Morgunblaðið - 21.04.2021, Side 18

Morgunblaðið - 21.04.2021, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég man þessa atburði eins og þeir hefðu gerst í gær. Þeir voru ógn- vekjandi,“ segir Heimir Brynjúlfur Jóhannsson, fyrrverandi prent- smiðjustjóri og bókaútgefandi. Hann fæddist á Grenivík 1. maí 1930 og ólst þar upp til sjö ára aldurs. Heimir var rúm- lega fjögurra ára þegar jarðskjálft- inn mikli, sem oft er kenndur við Dalvík, reið yfir 2. júní 1934. „Ég var ásamt Birgi eldri bróður mínum að leik við uppistöðulón ofan við læknisbústað- inn á Grenivík, þá vorum við fjögurra og fimm ára gamlir. Við áttum litla leikfangabáta sem við sigldum á lóninu og vorum að ljúka við að byggja litla bryggju út í lónið. Við stóðum á henni og vor- um að reyna traustleikann og burðarþolið. Þá hófust hamfarirnar með mikl- um látum. Jörðin nötraði og gekk upp og niður. Vatnið í lóninu þyrl- aðist upp í loftið og við lá að við féll- um af bryggjunni. Það greip okkur ofsahræðsla. Við hlupum niður fyrir læknisbústaðinn.“ Hestarnir trylltust Foreldrar Heimis, þau Jóhann J. Kristjánsson, héraðslæknir í Höfða- hverfislæknishéraði, og frú Inga Guðmundsdóttir, höfðu setið Greni- víkurjörðina frá 1928. Þau bjuggu í læknisbústaðnum sem áður hafði verið prestssetur og voru búin að koma upp stóru búi samhliða lækn- isstörfum Jóhanns. Eldri bræður Heimis, Haraldur og Guðmundur, voru ásamt Ingu móður sinni að herfa túnið þegar skjálftinn kom. Tveir hestar drógu herfið. „Hestarnir trylltust við hamfar- irnar en það tókst að róa þá,“ sagði Heimir. „Túnsléttan gekk í bylgjum líkt og hafflötur eftir vindóróa. Það varð mikið hrun í fjöllunum beggja vegna fjarðarins. Það var stórbrotið að sjá rykmekkina sem þyrluðust upp allt frá Ólafsfjarðarmúla í norðri og inn eftir öllum firðinum, alveg inn í Svarfaðardal. Það varð líka töluvert hrun úr fjöllunum á Látraströnd og eins nokkurt hrun úr sjávarbökkum út að Látrum. Á þessum tíma voru nokkrir bæir í byggð út með Látraströndinni.“ Heimir rifjaði upp bæjarnöfn eins og Árbakki, Finnastaðir, Hjalli, Hringsdalur, Jaðar, Svínárnes, Steindyr, Sker, Grímsnes og gamla verstöðin Látur. Bæirnir fóru í eyði um miðja 20. öld. Allt lék á reiðiskjálfi Jóhann héraðslæknir sagði frá jarðskjálftanum í bókinni Leiftur- myndir frá læknadögum, sem Bóka- miðstöðin, bókaútgáfa Heimis, gaf út 1970. Jóhann kvaðst hafa ákveðið að fá sér blund eftir hádegismatinn, enda hafði hann vakað að mestu tvær undanfarnar nætur vegna læknis- starfa. Það var runninn á hann svefnhöfgi þegar hann heyrði óg- urlegan hvin. „Tók húsið að hristast ofsalega og fannst mér það ætla að velta um koll í vesturátt, en svo tók það að hrist- ast fram og til baka. Ég reis upp og ætlaði að komast út úr rúminu, en komst aldrei nema á fjóra fætur á rúmdýnunni, sem var harðstoppuð gormadýna. Rann ég þarna fram og aftur, því ég sá fram á, að tilgangs- laust væri fyrir mig að reyna að stíga út fyrir rúmstokkinn, ég mundi þegar liggja flatur á gólfinu. það var alls ekki stætt,“ skrifaði Jó- hann. Honum fannst kippurinn langur. Þegar jarðskjálftinn dvínaði stóð hann upp og gekk að glugganum. Þá blasti við moldar- og rykveggur vestan fjarðarins. Hann sá að fólk hafði flúið út úr húsum og kvenfólk sat flötum beinum á jörðinni. Jó- hann sá elstu synina halda í taum- ana á prjónandi hestunum úti á túni. „Öll húsgögn í svefnherberginu, nema hjónarúm voru á tjá og tundri. Meðan á kippnum stóð, heyrði ég af- armikið brothljóð, eins og gler væri að brotna, en ég áttaði mig ekkert á því þá, hverju það sætti, fyrr en síð- ar.“ Jóhann áræddi að fara niður stigann. „Í eldhúsinu var telpan með yngsta soninn í fanginu. Hún var sýnilega skelkuð, sem von var. Bæði hún og ekki síður drengurinn voru alsett rauðum slettum á höfði og í andliti. Ég spurði hvort þau hefðu dottið og meitt sig. Telpan kvað nei við því, og er ég fór að athuga þess- ar rauðu slettur, sá ég strax að ekki var um blóð að ræða, og engin sár fann ég á þeim.“ Lyfjabirgðirnar í einni kássu Hann fór út og athugaði með skemmdir sem höfðu orðið víða. Þegar Jóhann kom aftur inn fann hann torkennilegan þef. Yfir eldhús- inu var súðarherbergi með einföldu trégólfi. Þar var apótek héraðslækn- isins. Þegar hann opnaði hurðina var ljótt um að litast. „Megnið af lyfja- birgðunum lá í einni kássu á gólfinu, og flest glösin mölbrotin. Var megn óþefur þar inni og rauk upp úr hrúg- unni. Ég átti glös með salstsýru, brennisteinssýru og saltpéturssýru, og þegar sýrurnar blönduðust ýms- um öðrum efnum, mynduðust efna- sambönd sem reyk lagði af. Og nú fékk ég skýringu á rauða litnum á drengnum og telpunni. Meðal annars átti ég í lyfjabúðinni hátt í flösku af rauðum ávaxtalit. Sú flaska hafði einnig brotnað og lit- urinn lekið niður í eldhús um rifur á gólfinu og lent á telpunni og drengn- um.“ Það var mikil vinna að þrífa her- bergið. Óþefurinn hvarf ekki fyrr en eftir heilt ár þar sem gólfið varð gegnsósa af lyfjunum. Útihúsin skemmdust mikið Útihús eins og fjós, fjárhús, hest- hús og hlöður skekktust og hrundu meira eða minna. Læknisbústað- urinn var tveggja hæða timburhús sem stóð á hlöðnum steinlíms- bundnum grunni. Það var klætt að innan og utan með panel. Við jarð- skjálftann gekk panellinn út og suð- ur á grindinni. Aðalveggurinn í stof- unni leit út eins og harmónikku- belgur. Heimir sagði að strax hefði verið hafist handa við laga skemmd- irnar á útihúsunum og íbúðarhúsinu. Þegar matsmenn komu loksins til Grenivíkur að skoða skemmdir sem þar höfðu orðið var búið að laga megnið af þeim. Apótek héraðslæknisins Þar fór allt í kássu í jarðskjálft- anum. Glös og krukkur brotnuðu svo sýrur og efni láku út. Læknisbústaðurinn Húsið lék á reiðiskjálfi og ruggaði fram og aftur. Panellinn losnaði af grindinni. Útihús skemmdust. Bræðurnir F.v.: Haraldur Kristófer, Guðmundur Kristján, Birgir Jóhann, Heimir Brynjúlfur og Hannes Jóhannssynir. Ógnvekjandi skjálfti á Grenivík - Jarðskjálftinn við Dalvík 1934 hristi allt austan fjarðarins - Þar urðu miklar skemmdir á húsum Ljósmyndir/Úr einkasafni Grenivík 1925 Þorpið var að byrja að myndast. Ofarlega til hægri má sjá læknisbústaðinn, kirkjuna og samkomuhúsið sem einnig var barnaskóli. Morgunblaðið/Ingó Grenivík 2014 Kauptúnið hefur vaxið mikið síðan jarðskjálftinn varð í júní 1934. Í Grýtubakkahreppi búa um 370 íbúar, þar af um 300 í kauptúninu. Heimir Brynjúlfur Jóhannsson Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! Nýskráður 03/2020, ekinn 9þkm, bensín & rafmagn (plug in hybrid, 56 km drægni), sjálfskiptur. Leður, 19“ álfelgur, stafrænt mælaborð, hiti og kuldi í sætum. 360° bakkmyndavél og miklu meira. Raðnúmer 252399 SKODA SUPERB IV LIMO LAURIN & K M.BENZ C 300e 4MATIC AMLEMENT (L&K) Nýskráður 01/2020, ekinn 14 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid 50 km drægni), sjálfskiptur 9 gíra, fjórhjóladrifinn. AMG útlit og 19“ AMG álfelgur. glerþak, stafrænt mælaborð og mikið fleira. Raðnúmer 251912 G line VERÐ 6.250.000 VERÐ 8.690.000 Þessir síungu strákar eru klárir í að selja bílinn þinn Kíktu við, hringd eða sendu okkur skilaboð! Hlökkum til! Indriði Jónsson og Árni Sveinsson u M.BENZ A 250e P Nýskráður 06/2020, ekinn 3 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid, 69km drægni), sjálfskiptur, stafrænt mælaborð, 18“ álfelgur o.fl. Raðnúmer 252254 ROGRESSIVE VERÐ 5.990.000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.