Morgunblaðið - 21.04.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.04.2021, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 B ir t m e ð fy ri rv a ra u m t e x t a - o g m y n d a b re n g l. BÍLABÚÐ BENNA KOLEFNISJAFNAR SSANGYONG benni.is Bílasala Suðurnesja Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Ib bílar Selfoss Fossnes A Sími: 480 8080 Bílaríkið Akureyri Lónsbakka Sími: 461 3636 Bílabúð Benna Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Elskar íslenskar aðstæður Komdu og sjáðu Korando. Hér er á ferðinni ótrúlega vel heppnaður sportjeppi sem er eins og sérhannaður fyrir Ísland. + 163 hestöfl / 280 Nm + 2WD eða 4WD + Hægt að læsa millikassa í 4WD + Sjá ríkulegan staðalbúnað á benni.is Verð frá: 4.390.000 kr. Fimm ára ábyrgð og hverfi síðan eins og hendi sé veifað þegar nýjar uppfærslur verði til megi ekki gleyma því að á bak við gerð alls þessa nýja staf- ræna kortaefnis og myndgrunna séu eldri frumgögn í miklu magni. Opinberar stofnanir, sveitarfélög og aðilar á markaði hafi aflað og eignast korta- og myndgögn á löngum tíma og þau þurfi að varð- veita. „Við sem nú erum starfandi á vinnumarkaði sem og komandi kynslóðir þurfum áfram að geta komist í eldri frumgögn á þessu sviði og byggt á upplýsingunum sem í þeim felast. Varðveisla þeirra verður að vera tryggð og samhæfðar upplýsingar um efnið verða að vera aðgengilegar á net- inu,“ segir Þorvaldur. Hann segist vera að leggja sitt lóð á vogarskálarnar með verk- efnum sínum. Hvetur til stefnumótunar Þorvaldur telur að stefnuleysi og ákveðið sinnuleysi ríki víða um að- gengi og varðveislu sögulegra landfræðilegra gagna á Íslandi. Opinber heildarstefna sé ekki til. „Það er mikilvægt að á vegum ráðuneytis safnamála, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, verði farið að huga að gerð opinberrar aðgengis- og varðveislustefnu á sviði landfræðilegra gagna hér á landi, svo við missum ekki málin út úr höndum okkar. Ýmis land- upplýsingagögn, margvíslegar landfræðilegar heimildir og heim- ildarmenn um sértæk efni frá liðn- um ártugum verða ekki alltaf til staðar. Það er hins vegar enn tími til að afstýra óafturkræfum skaða ef brugðist er við núna. Ég vonast svo auðvitað til þess að það finnist leiðir til að forgangsraða og fjár- magna vinnu við mikilvægustu verkefnin. Þannig ætti að verða auðveldara en nú er að varðveita safnkost landfræðilegra gagna af Íslandi með öruggari hætti. Jafn- framt fengjum við enn betri vef- aðgang að ýmsum upplýsingum um kortagögn sem notendur þurfa á að halda.“ Miðlar landfræðigögnum á eigin vegum - Þorvaldur Bragason heldur úti þremur opnum vefgáttum um landfræðileg gögn - Segir þau hluta af menningararfi þjóðarinnar en telur að stefnuleysi og ákveðið sinnuleysi ríki í málaflokknum Morgunblaðið/Eggert Áhugi Þorvaldur Bragason hefur brennandi áhuga á að varðveita og miðla sögulegum gögnum um landupplýsingar. Miðlun Upplýsingarnar eru aðgengilegar í þremur vefgáttum og tveimur rafbókum með pistlum höfundar. Á vefgáttinni landakort.is er að- gengi frá forsíðu að tenglum í allar íslenskar kortasjár og helstu vefsíður sem fjalla um landfræðileg málefni á Íslandi. Pistlar eru birtir um land- fræðileg upplýsingamál. Landkönnun.is er sömuleiðis vefgátt og hún veitir aðgengi að tenglum beint í safnefni á sviði korta, loftmynda og gervi- tunglagagna. Vefkortasafnið er kortasjá sem veitir aðgengi að skönnuðum útgáfum korta af Íslandi frá nokkrum stofnunum í gegnum yfirlitskort. Hægt er að velja marga kortaflokka í einu og sjá öll kort í ákveðnum kortaflokkum af ákveðnum stöðum. Aðgengi að kortasjám og vefsíðum VEFIR ÞORVALDAR VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Enginn einn opinber aðili á Ís- landi hefur miðlunarhlutverk á þessu víðtæka sviði fyrir alla land- fræðilega gagnaflokka. Mér fannst mig vanta þannig vefaðgang svo ég ákvað að vinna þetta á eigin vegum og á eigin kostnað og ákvað um leið að hugsa þetta opið fyrir allra aðra sem höfðu svipaða þörf fyrir að komast í þessar upplýsingar,“ segir Þorvaldur Bragason, land- fræðingur og upplýsingafræðingur. Þorvaldur er fyrrverandi sviðs- stjóri hjá Landmælingum Íslands og er nú verkefnisstjóri land- upplýsinga hjá Orkustofnun. Hann hefur byggt upp landfræðilega upplýsingaþjónustu á netinu þar sem mögulegt er að fá á einum stað aðgang að víðtækum upplýs- ingum um landfræðileg gögn hér á landi. Það gerir hann með því að halda úti þremur vefgáttum, landa- kort.is, landkönnun.is og vefkorta- safninu. Landakort hefur hann rekið í fjórtán ár en hinir vefirnir eru nýrri. Hann skrifar reglulega pistla á vefina og hefur gefið rúm- lega 120 þeirra út í tveimur raf- bókum og einnig látið prenta nokk- ur eintök til kynningar á verkefnunum. Um er að ræða bæk- urnar „Kortagögn og málefni kortasafna“ og „Fjarkönnunargögn og skipulag landupplýsinga“, sem komu út á síðasta ári. Ekki samræmt aðgengi „Ég lít svo á að kort, loftmyndir og gervitunglagögn af Íslandi sem til eru á stofnunum, í fyrirtækjum, hjá sveitarfélögum og í söfnum séu hluti af menningararfi þjóðarinnar. Aðgengi að þessum upplýsingum hefur ekki verið samræmt og er oft takmarkað. Ég vil með þessum verkefnum tengja saman þær upp- lýsingar sem hægt er að finna í dag í opnum veflausnum og hvetja til þess að meira sé gert í skrán- ingu og gagnaframsetningu á þessu sviði á netinu en þar hefur vantað nokkuð upp á,“ segir Þor- valdur. Hann nefnir að þótt ný stafræn kortagögn flæði nú yfir alla daga í kortasjám á netinu og í farsímum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.