Fréttablaðið - 23.09.2021, Síða 34
Í alvarlegu
rekstrar áfalli
skiptir höfuðmáli að
hafa vel skipulagða
áætlun.
Björn Orri Guðmundsson
Íslensk fyrirtæki og stofn-
anir eru ekki að standa sig
nægjanlega vel á sviði þekk-
ingar, viðbúnaðar og tækni-
legrar getu, þegar kemur að
öryggismálum fyrirtækja og
stofnana. Syndis er í farar-
broddi þegar kemur að ráð-
gjöf varðandi netöryggismál.
Samkvæmt svokölluðum Global
Cyber Security Index, hjá Inter
national Telecommunication
Union, kemur fram að Ísland hafi
bætt árangur sinn í netöryggismál
um milli úttekta. Það er klárlega
jákvæð þróun, segja þeir Ebenezer
Böðvarsson öryggissérfræðingur
og Björn Orri Guðmundsson, for
stöðumaður viðskiptaþróunar hjá
netöryggisfyrirtækinu Syndis, sem
hefur um nokkurra ára skeið verið
í fararbroddi hér á landi þegar
kemur að ráðgjöf varðandi net
öryggismál fyrirtækja og stofnana.
Þeir finna vel fyrir auknum
áhuga stjórnenda fyrirtækja og
stofnana. „Þrátt fyrir það er það
mat okkar að á öllum mælikvörð
um sem skipta máli erum við ekki
að standa okkur nægjanlega vel
á sviði þekkingar, viðbúnaðar og
tæknilegrar getu þegar kemur
að öryggismálum fyrirtækja og
stofnana, en Ísland er næst á eftir
Rúanda í fyrrgreindri úttekt,“ segir
Ebenezer.
Ný heildræn og notendavæn
áætlun um rekstrarsamfellu
Nýlega setti Syndis á markað
nýja vöru sem ber heitið Business
continuity framework, sem má
segja að sé heildræn og notenda
væn áætlun til að styðjast við
í alvarlegu rekstraráfalli, segir
Björn Orri. „Í alvarlegu rekstrar
áfalli skiptir höfuðmáli að hafa vel
skipulagða áætlun. Við hjá Syndis
höfum prófað viðbragð fjölmargra
fyrirtækja með borðæfingum, nú
eða komið inn í atburðarás þar
sem viðbragðsáætlanir fyrirtækja
eru ekki nægjanlega nothæfar til
að bregðast við áföllum.“
Þeir segja að viðbragðsáætl
anir fyrirtækja heppnist sjaldnast
nægilega vel, en hvers vegna skyldi
það vera? „Þetta er spurning sem
starfsfólk Syndis spurði sig og eftir
ítarlega greiningu á hvar áætlan
irnar brotna, þróaði Syndis nýja
nálgun sem án þess að umbylta
því sem fyrir er gerir áætlanirnar
auðveldari í notkun. Útkoman er
heildræn og notendavæn áætlun
sem hægt er að innleiða eða aðlaga
því sem fyrir er og er því nógu
heildræn fyrir mjög stórar stofn
anir, en á sama tíma nógu einföld
og notendavæn til að gagnast
minni fyrirtækjum sem vilja geta
brugðist við rekstraráföllum á skil
virkan máta.“
SecDevOps er næsta þroskastig
Fyrirtæki sem hafa tekið virkan
þátt í hugbúnaðarþróun á undan
förnum árum hafa í auknum mæli
tileinkað sér vinnubrögð sem sam
eina hugbúnaðarþróun og rekstur
sem fylgja lykilreglunum sem eru
skilgreindar með hlutdeild (e.
ownership), sjálfvirkni vinnu
flæðis (e. workflow automation)
og skjótri endurgjöf (e. rapid feed
back) sem er í daglegu tali kallað
DevOps.
„Eiginleikinn til að koma breyt
ingum hraðar til viðskiptavina
kemur með aukinni áherslu á að
ganga úr skugga um að afhend
ingin sé einnig örugg. Mörg fyrir
tæki snúa sér til öryggisfyrirtækja
eins og Syndis til að framkvæma
öryggisprófanir, en fyrir f lest þess
ara fyrirtækja eru slíkar úttektir
framkvæmdar á síðari stigum
þróunar og í sumum tilvikum eftir
útgáfu, sem getur haft í för með sér
mikinn kostnað eða jafnvel skaða
Vel skipulögð áætlun skiptir höfuðmáli
„Netárásum mun fjölga og tap vegna þeirra mun aukast,“ segir Ebenezer Böðvarsson, öryggissérfræðingur hjá netöryggisfyrirtækinu Syndis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Syndis hefur
um nokkurra
ára skeið verið í
fararbroddi hér
á landi þegar
kemur að ráð-
gjöf varðandi
netöryggismál
fyrirtækja og
stofnana.
fyrir fyrirtækið ef upp koma alvar
legir öryggisveikleikar.“
SecDevOps er því næsta þroska
stig og bætir ferlið við að samþætta
bestu starfsvenjur og aðferðafræði
öryggis við þróun og útgáfu, sem
DevOps gerir mögulegt, bæta þeir
við. „Syndis hefur þróað námskeið
í öryggismálum fyrir þróunaraðila
í formi stuttra fyrirlestra og æfinga
sem gerðar eru í gegnum eigin
hugbúnaðarlausn Syndis. Nám
skeiðin eru til þess fallin að hjálpa
fyrirtækjum sem vilja ná þessu
þroskastigi til að kenna starfs
fólki sínu fyrstu skrefin í notkun
tóla og aðferðafræði, sem Syndis
notar í raunverulegum öryggis
prófunum.“
Breyttar kröfur viðskiptavina
Auk fyrrnefndra nýjunga hefur
Syndis styrkt stjórnendaráðgjöf
sína, bætt við starfsfólki á þeim
vettvangi og sett mikla vinnu í að
þróa og innleiða nýjar vörur til að
styðja við þá stefnu. „Hópurinn
hefur tvöfaldast á þessu ári og auk
þess höfum við aukið áherslu á
stafræna öryggisþjónustu.
Fyrirtæki og verslanir eru vön
að vera með innbrotakerfi og
myndavélakerfi í raunheimum, en
nú hefur verslun og þjónusta færst
gríðarlega mikið í stafræna þjón
ustu og kröfur markaðarins eru að
geta fengið sambærilega þjónustu
í formi stafrænna öryggiskerfa og
vöktunar. Það eru ekki mörg fyrir
tæki í dag sem halda úti starfsemi
án tölvukerfanna sinna og við
bjóðum því upp á 24/7 vöktun og
viðbragð við innbrotum og staf
rænum skemmdarverkum.“
Netárásum mun fjölga
Þeir eru sammála því að net
öryggismál muni verða sífellt stærri
hluti af rekstri fyrirtækja í nánustu
framtíð, burtséð frá því hvort
áhuginn fyrir því sé til staðar eða
ekki. „Netárásum mun fjölga og tap
vegna þeirra mun aukast.
Samhliða þessum breytingum
mun þekking aukast, en til þess
að það gerist nægilega hratt þarf
stöðuga fjárfestingu á mörgum
vígvöllum svo við höldum í við þau
lönd sem við alla jafnan berum
okkur saman við. Það er mikil
vægt að fylgjast með kerfum til að
geta brugðist við með áhrifaríkum
hætti þegar öryggisfrávik á sér stað
og stór þáttur í fumlausu viðbragði
er að hafa einfalda umgjörð og not
endavæna ferla sem eru vel kynntir
og æfðir.“ n
12 kynningarblað 23. september 2021 FIMMTUDAGURUPPLÝSINGATÆKNI