Morgunblaðið - 21.04.2021, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021
RS-Fast
Stærðir: 28-35
Verð: 11.995.-
Comet
Stærðir: 28-35
Verð: 6.995.-
Léttir og þægilegir barnastrigaskór
Comet
Stærðir: 28-35
Verð: 6.995.-
Comet 2 FS
Stærðir: 22-35
Verð frá: 6.995.-
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
S K Ó V E R S L U N
STEINAR WAAGE
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
,,Í handritamálinu börðust Íslend-
ingar fyrir menningu sinni og
sjálfsmynd. Ástæðan fyrir því að
horft var til fornritanna, þar sem
þau þóttu lýsa frjálsu fólki í
frjálsu landi fyrir hnignun lands-
ins. Þjóðum, sem eiga sína sögu,
vegnar betur en öðrum, enda hafa
þær góðan grunn að byggja á. Að
þessu leyti var mikilvægt fyrir Ís-
lendinga að endurheimta handritin
fyrir 50 árum,“ segir Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra.
Við hátíðlega athöfn í dag munu
ráðherrann og Guðni Th. Jóhann-
esson, forseti Íslands, leggja
grunn að Húsi íslenskunnar á Mel-
unum í Reykjavík. Ýmsir atburðir
eru raunar á dagskrá nú, 21. apríl,
í tilefni þess að á þessum síðasta
degi vetrar er liðin rétt hálf öld
frá því fyrstu íslensku handritin
voru endurheimt frá Dönum.
Bæta aðgengi að handritum
Sem ráðherra mennta- og menn-
ingarmála hefur Lilja Alfreðs-
dóttir sýnt handritinum íslensku
mikinn áhuga. Síðsumars 2018
opnaði hún á umræðu um að fá
fleiri handrit sem enn eru í vörslu
Dana aftur til Íslands. Vegna að-
stæðna á tímum veirunnar hefur
framgangur þess tafist nokkuð, en
nú verður farið í málið af nefnd
undir formennsku Guðrúnar Nor-
dal, forstöðumanns Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum.
,,Við viljum vissulega fá fleiri
handrit til Íslands en megintil-
gangurinn í viðræðum við Dani
verður að bæta aðgengi að þessum
sameiginlega menningararfi þjóð-
arinnar. Engin aðstaða er til sýn-
inga á handritunum við Kaup-
mannahafnarháskóla, auk þess
sem efla þarf íslenskukennslu við
skólann. Því verðum við Íslend-
ingar að leggja lið og almennt tal-
að verður að nýta alla möguleika
fjórðu iðnbyltingarinnar til þess að
efla íslenskuna. Koma þarf ís-
lensku fornsögunum á aðgengilegt
stafrænt form,“ segir Lilja og
heldur áfram:
„Íslendingasögurnar eru ein-
stakar heimsmyndir. Með frásögn-
um Snorra-Eddu varðveittu Ís-
lendingar heiðna heimsmynd sem
ella hefði glatast. Þess vegna er
safn Árna Magnússonar hreinlega
arfur mannkyns. Þetta mikilvægi
safnsins var staðfest árið 2009
þegar safnið var tekið á varð-
veisluskrá Minnis heimsins hjá
Menningarmálastofnun Sameinuðu
þjóðanna – UNESCO. Íslendingar
mega vera mjög stoltir af sínu
framlagi þar.“
Traust og vinátta
skilaboð Hávamála
Tengja þarf í ríkari mæli Ís-
lendingasögur og Eddukvæðin við
hina stafrænu veröld 21. aldar-
innar, að sögn Lilju. Hún segir
þetta vera mikilvægt mál og í
anda þess að á yfirstandandi kjör-
tímabili hafi stjórnvöld varið
tveimur milljörðum króna í ýmis
stafræn máltækniverkefni. Sem
barn og unglingur segist Lilja
hafa lesið eða kynnt sér flest forn-
rit Íslendinga og sömuleiðis menn-
ingararf Grikkja og Rómverja.
Margt í þessu kallist á, svo sem
heimspeki og hugmyndir Platóns,
Aristótelesar, Cicerós og svo
Hávamál. „Meðal goðakvæðanna
eru Hávamálin í sérstöku uppá-
haldi hjá mér, vegna þeirrar heim-
speki sem er kynnt þar. Það er af-
ar skemmtilegt að sjá hvernig
Hávamál fjalla um vináttu og mik-
ilvægi hennar. Það sama má finna
í ritum Platóns, Aristótelesar og
Cicerós. Samkvæmt Aristótelesi
var vináttan sjálf undirstaða sam-
félagsins. Hann taldi sameigin-
legan skilning borgara á því hvað
sé gott og dyggðugt vera skilyrði
einingar og samhygðar innan sam-
félagsins. Þetta mætti nefna vin-
áttu. Hinn rómverski Ciceró
fjallaði einnig mikið um vináttuna.
Hávamál gera vináttunni sérstak-
lega hátt undir höfði í mörgum er-
indum,“ segir Lilja og heldur
áfram:
„Skilaboðin í Hávamálum eru að
traust skipti máli í samfélaginu og
að sönn vinátta veiti gleði og ham-
ingju. Ég er ekki í nokkrum vafa
um að það er mikill tenging á milli
hugsuða frá Grikklandi, Róm og
Íslandi. Fólkið okkar hefur líklega
verið vel lesið í þessum bók-
menntum. Þá er goðafræðin
einkar spennandi, samanber hve
margar stórar kvikmyndir byggj-
ast á henni með þá Þór og Óðin
sem lykilpersónur. Ég er líka
ánægð með þá grósku sem á sér
stað varðandi barnabókmenntir og
Íslendingasögurnar og goðafræð-
ina. Þar nefni ég framlag Krist-
ínar Rögnu Gunnarsdóttur, Þór-
arins Eldjárns, Brynhildar
Þórarinsdóttur og fleiri höfunda.“
Nálægt í lífi þjóðar
Fornrit Íslendinga eru skrifuð á
tíma sem kallaður hefur verið gull-
öld Íslands. Á 11. – 13. öld var hér
gróska, nýsköpun og margvísleg
alþjóðleg samskipti. Þess sér stað
í bókmenntunum.
„Ég hef alltaf verið heilluð af
Njálssögu og þá ekki síst Njáli á
Bergþórshvoli; hve hann var ráða-
góður og hélt vel á málum þrátt
fyrir að vera í þröngri stöðu á
margan hátt,“ segir Lilja. „Svo er
ég einmitt þessa dagana með syni
mínum, sem er í 8. bekk, að lesa
Kjalnesingasögu; hvar sagt er frá
trúarbrögðum, ást og samskiptum
fólks með ólíkan bakgrunn. Og
þessi saga gerist á Kjalarnesinu,
sem nú tilheyrir Reykjavík, sem
aftur undirstrikar að Íslendinga-
sögurnar eru þegar allt kemur til
alls mjög nálægar í lífi þjóðar-
innar.“
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnúson
- Viljum fá fleiri handrit til Íslands, segir menntamálaráðherra - Leggur hornstein að Húsi íslensk-
unnar í dag - Heimspeki og hugmyndir Platóns, Aristótelesar og Cicerós kallast á við Hávamál
Skólar á Íslandi og Stofnun Árna Magnússonar
sinna, að mati Lilju Alfreðsdóttur, vel því hlut-
verki sínu að kynna fornsögurnar og efni þeirra
fyrir ungu fólki. Margt af því fái áhuga á þess-
um bókmenntum og þar með sögu þjóðarinnar,
sem sé mikilvægt. Þá sé vel í hve ríkum mæli
kvikmyndagerðarmenn og leikjahönnuðir,
myndlistarfólk og ekki síst rithöfundar sæki
sér efnivið í bókmenntaarfinn.
„Orðfæri, persónur og sögusvið fornritanna
spretta ljóslifandi fram í verkefnum nú-
tímans,“ segir Lilja og telur þetta undirstrika hve mikilvæg undirstaða
bókmenntir Íslendingasagna eru fyrir menningu heimsins.
„Endalaust er verið að þýða sögur og rit Íslendinga á hin ýmsu tungu-
mál, eða vinna úr þeim með öðru móti. Heimurinn er undir. Þetta með
öðru gerir okkur að þjóð meðal þjóða. Forréttindi Íslendinga eru þau að
eiga handritin sem við endurheimtum, þau eru undirstaða tungumáls
okkar og menningar,“ segir menntamálaráðherra að síðustu.
KYNNINGU Á FORNRITUNUM ER VEL SINNT Í SKÓLUNUM
Flateyjarbók Eitt af merk-
ustu handritunum.
Sögusviðið og persónurnar
spretta ljóslifandi fram
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Arfurinn „Koma þarf íslensku forn-
sögunum á aðgengilegt stafrænt
form,“ segir Lilja Alfreðsdóttir.
Menning okkar og sjálfsmynd
Hátíðarhöld Skátar standa heiðursvörð
og bíða komu handrita 21. apríl 1971.