Morgunblaðið - 21.04.2021, Síða 24

Morgunblaðið - 21.04.2021, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Meistaradeildin hefur um árabil skip- að sérstakan sess í hugum aðdáenda, leikmanna og þjálfara og er jafnan talin stærsta sviðið í félagsliðabolt- anum, kóróna evrópsks fótbolta. José Mourinho hefur sagt að sigur í Meist- aradeildinni sé stærri en í heims- meistarakeppninni og sagt er að ein- kennislag keppninnar, sem byggt er á verki Händels, sé uppáhaldslag Rom- ans Abramovic, eiganda Chelsea. En nú stendur til að kippa stoð- unum undan keppninni. Tólf lið sögðu sig úr lögum við Knattspyrnu- samband Evrópu (UEFA) og ætla að halda sitt eigið partí. Svo mikil er andstaðan að líklegt er að ekkert verði af áformunum, en þó rík ástæða til að fara yfir hvað í þeim felst. Með stofnun nýrrar deildar, Ofur- deildarinnar, vakir einkum tvennt fyrir eigendum félaganna tólf: pen- ingar og stöðugleiki. Meistaradeildin er í umsjá Knatt- spyrnusambands Evrópu (UEFA). Sambandið skipuleggur keppnina, semur um sölu á sjónvarpsrétti og auglýsingum og stjórnar því hvernig tekjum er dreift milli liða. Tekjur af Meistaradeildinni og systurdeild hennar, Evrópudeildinni, nema um 3,25 milljörðum evra (500 mö.kr.) á ári, einkum frá sölu á sjón- varpsrétti. Hluti þess fer í utan- umhald, um 7% eru nýtt til að styrkja barnastarf um alla Evrópu, en bróð- urparturinn fer þó beint til þeirra liða sem tóku þátt í deildinni og forkeppni hennar. Í fyrra nam þessi fjárhæð 2,05 milljörðum evra (310 mö.kr.). Mikið vill meira Tekjuskipting milli liðanna byggist á árangri í Meistaradeildinni, en einn- ig svokallaðri markaðshlutdeild. Stærri og vinsælli lið, sem talin eru eiga meiri þátt í því að tryggja keppn- inni sjónvarps- og auglýsingatekjur, fá þar með stærri skerf en ella, jafn- vel þótt öðrum minni liðum kunni að ganga betur í deildinni. Þannig fékk Barcelona mest allra liða, 117 milljónir evra, í sinn hlut fyr- ir Meistaradeildina tímabilið 2018-19 þrátt fyrir að detta út í undan- úrslitum gegn Liverpool. Púlarar fóru alla leið í keppninni og fengu að launum 111 milljónir evra. Stóru liðin hafa lengi þrýst á að tekjuskiptingarmódelinu verði breytt. Mikið vill meira og þótt þau fái þegar mest í sinn hlut finnst þeim það ekki nóg í samanburði við að- dráttaraflið sem liðin hafa um heim allan. Aðdáendur þrá spennu – eigendur ekki Hitt er stöðugleikinn. Sætin í Meistaradeildinni eru takmörkuð og þótt helstu knattspyrnulöndin, Eng- land, Spánn, Þýskaland og Ítalía, geti gengið að fjórum sætum vísum þýðir það að færri komast að en telja sig eiga erindi. Til þess að komast í Meistaradeildina þarf lið að ná nógu góðum árangri í deildinni heima fyrir. Þetta er auðvitað eitt af því sem gerir fótboltann svo skemmtilegan. Deildarleikir sem skilja á milli feigs og ófeigs, Meistaradeildarsætis eða eymdar og volæðis í varadeildinni, Evrópudeildinni. Ekkert er gefins. Aðeins eru tvö ár síðan Liverpool vann Meistaradeildina en þegar þetta er skrifað situr liðið í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og kemst ekki í Meistaradeildina að ári nema að bæta ráð sitt og ná fjórða sætinu. En þótt fótboltaáhugamenn lifi fyr- ir þessa spennu gera eigendur lið- anna það ekki. „Ég veit ekki fyrr en á lokadegi tímabilsins hvort ég hef 170 milljónir punda eða 70 milljónir punda til umráða fyrir næsta tíma- bil,“ hefur BBC eftir ónefndum fyrr- verandi framkvæmdastjóra í ensku úrvalsdeildarfélagi, til marks um þann óstöðugleika sem er inngróinn í rekstur liðanna. Allt veltur á því hvernig gengur í deildinni, því eins og sjá má á grafinu hér að ofan skiptir öllu máli fyrir fjárhagslega stöðu lið- anna að þau nái að tryggja sig inn í Meistaradeildina. Með stofnun Of- urdeildarinnar er dregið mjög úr þessari óvissu. Leitað er í smiðju Bandaríkja- manna, þar sem deildirnar eru lok- aðar, hvorki hægt að falla né komast upp um deild og þar sem íþróttalið eru lítið annað en vörumerki deild- arinnar. Ofurdeildin, sem kynnt var á föstudag, gengur þó ekki alveg eins langt. Planið er að fimmtán lið fái fast sæti í deildinni en að fimm sæti til við- bótar verði í boði fyrir lið sem ná góð- um árangri heima fyrir. Þrátt fyrir að fastafulltrúarnir eigi að vera fimmtán stóðu þó aðeins tólf lið að tilkynningunni. Meðal evrópskra liða sem bersýni- lega vantar í þennan flokk eru Paris Saint-German frá Frakklandi og Bayern München frá Þýskalandi, eitt albesta lið heims, Bæði liðin hafa hafnað þátttöku í deildinni, sem og Porto og Borussia Dortmund. Glögg- ir sjá að ef þessi lið hefðu sagt já væri fjöldinn kominn yfir fimmtán, sem vekur spurningar um hvort öll liðin tólf hafi verið með í upphaflegum áætlunum. 3-4 sinnum meiri tekjur Bandaríski fjárfestingarbankinn JP Morgan er helsti bakhjarl verk- efnisins. Bankinn hefur skuldbundið sig til að leggja 3,25 milljarða evra til keppninnar, sem skipt yrði á milli lið- anna strax við inngöngu. Talað hefur verið um að hvert lið fengi á bilinu 80-300 milljónir evra í sinn hlut fyrir það eitt að hefja keppni. Samkvæmt gögnum Financial Times verður tekjum af deildinni skipt með þeim hætti að stofnliðin fimmtán deila með sér 32,5% tekna. Öðrum 32,5% verð- ur skipt jafnt milli liðanna fimmtán og þeirra fimm sem vinna sér inn sæti á því tímabili, skipting 20% tekna mun ráðast af árangri í keppn- inni og að lokum verður 15% skipt eftir sjónvarpsáhorfi liðanna – hversu marga áhorfendur liðin draga að skjánum. Sigurliðið í deildinni á að geta vænst þess að fá í sinn hlut allt að 400 milljónir evra, og önnur lið um og yfir 250 milljónir evra – mun meira en lið fá fyrir þátttöku í Meistaradeildinni. Væri það kærkomið fyrir eigendur enda hafa mörg þeirra verið rekin með tapi um alllangt skeið. Raunar hefur oft verið litið á eign fótboltaliðs síður sem fjárfestingu og frekar sem leiktæki fyrir menn sem vita ekkert hvað þeir eiga að gera við peningana sína. Ofurdeildin sem enginn bað um - JP Morgan stærsti fjárfestirinn að baki Ofurdeildinni - Liðin eiga að fá 80-300 milljónir evra í skrán- ingarbónus og mun hærri greiðslur en í Meistaradeildinni - Áformin umdeild og strax komin í uppnám Tekjur liðanna tólf af Meistaradeildinni og Evrópudeildinni 2018-19 Upphæðir í milljónum evra *Lið tók þátt í Evrópudeildinni 2018-19 Atletico Real Madrid Barcelona Chelsea* Arsenal* Liverpool Man. Utd. Man. City Tottenham Juventus Inter Milan AC Milan* 85,7 85 117,7 46 30 111 93,5 93,3 101,6 95,6 48,3 15 AFP Óvinsælt Mótmælt var við heimavöll Chelsea í gærkvöldi. Síðar spurðist út að liðið væri hætt við þátttöku í Ofurdeildinni. Fleiri lið ætla að hætta við. Hugmyndum um Ofurdeildina var illa tekið frá fyrstu stundu. Áhorf- endur, sparkspekingar og stjórn- málamenn allt frá Boris Johnson til Katrínar Jakobsdóttur sameinuðust í fordæmingu og stjórnvöld í Bret- landi hétu því að leita allra leiða til að koma í veg fyrir breytinguna. Meðal þeirra leiða sem yrðu skoð- aðar væri að beita samkeppnislögum gegn hinni deildinni, neita erlendum leikmönnum sem spila fyrir ofur- deildarlið um atvinnuleyfi í Bret- landi og að breyta reglum um eign- arhald knattspyrnuliða. Evrópska knattspyrnusambandið UEFA lét ekki sitt eftir liggja og hét því að leikmenn ofurdeildarliða fengju ekki að taka þátt í EM sem fram fer í sum- ar. Þá fengju liðin heldur ekki að leika í deildum í heimalöndum sín- um. Í raun yrði félögunum og öllum sem viðriðnir þau eru úthýst úr al- þjóðaknattspyrnunni. Í gærkvöldi, þegar tveir sólar- hringar voru liðnir frá því áformin voru kynnt, var strax farið að molna undan þeim. Greint var frá því að Chelsea, Manchester City og Atletico Madrid væru öll hætt við þátttöku og fleiri lið væru í sömu hugleiðingum. Líklegra er en ekki að fallið verði al- gjörlega frá hugmyndinni. Þetta þarf ekki að koma á óvart. Sjálfur hafði blaðamaður talið sér trú um að tillagan gæti vart verið annað en út- spil í samningaviðræðum við UEFA um framtíð Meistaradeildarinnar og tekjuskiptinguna þar. Það var enda engin tilviljun að hin nýja deild var kynnt til leiks á sunnudegi, degi áður en til stóð að UEFA myndi kynna nýja útfærslu á Meistaradeildinni. En eftir stendur þó heillangur undirbúningur og milljarða heit um fjárfestingu frá bandarískum fjár- festingarbanka. Hvernig fær það staðist að lagt væri upp í þessa veg- ferð nema hugur fylgdi máli? Og nú þegar allt virðist ætla að snúast í höndunum á stórliðunum, getur verið að samtakamáttur al- mennings – og peningamaskínunnar UEFA – hafi náð að bjarga evrópsk- um fótbolta frá gróðahyggju? AFP Ofurdeild Florentino Perez, forseti Real Madrid, einn skipuleggjenda. Útlit fyrir að ekkert verði af keppninni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.