Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 33

Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 33
33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 Í dag fögnum við því að fimmtíu ár eru liðin frá því að fyrstu tvö handritin, Konungsbók eddukvæða og Flateyj- arbók, komu heim frá Danmörku með her- skipinu Vædderen. Mannfjöldi safnaðist saman í miðbæ Reykjavíkur og frí var gefið í skólum landsins. Þann dag var ég á ellefta ári og hélt eins og aðrir skólakrakkar niður í bæ til að fylgjast með komu her- skipsins og hreifst af þeirri spennu og gleði sem lá í loftinu. Mörgum fannst sem lokaáfanganum í sjálf- stæðisbaráttunni hefði þarna verið náð. Lausn handritamálsins var stór- merkileg í alþjóðlegu samhengi og augljóst að Danir sýndu okkur mikið vinarbragð. Flutningur um helmings handrita úr Árnasafni og 141 hand- rits úr Konungsbókhlöðu til Íslands varð til að efla mjög vísindastarf í ís- lenskum fræðum á Íslandi. Hand- ritastofnun Íslands sem komið var á fót árið 1962 var breytt í Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem sameinaðist árið 2006 fjórum öðrum stofnunum á sviði íslenskra fræða (Orðabók Háskólans, Örnefna- stofnun Íslands, Íslenskri málstöð og Stofnun Sigurðar Nordals) og fékk heitið Stofnun Árna Magn- ússonar í íslenskum fræðum. Þannig varð til breiður og öfl- ugur vettvangur á sviði íslenskra fræða þar sem sinnt er rann- sóknum á íslenskri tungu, menningu og bókmenntum. Í tilefni af tímamót- unum í dag leggja for- seti Íslands og mennta- og menningar- málaráðherra hornstein að Húsi íslenskunnar. Þar mun Árnastofnun verða undir sama þaki og náms- greinar í íslensku og íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands. Á þeim stað verður sjálfkrafa miðjan í íslenskum fræðum í heiminum, rannsóknar- og sýningaraðstaða eins og best verður á kosið og gott að- gengi að handritum og öðrum gögn- um stofnunarinnar fyrir gesti og gangandi, ekki síst fyrir nýja kyn- slóð og liðsmenn íslenskunnar. Íslensk handrit eru ekki aðeins varðveitt á Íslandi eða í Danmörku, heldur er töluverður fjöldi íslenskra handrita varðveittur á söfnum í öðr- um löndum. Á grunni þeirra gagna sem fyrir liggja hefur verið áætlað að meira en 4.000 íslensk handrit séu varðveitt í söfnum erlendis. Eru þá ekki talin með handrit í einkaeigu afkomenda vesturfaranna í Kanada og Bandaríkjunum þar sem skrár yfir þau handrit eru ekki frágengn- ar. Á hálfrar aldar afmæli heimkomu fyrstu handritanna væri skemmti- legt og við hæfi ef við strengdum þess heit að skrá íslensk handrit um allan heim í einn gagnagrunn, eins og handrit.is þar sem eru nú settar inn myndir af handritum úr safni Árna í Reykjavík og Kaupmanna- höfn og handrit í Landsbókasafni, í góðu samstarfi við söfn í ólíkum löndum, mynda þau og skrá eins ná- kvæmlega og kostur er. Slíkt verk- efni er vitaskuld kostnaðarsamt og tímafrekt, en myndi gerbreyta að- gengi almennings, fræðimanna, lista- manna, þýðenda og rithöfunda um allan heim að þessum einstöku heim- ildum sem spanna meira en 800 ár og vera vinarbragð okkar við alla sem unna íslenskum bókmenntum. Uppskeran yrði margföld. Eftir Guðrúnu Nordal » Á hálfrar aldar af- mæli heimkomu fyrstu handritanna væri skemmtilegt og við hæfi ef við strengdum þess heit að skrá íslensk handrit um allan heim í einn gagnagrunn. Guðrún Nordal Höfundur er forstöðumaður Stofn- unar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og prófessor við Háskóla Ís- lands. Handritin fyrir heiminn Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Handritin heim Fyrstu tvö handritin komu heim 21. apríl 1971, sem bar þá einnig upp á síðasta vetrardag eins og í ár. Þrír sjóliðar af Vædderen halda hér á handritunum, Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók í tveimur bindum. Það er alltaf gott þegar stjórn- málaflokkar hafa skýra stefnu, ekki síst í að- draganda kosninga. Með því verða kost- irnir sem kjósendur standa frammi fyrir skýrari. Það er ekki endilega verra að draga gömul baráttu- mál út úr skápnum, dusta af þeim rykið og pakka þeim inn að nýju. Slíkt sýnir kannski ekki mikla hugmyndaauðgi en ákveðna íhaldssemi og þráa. Á sama tíma og Samfylkingin virðist hafa gefist upp á sínu helsta baráttumáli – aðild Íslands að Evr- ópusambandinu – hefur Viðreisn ákveðið að blása að nýju, eftir nokk- urt hlé, í lúðra Brussel-valdsins. Þingmenn Viðreisnar hafa lagt fram þingsályktun þar sem ríkisstjórninni er falið „að hefja undirbúning að endurupptöku viðræðna um aðild að Evrópusambandinu“. Ekki er hægt að skilja grein- argerð þingsályktunartillögunnar á annan hátt en að kórónuveirufarald- urinn hafi kveikt aftur vonir í ESB- hjörtum Viðreisnar. Fullyrt er að af- leiðingar faraldursins hafi „gjör- breytt efnahagslegum aðstæðum“ og þess vegna þurfi Ísland „að nýta öll möguleg tækifæri sem örvað geta ný- sköpun, eflt viðskipti og styrkt hagvöxt“. Aukin alþjóðleg sam- vinna sé óhjákvæmileg og lokaskrefið „til fullr- ar aðildar að Evrópu- sambandinu er nær- tækasti og áhrifaríkasti kosturinn í þessu efni“. Vantrú á íslenskt samfélag Rökstuðningur fyrir aðild að Evr- ópusambandinu hefur því lítið breyst frá árinu 2009 þegar sam- þykkt var að sækja um aðild og meirihluti þingsins kom í veg fyrir að þjóðin hefði nokkuð um aðild- arviðræðurnar að segja. Í aðdrag- anda kosninga máluðu talsmenn að- ildar svartnættið upp á vegg; höfðu enga trú á því að Íslendingar hefðu burði til að vinna sig út úr efnahags- legum þrengingum í kjölfar falls bankanna. Benedikt Jóhannesson, stofnandi og fyrsti formaður Viðreisnar, dró upp dökka mynd af framtíð lands og þjóðar utan Evrópusambandsins. Í grein í Morgunblaðinu 16. apríl 2009 – níu dögum fyrir alþingiskosningar – svaraði Benedikt eigin spurningu um hvað gerðist ef þjóðin sækti ekki um aðild að Evrópusambandinu, með skýrum hætti: „1. Stórfyrirtæki flytja höfuð- stöðvar sínar úr landi 2. Útlendingar þora ekki að fjár- festa á Íslandi 3. Fáir vilja lána Íslendingum peninga 4. Þeir sem vilja lána þjóðinni gera það gegn okurvöxtum 5. Atvinnuleysi, vaxtaokur og gjaldþrot verða viðvarandi 6. Þjóðin missir af Evrópulestinni næstu tíu ár 7. Íslendingar verða áfram fátæk þjóð í hafti.“ Það var á grunni vantrúar á ís- lenskt samfélag sem Viðreisn var stofnuð. Lausnin á flestum vanda- málum væri aðild að Evrópusam- bandinu og upptaka evru. Með því yrði komið í veg fyrir nýtt „hrun“ efnahagslífsins um leið og „skuldir óreiðumanna“ (Icesave) yrðu gerðar upp með ábyrgð íslenskra skatt- greiðenda. Mantran rifjuð upp Nokkrum árum síðar settist Benedikt ásamt samherjum sínum í Viðreisn í ríkisstjórn með Sjálfstæð- isflokknum og Bjartri framtíð. Sú ríkisstjórn var skammlíf (kannski sem betur fer) en í stjórnarsáttmála var tekið fram að stjórnin myndi „byggja samstarf við Evrópusam- bandið á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið“ og að fylgjast þyrfti vel með „þróun Evrópusam- bandsins á næstu árum og gæta í hvívetna hagsmuna Íslands í sam- ræmi við aðstæður hverju sinni“. Allar götur síðan hefur Viðreisn ekki sinnt þessu helsta stefnumáli sínu – grunninum undir stofnun flokksins – sérlega vel. En af og til vakna forystumenn flokksins upp í ræðu og riti, svona rétt til að minna sjálfa sig og áhagendur á að þrátt fyrir allt sé evran töfralausnin og Evrópusambandið draumurinn. Á sama tíma og Viðreisn heldur sig við möntruna (þegar þingmenn muna eftir þulunni) um að íslenska krónan sé ónýt hefur traust í garð Seðlabanka Íslands stóraukist eða tvöfaldast á tveimur árum. Sam- kvæmt mælingum Gallup hefur traust til bankans aukist úr 31% árið 2019 í 62%. Árið 2011 báru aðeins 20% landsmanna traust til Seðla- bankans. „Seðlabankinn er útgefandi og varðmaður íslensku krónunnar,“ skrifaði Ásgeir Jónsson seðla- bankastjóri á fésbókarvegg sinn í til- efni af niðurstöðum Gallup og bætti við: „Þessi mæling er því vitn- isburður um nýtt traust á gjaldmiðl- inum okkar – okkar allra lands- manna.“ Mat seðlabankastjóra er rökrétt. Aukið traust til Seðlabankans sýnir aukna tiltrú á krónuna. Að þessu leyti er Viðreisn ekki í takt við þró- unina hér innanlands. En þingsályktunartillaga Við- reisnar er hins vegar fagnaðarefni þar sem hún ætti að gera línurnar örlítið skýrari í aðdraganda kosn- inga. Og sjálfsagt neyðist Samfylk- ingin til að grafa ESB-stefnuna upp úr rykföllnum skúffum, þótt það kunni að vera erfitt fyrir einhverja frambjóðendur flokksins sem í fyrra pólitíska lífi börðust gegn aðild að Evrópusambandinu. Hvort flokkar og frambjóðendur sem eru fastir í viðjum vantrúar á flest það sem íslenskt er muni heilla kjósendur í komandi kosningum á eftir að koma í ljós. Í utanrík- isviðskiptum er stefna Sjálfstæð- isflokksins að fjölga kostunum í samskiptum við aðrar þjóðir en ekki fækka þeim líkt og hinir vantrúuðu telja rétt að gera. Frjálst, opið og þróttmikið samfélag verður hins vegar ekki tryggt í gegnum Brussel. Eftir Óla Björn Kárason »Hvort flokkar og frambjóðendur sem eru fastir í viðjum vantrúar á flest það sem íslenskt er muni heilla kjósendur í komandi kosningum kemur í ljós. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.. Rykið dustað af ESB-draumnum Nýjasta útspil vinstrimanna og Við- reisnar í borginni er að þrengja enn frekar að umferð og lengja ferðatíma fólks. Af- leiðingarnar eru mikl- ar. Raunveruleg hætta er á að umferð- in leiti meira inn í íbúðahverfi þegar þrengt er að helstu samgönguæðunum. Svo er það hitt. Fólk þarf að vera lengur í bílum og hefur minni tíma aflögu í annað. Samkvæmt tölum úr áætlun borgarinnar sjálfrar mun ferðatími fólks lengjast um 5.882 klukkustundir á dag eftir að aðgerða- áætlunin hefur verið framkvæmd. Það ger- ir 200.000 vinnudaga á ári. Um 1.000 vinnuár í aukinn ferðatíma fólks í Reykjavík á ári hverju. Þetta mun gerast á sama tíma og talað er um að stytta vinnuvikuna. Dagur ei meir Tími fólks er verðmætur. Þótt það sé alltaf álitamál hvernig tíminn sé metinn til fjármuna er hægt að reikna hvað þetta þýðir miðað við meðallaun. Þau eru rúmlega 600 þúsund á mán- uði. Miðað við forsendur borgarinnar er þessi viðbótarferðatími fólks ígildi kostnaðar upp á átta milljarða króna á ári. Það þýðir þjóðhagslegan kostn- að upp á 320 milljarða á 40 árum. Verðtryggt. Það er umhugsunarefni hvernig sami borgarstjórnarmeirihlutinn get- ur lagst gegn nauðsynlegum úrbótum í ljósastýringu, sem enn hafa ekki orðið, og fer hægt í að bæta snjall- væðingu og lýsingu gangbrauta vegna kostnaðar. En slengir svo fram fimm ára áætlun um að lengja ferða- tíma fólksins í borginni um eitt þús- und vinnuár. Sparar við sig hag- kvæmar úrbætur í öryggismálum en hikar ekki við að leggja aukabyrðar á fólkið með töfum og kostnaði. Er ekki kominn tími til að tengja? Þúsund ár Eftir Eyþór Arnalds Eyþór Arnalds Höfundur er oddviti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn. »Miðað við forsendur borgarinnar er þessi viðbótarferðatími fólks ígildi kostnaðar upp á átta milljarða króna á ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.