Fréttablaðið - 23.09.2021, Side 34

Fréttablaðið - 23.09.2021, Side 34
Í alvarlegu rekstrar áfalli skiptir höfuðmáli að hafa vel skipulagða áætlun. Björn Orri Guðmundsson Íslensk fyrirtæki og stofn- anir eru ekki að standa sig nægjanlega vel á sviði þekk- ingar, viðbúnaðar og tækni- legrar getu, þegar kemur að öryggismálum fyrirtækja og stofnana. Syndis er í farar- broddi þegar kemur að ráð- gjöf varðandi netöryggismál. Samkvæmt svokölluðum Global Cyber Security Index, hjá Inter­ national Telecommunication Union, kemur fram að Ísland hafi bætt árangur sinn í netöryggismál­ um milli úttekta. Það er klárlega jákvæð þróun, segja þeir Ebenezer Böðvarsson öryggissérfræðingur og Björn Orri Guðmundsson, for­ stöðumaður viðskiptaþróunar hjá netöryggisfyrirtækinu Syndis, sem hefur um nokkurra ára skeið verið í fararbroddi hér á landi þegar kemur að ráðgjöf varðandi net­ öryggismál fyrirtækja og stofnana. Þeir finna vel fyrir auknum áhuga stjórnenda fyrirtækja og stofnana. „Þrátt fyrir það er það mat okkar að á öllum mælikvörð­ um sem skipta máli erum við ekki að standa okkur nægjanlega vel á sviði þekkingar, viðbúnaðar og tæknilegrar getu þegar kemur að öryggismálum fyrirtækja og stofnana, en Ísland er næst á eftir Rúanda í fyrrgreindri úttekt,“ segir Ebenezer. Ný heildræn og notendavæn áætlun um rekstrarsamfellu Nýlega setti Syndis á markað nýja vöru sem ber heitið Business continuity framework, sem má segja að sé heildræn og notenda­ væn áætlun til að styðjast við í alvarlegu rekstraráfalli, segir Björn Orri. „Í alvarlegu rekstrar­ áfalli skiptir höfuðmáli að hafa vel skipulagða áætlun. Við hjá Syndis höfum prófað viðbragð fjölmargra fyrirtækja með borðæfingum, nú eða komið inn í atburðarás þar sem viðbragðsáætlanir fyrirtækja eru ekki nægjanlega nothæfar til að bregðast við áföllum.“ Þeir segja að viðbragðsáætl­ anir fyrirtækja heppnist sjaldnast nægilega vel, en hvers vegna skyldi það vera? „Þetta er spurning sem starfsfólk Syndis spurði sig og eftir ítarlega greiningu á hvar áætlan­ irnar brotna, þróaði Syndis nýja nálgun sem án þess að umbylta því sem fyrir er gerir áætlanirnar auðveldari í notkun. Útkoman er heildræn og notendavæn áætlun sem hægt er að innleiða eða aðlaga því sem fyrir er og er því nógu heildræn fyrir mjög stórar stofn­ anir, en á sama tíma nógu einföld og notendavæn til að gagnast minni fyrirtækjum sem vilja geta brugðist við rekstraráföllum á skil­ virkan máta.“ SecDevOps er næsta þroskastig Fyrirtæki sem hafa tekið virkan þátt í hugbúnaðarþróun á undan­ förnum árum hafa í auknum mæli tileinkað sér vinnubrögð sem sam­ eina hugbúnaðarþróun og rekstur sem fylgja lykilreglunum sem eru skilgreindar með hlutdeild (e. ownership), sjálfvirkni vinnu­ flæðis (e. workflow automation) og skjótri endurgjöf (e. rapid feed­ back) sem er í daglegu tali kallað DevOps. „Eiginleikinn til að koma breyt­ ingum hraðar til viðskiptavina kemur með aukinni áherslu á að ganga úr skugga um að afhend­ ingin sé einnig örugg. Mörg fyrir­ tæki snúa sér til öryggisfyrirtækja eins og Syndis til að framkvæma öryggisprófanir, en fyrir f lest þess­ ara fyrirtækja eru slíkar úttektir framkvæmdar á síðari stigum þróunar og í sumum tilvikum eftir útgáfu, sem getur haft í för með sér mikinn kostnað eða jafnvel skaða Vel skipulögð áætlun skiptir höfuðmáli „Netárásum mun fjölga og tap vegna þeirra mun aukast,“ segir Ebenezer Böðvarsson, öryggissérfræðingur hjá netöryggisfyrirtækinu Syndis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Syndis hefur um nokkurra ára skeið verið í fararbroddi hér á landi þegar kemur að ráð- gjöf varðandi netöryggismál fyrirtækja og stofnana. fyrir fyrirtækið ef upp koma alvar­ legir öryggisveikleikar.“ SecDevOps er því næsta þroska­ stig og bætir ferlið við að samþætta bestu starfsvenjur og aðferðafræði öryggis við þróun og útgáfu, sem DevOps gerir mögulegt, bæta þeir við. „Syndis hefur þróað námskeið í öryggismálum fyrir þróunaraðila í formi stuttra fyrirlestra og æfinga sem gerðar eru í gegnum eigin hugbúnaðarlausn Syndis. Nám­ skeiðin eru til þess fallin að hjálpa fyrirtækjum sem vilja ná þessu þroskastigi til að kenna starfs­ fólki sínu fyrstu skrefin í notkun tóla og aðferðafræði, sem Syndis notar í raunverulegum öryggis­ prófunum.“ Breyttar kröfur viðskiptavina Auk fyrrnefndra nýjunga hefur Syndis styrkt stjórnendaráðgjöf sína, bætt við starfsfólki á þeim vettvangi og sett mikla vinnu í að þróa og innleiða nýjar vörur til að styðja við þá stefnu. „Hópurinn hefur tvöfaldast á þessu ári og auk þess höfum við aukið áherslu á stafræna öryggisþjónustu. Fyrirtæki og verslanir eru vön að vera með innbrotakerfi og myndavélakerfi í raunheimum, en nú hefur verslun og þjónusta færst gríðarlega mikið í stafræna þjón­ ustu og kröfur markaðarins eru að geta fengið sambærilega þjónustu í formi stafrænna öryggiskerfa og vöktunar. Það eru ekki mörg fyrir­ tæki í dag sem halda úti starfsemi án tölvukerfanna sinna og við bjóðum því upp á 24/7 vöktun og viðbragð við innbrotum og staf­ rænum skemmdarverkum.“ Netárásum mun fjölga Þeir eru sammála því að net­ öryggismál muni verða sífellt stærri hluti af rekstri fyrirtækja í nánustu framtíð, burtséð frá því hvort áhuginn fyrir því sé til staðar eða ekki. „Netárásum mun fjölga og tap vegna þeirra mun aukast. Samhliða þessum breytingum mun þekking aukast, en til þess að það gerist nægilega hratt þarf stöðuga fjárfestingu á mörgum vígvöllum svo við höldum í við þau lönd sem við alla jafnan berum okkur saman við. Það er mikil­ vægt að fylgjast með kerfum til að geta brugðist við með áhrifaríkum hætti þegar öryggisfrávik á sér stað og stór þáttur í fumlausu viðbragði er að hafa einfalda umgjörð og not­ endavæna ferla sem eru vel kynntir og æfðir.“ n 12 kynningarblað 23. september 2021 FIMMTUDAGURUPPLÝSINGATÆKNI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.