Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 17

Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 EFNAHAGSREIKNINGUR (í þús.kr.): 31.12.2020 31.12.2019 Eignarhlutir í félögum og sjóðum 103.791 .075 78.309.017 Skuldabréf 99.290.920 100.751.236 Innlán og bankainnstæður 1.007.060 1.088.812 Kröfur 875.767 956.365 Aðrar eignir og rekstrarfjármunir 173.694 179.818 205.138.516 181.285.248 Skuldir -40.989 -35.424 Séreignarsjóður, Söfnunarleið I og II 3.267.925 2.957.993 Samtals 208.365.452 184.207.817 YFIRLIT UM BREYTINGAR Á HREINNI EIGN TIL GREIÐSLU LÍFEYRIS: Iðgjöld 5.129.971 5.276.972 Lífeyrir og endurhæfingarsjóður -5.626.648 -5.121.594 Fjárfestingartekjur 25.083.407 22.378.550 Rekstrarkostnaður -429.095 -391.012 Hækkun á hreinni eign á tímabilinu 24.157.635 22.142.916 Hrein eign frá fyrra ári 184.207.817 162.064.901 Samtals 208.365.452 184.207.817 LÍFEYRISSKULDBINDINGAR: 31.12.2020 31.12.2019 Eignir umfram áfallnar skuldbindingar 8.953.647 238.317 Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum 4,9% 0,1% Eignir umfram heildarskuldbindingar 6.459.775 -1.645.174 Í hlutfalli af heildarskuldbindingum 2,6% -0,7% Sjóðurinn hefur aldrei skert áunnin réttindi sjóðfélaga. KENNITÖLUR: 31.12.2020 31.12.2019 Nafnávöxtun 13,5% 13,7% Hrein raunávöxtun 9,7% 10,7% Hrein raunávöxtun 5 ára meðaltal 5,5% 4,9% Hrein raunávöxtun 10 ára meðaltal 5,8% 5,1% Hrein raunávöxtun 20 ára meðaltal 4,8% 4,4% Fjöldi virkra sjóðfélaga 6.376 6.377 Fjöldi sjóðfélaga 145.308 143.420 Fjöldi lífeyrisþega 17.131 16.364 Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,2% 0,2% Eignir í íslenskum krónum 61,1% 67,0% Eignir í erlendum gjaldmiðlum 38,9% 33,0% ÁVÖXTUN SÉREIGNARDEILDAR 2020: Nafnávöxtun Söfnunarleiðar I sem er innlánsreikningur ásamt stuttum tryggum skuldabréfum var 5,0% eða 1,5% hrein raunávöxtun. Nafnávöxtun Söfnunarleiðar II sem inniheldur ýmis verðbréf nam 8,7% eða 5,1% hrein raunávöxtun. Er þetta sú ávöxtun sem rétthafar njóta. Heildareignir séreignardeildarinnar eru 3.268 milljónir króna í árslok 2020. SJÓÐFÉLAGAR: Sjóðurinn er ætlaður öllum launþegum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sem eiga ekki kjarasamningsbundna aðild að öðrum lífeyrissjóðum. Hann getur því verið góður kostur fyrir ýmsa aðila sem þurfa að velja sér lífeyrissjóð. Sjóðurinn byggir á samtryggingu og séreign. Yfirlit um afkomu 2020 ÁRSFUNDUR 2021 Ársfundur sjóðsins verður auglýstur sérstaklega Í stjórn sjóðsins eru: Svana Helen Björnsdóttir, starfandi formaður Aðalbjörg Lúthersdóttir Einar Sveinbjörnsson Reynir Þorsteinsson Þorvaldur Ingi Jónsson Þórunn Hulda Sveinbjörnsdóttir Framkvæmdastjóri er: Sigurbjörn Sigurbjörnsson Borgartún 29 · 105 Reykjavík · Sími 510 7400 · www.sl.is Kjörnefnd Blaðamannafélags Ís- lands efnir til framboðsfundar með frambjóðendum til formanns í sal félagsins í Síðumúla 23 í kvöld, klukkan 20. Tveir félagsmenn eru í framboði, Heimir Már Pétursson, fréttamaður á Stöð 2, og Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður á Rúv. Nýr formaður verður kjörinn í rafrænni atkvæðagreiðslu sem fram fer dagana 22. til 26. apríl. Úr- slit atkvæðagreiðslunnar verða kynnt þriðjudaginn 27. apríl og nýr formaður tekur við á aðalfundi fé- lagsins 29. apríl. Vegna samkomutakmarkana kemst takmarkaður fjöldi félags- manna á framboðsfundinn í kvöld. Verða menn að skrá sig. Aðrir verða að taka þátt í fjarfundi, en fundurinn verður í beinu streymi. helgi@mbl.is Frambjóð- endur kynna sig Sigríður Dögg Auðunsdóttir Heimir Már Pétursson Nýr sjóður hefur verið stofnaður undir hatti Styrktarsjóða Háskóla Íslands og nefnist hann Vísindi og velferð, Styrktarsjóður Sig- rúnar og Þorsteins. Stofnendur sjóðsins eru hjónin Sigrún Júl- íusdóttir og Þorsteinn Vilhjálms- son, sem bæði eru fyrrverandi prófessorar við skólann. Sigrún og Þorsteinn undirrituðu skipu- lagsskrá sjóðsins sl. föstudag ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands. Sigrún er fyrrverandi prófessor í félags- ráðgjöf og hefur verið einn ötul- asti talsmaður þróunar, rann- sókna og fræða í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og stofnandi Rannsóknaseturs í barna- og fjölskylduvernd. Þorsteinn er fyrrverandi prófessor í eðlisfræði og vísindasögu, stofnandi og fyrsti ritstjóri Vísindavefsins og hefur verið brautryðjandi í vís- indafræðum við skólann. Stofnfé sjóðsins er 40 milljónir króna, segir í tilkynningu frá Háskóla Íslands. Sjóðnum nýja er annars vegar ætlað að efla doktorsnám og sér- fræðiþekkingu í félagsráðgjöf með áherslu á málefni barna og fjölskyldna og hins vegar vís- indafræði, nánar tiltekið rann- sóknir og nýjungar sem tengjast vísindasögu. Nýr sjóður styður félags- ráðgjöf og vísindafræði Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Háskólinn Frá stofnun sjóðsins í hátíðarsal HÍ, f.v. Jón Atli Benediktsson rektor, Sigurveig H. Sigurðardóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Sigrún Júl- íusdóttir, Þorsteinn Vilhjálmsson og Einar H. Guðmundsson. Sjö kvenkyns krummatítur komu í fiðrildagildru í Neskaupstað í fyrra og allar komu þær í síðustu tæmingu haustsins. Ein karltíta kom í gildr- una í fyrra og ein árið 2019, að því er segir á heimasíðu Náttúrustofu Austurlands. Á pödduvef Náttúrufræðistofn- unar Íslands segir að krummatíta sé lítt áberandi tegund í íslenskri nátt- úru. „Útbreiðsla hennar hér á landi er sérkennileg, bundin við Suð- vesturland þar sem hún getur þó varla talist mjög sjaldgæf. Síðan er athyglisverður, einangraður stofn við Eyjafjörð sem skýtur nokkuð skökku við því tegundin er í eðli sínu suðræn í Evrópu,“ segir á vefnum. Þar kemur einnig fram að hún hafi fundist á Heimaey og nú einnig 2019 og 2020 á Austurlandi. aij@mbl.is Krummatítur nema land í Neskaupstað Krummatíta Kolsvört á litinn, smávaxin og lætur lítið yfir sér. Ljósmynd/Erling Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.