samþættingu við aðra þjónustu-
aðila líkt og þjóð- og héraðsskjala-
söfn, Dokobit, Auðkenni, signet
transfer og Teams, allt til að hjálpa
viðskiptavinum okkar að varð-
veita lokaeintak upplýsinga sinna í
CoreData lausnum.
Þar sem CoreData styður við
margþætta og fjölbreytta starfsemi
fyrirtækja, höfum við eflt vöru-
þróun á API-lagi hugbúnaðarins
til að einfalda viðskiptavinum
okkar að samþætta við önnur kerfi
hjá sér. Slík samþætting leiðir til
sparnaðar í tíma og peningum, þar
sem gögn flæða sjálfkrafa á milli
kerfa, sem styður við hagræðingu í
rekstri.“
Pappírslaus vinnustaður
„Þeir sem vilja bæta umhverfið
og verða pappírslaus vinnustaður
ættu tvímælalaust að velja Core-
Data hugbúnaðinn, þar sem hann
uppfyllir kröfur þjóð- og héraðs-
skjalasafna um rafræn skil og utan-
umhald rafrænna gagna. Á sama
tíma geta félög nýtt sér hugbúnað-
inn til rafrænnar undirritunar,
samninga og margs konar skjala.
Eftir samþættingu félagsins við
Dokobit geta alþjóðleg fyrirtæki
nýtt hugbúnaðinn þar sem undir-
ritun aðila frá fjölmörgum þjóðum
geta notað fullgilda rafræna undir-
ritun. Hvert rafrænt undirritað
skjal sparar bílferðir, umstang,
tíma og fyrirhöfn þeirra aðila
sem eiga í hlut. Að saman skapi
spara rafræn skjöl og umsóknir
tíma starfsmanna við vinnslu,
stytta afgreiðslutíma og stuðla að
umhverfisvænni rekstri,“ segir
Kjartan og bætir við að með Core-
Data hafi félagið fullkomna stjórn
á aðgangsstýringum upplýsinga og
gagna, þar sem aðgangsstýringin er
skipulögð og undirbúin í upphafi
innleiðingar.
„Öllum ytri aðilum sem þurfa
aðgang að skjölum er gert það ein-
falt með CoreData lausninni. Dæmi
um ytri aðila eru viðskiptavinir,
endurskoðendur eða birgjar. Þú
sparar því ekki einungis dýrmætan
tíma ytri aðila, þú tryggir öruggt
aðgengi gagna í verkefninu með því
að deila því með þeim með örugg-
um hætti,“ segir Kjartan og bætir
Einfaldar lausnir sem hámarka afköst
Sérfræðingar hjá CoreData leggja sig fram um að aðstoða viðskiptavini á faglegan hátt til að auðvelda alla vinnslu skráa, skjala og gagna. MYND/AÐSEND
við að viðskiptavinir CoreData séu
af öllum stærðum og gerðum. „Við
erum með opinbera aðila sem og
fyrirtæki í einkageiranum,“ segir
Kjartan og bætir við: „Viðskipta-
vinir okkar eru meðal annars
félög í innflutningi og útflutningi,
heildverslanir, fasteignafélög,
skólar, lífeyrissjóðir, dómstólar,
lögfræðistofur, arkitektastofur og
ríkisstofnanir,“ segir hann.
„Hugbúnaðurinn er sérstaklega
einfaldur og aðgengilegur í notkun
og mikil vinna hefur verið lögð í
það að tryggja góða upplifun not-
enda. Við erum í nánu sambandi
við viðskiptavini okkar sem eru
sífellt að leita leiða til að einfalda og
rafvæða viðskiptaferla hjá sér.“
Miklar framfarir og þróun
„Helstu áskoranir sem ráðgjafar
okkar standa frammi fyrir eru að
vera með réttar lausnir, á réttum
tíma og fyrir réttu viðskiptavinina.
Tæknin breytist hratt og við
þurfum að fylgja því eftir með því
að vera ávallt til þjónustu reiðubú-
in með ráðgjöf sem hentar hverju
sinni. Þessu til stuðnings höfum
við passað að hafa vel menntaða
ráðgjafa sem og sérfræðinga með
breiða þekkingu úr viðskipta-
lífinu til stuðnings við síbreytileg
verkefni þar sem viðskiptavinir
CoreData Solutions eru úr ólíkum
áttum.
Viðskiptavinir CoreData Sol-
utions sækja margvíslega þjónustu
til okkar, hvort sem um ræðir
kennslu á hugbúnaðinn eða ráðgjöf
til að nýta lausnirnar sem best. Við
veitum ráðgjöf í breytingastjórnun
fyrir stýringu upplýsinga og gagna,
ásamt ráðgjöf í tæknilega flóknum
verkefnum, teymum og ferlum. Við
erum til taks þegar viðskiptavinir
okkar þurfa á okkur að halda en
viljum á sama tíma gera viðskipta-
vini okkar sjálfstæða í notkun á
hugbúnaðinum,“ upplýsir Kjartan
og bætir við: „Við bjóðum upp á
kennslu fyrir alla notendur sem og
að efla ofurnotendura sem geta þá
annast almenna kennslu til ann-
arra notenda kerfisins.
Nýlega gekk Kristíanna Jessen,
bókasafns- og upplýsingafræð-
ingur til liðs við okkur og er hún
með ráðgjöf til viðskiptavina okkar
um skjalastýringu og meðhöndlun
gagna í hugbúnaðinum. Nú geta
viðskiptavinir okkar fengið aðgang
að skjalastjóra, sem hentar sérlega
vel fyrir minni félög sem þurfa ekki
heilt stöðugildi í skjalastýringu.
Það skiptir okkur máli að geta stutt
við rekstur viðskiptavina okkar
og hjálpað þeim að ná árangri í
rekstri.“
Góð ráðgjöf í upphafi
„Þegar viðskiptavinir okkar leita
til okkar eftir ráðgjöf, byrjum við
yfirleitt á vinnustofu með þeim.
Lengd vinnustofunnar fer eftir
eðli verkefnanna. Við tökum síðan
saman kjarnateymi hjá okkur til
að tryggja að rétt skráðar kröfur
séu til staðar fyrir frekari vinnslu.
Tilboð með umfangi er útbúið fyrir
viðskiptavininn til samþykktar,
áður en byrjað er á verkinu. Við
vinnslu verkefna hjá okkur gætum
við þess að vera ávallt í miklum
samskiptum við viðskiptavininn
til að tryggja að verkefnið sé rétt
unnið og afhending verði sam-
kvæmt væntingum,“ segir Kjartan
og bendir á að fram undan séu
krefjandi og skemmtileg verkefni
með viðskiptavinum.
„Einnig verður áframhaldandi
þróun á lausnunum okkar. Helstu
nýjungar okkar í vöruþróun snúa
að samningakerfinu og forritunar-
viðmóti (API-lagi) hugbúnaðarins
til að styðja enn betur við samþætt-
ingar við önnur kerfi. Þar sem tíma-
sparnaður viðskiptavina er okkur
hugleikinn viljum vera í nánu sam-
starfi við notendur og læra af þeirra
upplifun af kerfinu.“ n
kynningarblað 3FIMMTUDAGUR 23. september 2021 UPPLÝSINGATÆKNI