Fréttablaðið - 23.09.2021, Qupperneq 33
Covid-faraldurinn hefur
gjörbreytt vinnulagi fólks og
flýtt fyrir tæknilegri þróun
og breytingum sem ann-
ars hefðu tekið lengri tíma.
Léttskýið er nýr kostur frá
Origo sem hentar litlum og
meðalstórum fyrirtækjum í
tæknilegu rekstrarumhverfi.
„Krafan um að fólk geti unnið hvar
og hvenær sem er hefur aukist til
muna og hefur sú þróun ýtt enn
frekar undir stafrænt vöruframboð
og sjálfvirknivæðingu,“ segir Ásta
Guðmundsdóttir, forstöðumaður
kerfisreksturs og framlínuþjónustu
hjá Origo. „Við sjáum þessa þróun
hjá Origo þar sem viðskipta-
vinir vilja í miklum mæli hjálpa
sér sjálfir. Notkun á sjálfvirkum
lausnum hjá okkur hefur vaxið
um allt að 70 prósent frá upphafi
Covid-faraldursins,“ segir hún.
Fyrirtækin fæðast í skýinu
Ásta segir að faraldurinn hafi gjör-
breytt afstöðu fólks til þeirrar sjálf-
virkni og einfaldleika sem skýja-
lausnir hafa yfir að ráða. „Í raun var
þörfin ekki til staðar fyrr en fólk sat
eitt heima í fjarvinnu. Það þurfti
að gera breytingar á hugsunar-
hætti, vinnulagi og læra nýja hluti.
Þessi breyting hefur fylgt fólki nú
þegar það snýr aftur á skrifstofuna
í meira mæli en áður. Það vill klár-
lega hafa tækifæri til þess að sækja
lausnir þegar því hentar og án þess
að þurfa að setja sig inn í flókin
tæknimál eða bíða eftir aðstoð
frá öðrum. Svo er það hin hliðin
á peningnum. Mörg ný stafræn
fyrirtæki, svo sem netverslanir af
ýmsum toga, hafa litið dagsins ljós
í faraldrinum í kjölfar breytingar á
neyslumynstri. Þessi fyrirtæki hafa
öll fæðst í skýinu og þau vilja geta
bjargað sér sjálf með stafrænum en
öruggum leiðum.“
Einfaldari lausn fyrir smærri
fyrirtæki
Ásta segir að þessi nýja afstaða
fólks kalli á breytingar hjá tækni-
fyrirtækjum eins og Origo. „Við
erum á fullri ferð í að þróa einfaldar
lausnir fyrir viðskiptavini okkar.
Þar má nefna Léttskýið, sem hentar
sérstaklega litlum og meðalstórum
fyrirtækjum og ekki síst sprota-
fyrirtækjum. Lausnin er sérsniðin
að þeim fyrirtækjum sem nýta sér
Microsoft 365 og vilja útvista utan-
umhaldi á tölvubúnaði og skýja-
þjónustu,“ segir Ásta.
Hún bætir við að Léttskýið sé
afrakstur djúps samtals við við-
skiptavini þar sem einfaldleiki og
öryggi séu í fyrirrúmi. „Við sjáum
að fyrirtæki vilja í auknum mæli
einbeita sér að því sem þau kunna
best og láta aðra um tæknimálin.
Þess vegna skiptir máli að hafa yfir
að ráða hagkvæmum lausnum eins
og Léttskýinu þar sem einfaldleiki,
öryggi, hraði og góð þjónusta ræður
ríkjum.
Viðskiptavinir fá aðgang að
sjálfsafgreiðslulausnum sem
varan hefur yfir að ráða og geta
í mörgum tilfellum leyst málin
Fólk vill meiri sjálfvirkni
Sara Sigurðar-
dóttir, hópstjóri
Viðskiptamiðju
Origo, og Ásta
Guðmunds-
dóttir, for-
stöðumaður
kerfisreksturs
og framlínu-
þjónustu Origo.
MYND/AÐSEND
Nú geta símar og tölvur
fengið framhaldslíf hjá Origo.
Ef viðskiptavinir koma með
gömlu tækin er hægt að
endurnýta þau eða farga því
sem ekki er hægt að nota
með umhverfisvænni hætti.
Hægt er að sjá hvort raftæki sé hæft
til endurnýtingar og hversu mikið
fæst fyrir það, hjá Origo. Endur-
nýta má snjallsíma, spjaldtölvur,
fartölvur, snjallúr og leikjatölvur.
„Hægt er að koma gömlu tækj-
unum til okkar og fólk getur fengið
inneignarnótu fyrir andvirði
tækisins hjá okkur,“ segir Sesselja
Þórunn Jónsdóttir, forstöðumaður
Búnaðarþjónustu hjá Origo.
Rótaðu í raftækjaskúffunni
„Það eiga allir gömul raftæki ofan í
skúffu sem þeir hafa ekki hent ein-
hverra hluta vegna. Það er einfalt
að frelsa gamla tækið úr skúffunni
og gefa því nýtt líf. Ef ekki er hægt
að endurnýta tækið sjáum við til
þess að því sé fargað á umhverfis-
vænan hátt,“ segir Sesselja.
Gömlu tækin fá framhaldslíf í Origo
Muhammad
Ahmad, Kristó-
fer Björnsson,
Hafdís Ragnars-
dóttir og Sig-
ríður Ásdís Þór-
hallsdóttir, eru
fólkið sem tekur
við búnaðinum í
Origo.
MYND/AÐSEND
þegar þeim hentar. Að öðrum kosti
geta þeir fengið aðstoð sérfræðinga
í Þjónustumiðju Origo. Origo er
með fjölda skýjasérfræðinga sem
geta brugðist hratt og örugglega
við þegar kallið frá viðskipta-
vini kemur. Við höfum stóraukið
þjónustu- og gæðaeftirlit fyrir þessa
viðskiptavini, þannig að þeir geta
reitt sig á að við bregðumst hratt og
örugglega við öllum þeirra ábend-
ingum og óskum,“ segir Ásta. n
Endurvinnsla
Allur notaður búnaður er sendur til
Foxway, sem er leiðandi fyrirtæki
í förgun og endurnýjun á gömlum
raftækjum. Gömlu raftækin taka
þátt í hringrásarhagkerfinu með
aðstoð Foxway, en markmið fyrir-
tækisins er að minnka sóun og
draga úr úrgangi með því að deila,
gera við, endurnota, endurfram-
leiða og endurvinna.
Öll förgun hjá Foxway er
umhverfisvæn og uppfyllir WEEE
(Waste Electrical and Electronic
Equipment) reglugerð frá Evrópu-
sambandinu og öll meðhöndlun
gagna er samkvæmt GDPR (Gene-
ral Data Protection Regulation). n
Það er einfalt að
frelsa gamla tækið
úr skúffunni og gefa því
nýtt líf. Ef ekki er hægt að
endurnýta tækið sjáum
við til þess að því sé
fargað á umhverfis-
vænan hátt.
Sesselja Þórunn
kynningarblað 11FIMMTUDAGUR 23. september 2021 UPPLÝSINGATÆKNI