Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ég fékk fljótt á tilfinninguna að
Toyota væru bílar sem Íslendingum
líkaði við og myndu seljast vel. Við-
brögðin voru strax jákvæð og salan
fór vel af stað,“ segir Páll Sam-
úelsson, fyrrverandi forstjóri á
Toyota á Íslandi, en í gær afhenti
hann núverandi eigendum bílaum-
boðsins fyrsta Toyota-bílinn sem
kom til landsins og hann seldi. Það
var árið 1965. Tilfinning Páls um að
Toyota væru bílar Íslendingum að
skapi reyndist rétt og brátt fór bolt-
inn að rúlla. Toyota-umboðið var
stofnað um 1970 og var í eigu Páls
og fjölskyldu hans fram í desember
2005. Toyota-bílar á Íslandi eru í
dag milli 50-60 þúsund.
Fannst á Húsavík
Fyrsta Toyotan á Íslandi er af
gerðinni Crown, árgerð 1965, og
aflið er 85 hestöfl. Fyrsti eigandi
bílsins var tengdafaðir Páls Sam-
úelssonar, Bogi Sigurðssson, sýn-
ingarmaður í Háskólabíói. „Þegar
tengdapabbi ók um Laugaveginn
stoppuðu vegfarendur hann stund-
um til að spyrja um bílinn og vildu
skoða. Bíllinn þótti einstakur. Var
svo seldur austur á land, en ég
gleymdi gripnum aldrei. Bifreiða-
eftirlitið, sem þá var, hjálpaði mér
við að hafa uppi á bílnum sem ég
keypti til baka norðan frá Húsavík
árið 1988,“ segir Páll. Bíllinn hafði
þegar hér var komið sögu nokkuð
látið á sjá og viðgerð tók því sinn
tíma. „Hagleiksmenn á verkstæði
Toyota fóru í viðgerðir og end-
ursmíðuðu það sem þurfti. Komu
bílnum í lag og í dag er hann orðinn
jafn góður og verða má. Nú fannst
mér hins vegar tímabært losa mig
við bílinn – og fjölskyldan var sam-
mála um að best væri að Toyota-
umboðið tæki við honum aftur.“
Brúðkaupsbíll
Úlfar Steindórsson, forstjóri
Toyota á Íslandi, tók við bílnum af
Páli í gær og sagði við það tilefni að
ánægjulegt væri að fá þennan sögu-
lega bíl. Í framtíðinni yrði hann
stássgripur í sýningarsölum fyrir-
tækisins í Kauptúni í Garðabæ.
Einnig myndi hann bjóðast til út-
láns við brúðkaup, því hefð er fyrir
slíku enda er bíllinn afar glæsi-
legur.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Afhending Úlfar Steindórsson, t.v., forstjóri Toyota, tekur við lyklunum að bílnum úr hendi Páls Samúelssonar
Fyrsti Toyota-bíllinn
á Íslandi til umboðsins
- Páll Samúelsson kom í Kauptún á Crown, árgerð 1965
Glæsikerra Bíll í góðu standi og númerið er samkvæmt gamla kerfinu.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt Sigurð Andrésson, fv. eiganda
SA Verks, til að greiða LOB ehf. sam-
tals yfir 100 milljónir, að teknu tilliti til
dráttarvaxta og málskostnaðar, vegna
vanefnda. Félagið LOB ehf. varð til við
endurreisn Loftorku í Borgarnesi árið
2009 og er í eigu Byggingalausna ehf.,
félags feðganna Óla Jóns Gunnarsson-
ar og Bergþórs Ólasonar alþingis-
manns.
SA Verk gerði í ársbyrjun 2015
samning við LOB ehf. um framleiðslu
og uppsetningu á forsteyptum eining-
um vegna hótelbyggingar á Hverfis-
götu 103. Fyrir verkið skyldi SA Verk
greiða rúmar 228 milljónir að meðtöld-
um VSK.
Í maí 2015 kom hins vegar upp
ágreiningur milli verkkaupa og undir-
verktaka sem leiddi til þess að fram-
kvæmdir voru stöðvaðar.
Forsvarsmenn LOB ehf. töldu
reikninga hafa verið ógreidda en SA
Verk lagði á móti fram kröfur, lýsti yf-
ir skuldajöfnuði og rifti verksamningi
29. júní 2015. Aðeins nokkrum dögum
áður, eða 25. júní 2015, keypti SA Verk
alla hluti í einkahlutafélaginu H96 ehf.
sem var kaupsamningshafi að norður-
hluta lóðar að Laugavegi 77 í Reykja-
vík en þar byggðu SA Byggingar síðar
38 íbúðir.
Hinn 27. júlí 2015 féllst sýslumað-
urinn í Reykjavík á beiðni LOB ehf.
um kyrrsetningu á réttindum SA
Verks yfir Hverfisgötu 103 og sömu-
leiðis hlutabréfum í H96 ehf.
Hinn 8. febrúar 2018 féll dómur í
Héraðsdómi Vesturlands þar sem H96
ehf., sem kom í stað SA Verks eftir
samruna félaganna, var dæmt til að
greiða LOB ehf. tæpar 57 milljónir
með vöxtum. Þá var kyrrsetning í
hlutafé SA Verks í H96 staðfest.
Hinn 5. febrúar 2020 var bú H96
ehf. tekið til gjaldþrotaskipta með úr-
skurði Héraðsdóms Reykjavíkur.
Lýstar kröfur 111 milljónir
Hafði LOB ehf. þá gert árangurs-
laust fjárnám hjá H96 ehf. Lýstar
kröfur námu tæplega 111 milljónum
og þar af nam lýst krafa LOB ehf.
rúmum 99 milljónum.
Eigendur LOB ehf. höfðuðu þá mál
á hendur Sigurði Andréssyni og féllst
Héraðsdómur Reykjavíkur á að hann
bæri sem forsvarsmaður félaganna
ábyrgð á þeim réttindum sem LOB
hefðu verið dæmd í dómi Héraðsdóms
Vesturlands.
Héraðsdómur Reykjavíkur vísar í
niðurstöðu sinni til viðskiptanna með
lóðina norðan við Laugaveg 77.
Virðist um sömu eign að ræða
„Þann 31. október 2015 fékk félagið
SA Verktakar ehf. (sem virðist vera
sama félag og SA Byggingar ehf. og
með sömu kennitölu) afsal fyrir bygg-
ingarrétti á fasteigninni Laugavegi 77
[…] Hér virðist um sömu eign að ræða
og H96 ehf. hafði framselt til SA
Bygginga ehf. með kaupsamningi
þann 2. sama mánaðar, þ.e. hinn svo-
nefnda Landsbankareit,“ segir í
dómnum um viðskiptin.
Niðurstaða héraðsdóms er að Sig-
urður Andrésson hafi með ráðstöfun-
um sínum, sem stjórnarmaður og eftir
atvikum eigandi í SA Verki ehf. og
H96 ehf., rýrt gildi kyrrsetningargerð-
ar sem fór fram 27. júlí 2015. Henni
hafi verið ætlað að „tryggja hagsmuni
stefnanda [LOB ehf.] á meðan hann
leitaði sér aðfararheimildar, þ.e. ann-
ars vegar með samruna þessara félaga
og sölu á svonefndum Landsbanka-
reit, sem síðar fékk heitið Hverfisgata
94-96, Reykjavík, til tengds félags, og
hins vegar með aðstoð sinni við Lands-
bankann hf. í aðdraganda þess að
bankinn gerði fjárnám í kyrrsettum
fjármunum í október 2016.
Stefndi hafi sömuleiðis brotið gegn
1. mgr. 51. gr. laga um einkahlutafélög
með ráðstöfun Landsbankareitsins til
félags í hans eigu á undirverði, á
kostnað H96 ehf.,“ segir í niðurstöðu
dómsins. Mismunur á söluandvirði,
skv. matsgerð dómkvadds mats-
manns, sé nærri 143 milljónir. „Hefði
sú fjárhæð skilað sér inn í bú H96 ehf.
hefði það nægt til að greiða allar
skuldir félagsins, þ.m.t. kröfu stefn-
anda,“ segir í niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur.
Verktakinn persónulega ábyrgur
- Eigandi SA Verks dæmdur til að greiða undirverktaka rúmar 100 milljónir í bætur vegna hótels
- Greiddi undirverktaka ekki fullt verð fyrir uppsteypu á Hótel Skugga á Hverfisgötu í Reykjavík
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skuggi Hótel Hverfisgata 103.
Með frumvarpi
um lögfestingu
svonefndrar til-
greindrar sér-
eignar, sam-
kvæmt kröfu
ASÍ, eru algjör-
lega virtar að
vettugi athuga-
semdir meiri-
hluta hagsmuna-
aðila, sem lögðu fram
frumvarpsdrögin árið 2019. Þetta
segir Arnaldur Loftsson, fram-
kvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðs-
ins, m.a. í grein sinni í Viðskipta-
mogganum í dag.
Arnaldur segir að með því að
greiða iðgjöldin í tilgreinda séreign
sé valfrelsi og sveigjanleiki sjóð-
félaganna í útgreiðslum skert veru-
lega.
Telur Arnaldur að ráðstöfun 3,5%
iðgjalds í viðbótarsparnað, í stað til-
greindrar séreignar, væri betri fyrir
sjóðfélaga, en samkvæmt frumvarp-
inu sé sú leið ekki heimil.
»Viðskiptamogginn
Valfrelsi sjóðfélaga
skert verulega
- Gagnrýnir lífeyrissjóðafrumvarp
Arnaldur Loftsson