Morgunblaðið - 21.04.2021, Side 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021
B
ir
t
m
e
ð
fy
ri
rv
a
ra
u
m
t
e
x
t
a
-
o
g
m
y
n
d
a
b
re
n
g
l.
BÍLABÚÐ BENNA
KOLEFNISJAFNAR SSANGYONG benni.is
Bílasala Suðurnesja
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Ib bílar
Selfoss
Fossnes A
Sími: 480 8080
Bílaríkið
Akureyri
Lónsbakka
Sími: 461 3636
Bílabúð Benna
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Elskar íslenskar aðstæður
Komdu og sjáðu Korando. Hér er á ferðinni
ótrúlega vel heppnaður sportjeppi sem er
eins og sérhannaður fyrir Ísland.
+ 163 hestöfl / 280 Nm
+ 2WD eða 4WD
+ Hægt að læsa millikassa í 4WD
+ Sjá ríkulegan staðalbúnað á benni.is
Verð frá: 4.390.000 kr.
Fimm ára
ábyrgð
og hverfi síðan eins og hendi sé
veifað þegar nýjar uppfærslur
verði til megi ekki gleyma því að á
bak við gerð alls þessa nýja staf-
ræna kortaefnis og myndgrunna
séu eldri frumgögn í miklu magni.
Opinberar stofnanir, sveitarfélög
og aðilar á markaði hafi aflað og
eignast korta- og myndgögn á
löngum tíma og þau þurfi að varð-
veita. „Við sem nú erum starfandi
á vinnumarkaði sem og komandi
kynslóðir þurfum áfram að geta
komist í eldri frumgögn á þessu
sviði og byggt á upplýsingunum
sem í þeim felast. Varðveisla
þeirra verður að vera tryggð og
samhæfðar upplýsingar um efnið
verða að vera aðgengilegar á net-
inu,“ segir Þorvaldur.
Hann segist vera að leggja sitt
lóð á vogarskálarnar með verk-
efnum sínum.
Hvetur til stefnumótunar
Þorvaldur telur að stefnuleysi og
ákveðið sinnuleysi ríki víða um að-
gengi og varðveislu sögulegra
landfræðilegra gagna á Íslandi.
Opinber heildarstefna sé ekki til.
„Það er mikilvægt að á vegum
ráðuneytis safnamála, mennta- og
menningarmálaráðuneytisins, verði
farið að huga að gerð opinberrar
aðgengis- og varðveislustefnu á
sviði landfræðilegra gagna hér á
landi, svo við missum ekki málin út
úr höndum okkar. Ýmis land-
upplýsingagögn, margvíslegar
landfræðilegar heimildir og heim-
ildarmenn um sértæk efni frá liðn-
um ártugum verða ekki alltaf til
staðar. Það er hins vegar enn tími
til að afstýra óafturkræfum skaða
ef brugðist er við núna. Ég vonast
svo auðvitað til þess að það finnist
leiðir til að forgangsraða og fjár-
magna vinnu við mikilvægustu
verkefnin. Þannig ætti að verða
auðveldara en nú er að varðveita
safnkost landfræðilegra gagna af
Íslandi með öruggari hætti. Jafn-
framt fengjum við enn betri vef-
aðgang að ýmsum upplýsingum um
kortagögn sem notendur þurfa á
að halda.“
Miðlar landfræðigögnum á eigin vegum
- Þorvaldur Bragason heldur úti þremur opnum vefgáttum um landfræðileg gögn - Segir þau
hluta af menningararfi þjóðarinnar en telur að stefnuleysi og ákveðið sinnuleysi ríki í málaflokknum
Morgunblaðið/Eggert
Áhugi Þorvaldur Bragason hefur brennandi áhuga á að varðveita og miðla sögulegum gögnum um landupplýsingar.
Miðlun Upplýsingarnar eru aðgengilegar í þremur vefgáttum og tveimur rafbókum með pistlum höfundar.
Á vefgáttinni landakort.is er að-
gengi frá forsíðu að tenglum í
allar íslenskar kortasjár og
helstu vefsíður sem fjalla um
landfræðileg málefni á Íslandi.
Pistlar eru birtir um land-
fræðileg upplýsingamál.
Landkönnun.is er sömuleiðis
vefgátt og hún veitir aðgengi að
tenglum beint í safnefni á sviði
korta, loftmynda og gervi-
tunglagagna. Vefkortasafnið er
kortasjá sem veitir aðgengi að
skönnuðum útgáfum korta af
Íslandi frá nokkrum stofnunum
í gegnum yfirlitskort. Hægt er
að velja marga kortaflokka í
einu og sjá öll kort í ákveðnum
kortaflokkum af ákveðnum
stöðum.
Aðgengi að
kortasjám og
vefsíðum
VEFIR ÞORVALDAR
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Enginn einn opinber aðili á Ís-
landi hefur miðlunarhlutverk á
þessu víðtæka sviði fyrir alla land-
fræðilega gagnaflokka. Mér fannst
mig vanta þannig vefaðgang svo ég
ákvað að vinna þetta á eigin vegum
og á eigin kostnað og ákvað um
leið að hugsa þetta opið fyrir allra
aðra sem höfðu svipaða þörf fyrir
að komast í þessar upplýsingar,“
segir Þorvaldur Bragason, land-
fræðingur og upplýsingafræðingur.
Þorvaldur er fyrrverandi sviðs-
stjóri hjá Landmælingum Íslands
og er nú verkefnisstjóri land-
upplýsinga hjá Orkustofnun. Hann
hefur byggt upp landfræðilega
upplýsingaþjónustu á netinu þar
sem mögulegt er að fá á einum
stað aðgang að víðtækum upplýs-
ingum um landfræðileg gögn hér á
landi. Það gerir hann með því að
halda úti þremur vefgáttum, landa-
kort.is, landkönnun.is og vefkorta-
safninu. Landakort hefur hann
rekið í fjórtán ár en hinir vefirnir
eru nýrri. Hann skrifar reglulega
pistla á vefina og hefur gefið rúm-
lega 120 þeirra út í tveimur raf-
bókum og einnig látið prenta nokk-
ur eintök til kynningar á
verkefnunum. Um er að ræða bæk-
urnar „Kortagögn og málefni
kortasafna“ og „Fjarkönnunargögn
og skipulag landupplýsinga“, sem
komu út á síðasta ári.
Ekki samræmt aðgengi
„Ég lít svo á að kort, loftmyndir
og gervitunglagögn af Íslandi sem
til eru á stofnunum, í fyrirtækjum,
hjá sveitarfélögum og í söfnum séu
hluti af menningararfi þjóðarinnar.
Aðgengi að þessum upplýsingum
hefur ekki verið samræmt og er oft
takmarkað. Ég vil með þessum
verkefnum tengja saman þær upp-
lýsingar sem hægt er að finna í
dag í opnum veflausnum og hvetja
til þess að meira sé gert í skrán-
ingu og gagnaframsetningu á
þessu sviði á netinu en þar hefur
vantað nokkuð upp á,“ segir Þor-
valdur.
Hann nefnir að þótt ný stafræn
kortagögn flæði nú yfir alla daga í
kortasjám á netinu og í farsímum