Fréttablaðið - 23.09.2021, Síða 32
Hugbúnaðarfyrirtækið Dokobit
þróar hugbúnað fyrir rafrænar
undirskriftir og hefur undan-
farin ár verið í örum vexti. Í dag
styður Dokobit rafræn skilríki frá
14 löndum í Evrópu og þjónustar
fjölmörg íslensk fyrirtæki og ríkis-
stofnanir.
Stór hluti Íslendinga hefur notað
Dokobit án þess að hafa vitneskju
um það hvernig Dokobit kemur
við sögu, meðal annars sem hluta
af stafrænum ferlum hjá viðskipta-
bönkum, tryggingafélögum, fjar-
skiptaþjónustu, endurskoðendum,
vegna bíla- eða fasteignaviðskipta.
Meðal þeirra fyrirtækja sem Doko-
bit þjónustar eru Íslandsbanki,
Reykjavíkurborg, Landsvirkjun,
KPMG, Vodafone, Stafrænt Ísland,
Menntasjóður námsmanna, Origo
og ótal fleiri. Nýlega sameinaði
Dokobit krafta sína með norska
fyrirtækinu Signicat sem er
leiðandi í rafrænni traustþjónustu
í Evrópu.
Stærst á Íslandi
„Fyrir tíu árum hófum við vegferð
okkar í rafrænum undirskriftum
og vildum breyta því hvernig
fyrirtæki eiga viðskipti með undir-
ritun skjala. Og það tókst! Í dag
er Dokobit stærsti lausnaraðili
rafrænna undirskrifta á Íslandi og
í Eystrasaltslöndunum. Til þess
að halda samkeppnishæfni í ört
vaxandi umhverfi rafrænna undir-
skrifta er sérstaklega mikilvægt að
geta brugðist hratt við. Jafnvel með
nauðsynlegri sérfræðiþekkingu
og mannafli getur tíminn sem það
tekur að koma nýjum lausnum á
markað verið einn mikilvægasti
þátturinn sem stýrir hvaða
fyrirtæki ná árangri og framtíðar-
horfum þeirra,“ segir Ólafur Páll
Einarsson, framkvæmdastjóri
Dokobit á Íslandi.
„Markmið okkar hefur alltaf
verið að verða stærst í Evrópu á
sviði rafrænna undirskrifta og með
Signicat munum við ná því mun
hraðar – með því að nýta hinn
mikla fjölda auðkenningarlausna
Signicat munum við geta einbeitt
okkur að nýsköpun og þróun á
lausnum fyrir rafrænar undir-
skriftir.“
Signicat er eins og Dokobit einn
af fáum fullgildum traustþjón-
ustuveitendum sem eru skráðir á
Traustlista Evrópusambandsins.
„Í dag eru aðeins tveir aðilar á
Íslandi, Auðkenni og Dokobit,
sem hafa lokið eIDAS vottun sem
fullgildir traustþjónustuveitendur,
til staðfestingar um samræmi við
lög nr. 55/2019 (eIDAS reglugerðin)
sem gilda um rafrænar undir-
skriftir og aðrar traustþjónustur.
Í dag eru að minnsta kosti tvö
dómsmál í vinnslu í íslenska
réttar kerfinu sem tengjast raf-
rænum undirskriftum og nýttu
málsaðilar fullgilda staðfestingar-
þjónustu Dokobit í þeim, til þess
að sýna fram á hvort undirskrift-
irnar mættu öllum viðeigandi
kröfum eIDAS og væru þar með
gildar eða ekki,“ upplýsir Ólafur
og bætir við: „Í skilgreiningu á
rafrænum undirskriftum, sam-
kvæmt eIDAS-reglugerðinni, eru
eingöngu fullgildar, rafrænar
undirskriftir jafnar handrituðum
undirskriftum og hafa þar af
leiðandi óyggjandi réttaráhrif. Það
getur þess vegna reynst dýrkeypt
að veita afslátt af öryggi þegar
rafrænar undirskriftir eru notaðar
og dómafordæmi um að dóm-
stólar hafi hafnað skjölum með
rafrænum undirskriftum sem eru
ekki útbúnar á fullnægjandi hátt,“
bendir hann á.
Ný rafræn skilríki
„Á þessu ári keypti Signicat einnig
tvö önnur fyrirtæki, Encap Secu-
rity í Noregi og Electronic IDen-
tity frá Spáni, sem er leiðandi í
heiminum á sviði myndgreininga
(fyrir skilríkjaafhendingu) og mun
það enn frekar styrkja stöðu okkar
í Evrópu í fjártæknilausnum á
RegTech-markaði. Það er tímafrekt
verkefni að bæta við stuðningi við
rafræn skilríki frá öllum löndum
Evrópu og ein stærsta hindrunin
fyrir áframhaldandi vexti. Lausnin
fólst í að eignast okkar eigin raf-
rænu skilríki með því að kaupa
útgáfuaðila fyrir rafræn skilríki
sem hafði þegar lokið eIDAS-
vottun.
Stefnan er alls ekki að fara í
samkeppni við Auðkenni við
útgáfu rafrænna skilríkja á Íslandi,
heldur munum við áfram nota þau
rafrænu skilríki sem við höfum
nú þegar stuðning við. Hins vegar
mun þetta þýða, í tilfellum þar sem
til dæmis íslenskur aðili þarf að fá
skjal undirritað á móti erlendum
aðila sem er fyrir ekki með nein
rafræn skilríki, að þá getum við
leyst það á einfaldan og öruggan
hátt,“ segir Ólafur.
„Í sumar fór fram ríkisútboð
fyrir rammasamning ríkis og
sveitarfélaga í útboði um raf-
rænar undirskriftir og traust-
þjónustu, þar sem Dokobit var eini
bjóðandinn sem gat mætt öllum
kröfum ríkisins og fékk hæstu
einkunn fyrir gæði lausnarinnar.
Þegar kemur að því að velja lausn
fyrir rafrænar undirskriftir, eru
fjölmörg atriði sem hafa ber í huga
eins og t.d. öryggi lausnarinnar og
fylgni við kröfur eIDAS reglugerð-
arinnar, til að tryggja að undir-
skriftirnar hafi full réttaráhrif.
Fyrir aðila sem hafa áhuga á að
vita meira geta þeir haft samband
við viðskiptastjóra í gegnum net-
fangið: ragna@dokobit.is ■
Dokobit sameinast Signicat
Ólafur Páll Einarsson, framkvæmdastjóri Dokobit á Íslandi, segir notkun rafrænna undirskrifta hafa margfaldast á einu ári.
Markmið okkar
hefur alltaf verið að
verða stærst í Evrópu á
sviði rafrænna undir-
skrifta og með Signicat
munum við ná því mun
hraðar.
„If you want to go
fast, go alone. If you
want to go far, go toget-
her.“
– Steve Jobs
10 kynningarblað 23. september 2021 FIMMTUDAGURUPPLÝSINGATÆKNI