Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 36

Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 Umræðan um nýtt og þéttara skipulag höfuðborgarsvæðisins ásamt borgarlínu hef- ur nú gengið svo lengi að bakhliðin er farin að koma í ljós. Segja má að öll rök sem tal- in voru sterk í upp- hafi hafi bliknað og sum horfið, eins og atriðin sex hér á eftir sýna. Miðað við skrif undanfarið til framdráttar borg- arlínu er þar ekkert eftir nema metnaðurinn. Metnaður er góður drifkraftur en ekki gott að hann taki völdin. 1. Ferðatím Borgir eru vinnu- markaður og reynslan sýnir að því hraðar sem fólk kemst til vinnu sinnar, því meiri framleiðni má bú- ast við í borginni. Þéttleiki byggð- ar hefur sterka tengingu við um- ferðartafir. Aukinn þéttleiki skilar sér þannig ekki aðeins í töfum á ferðum fólks, líka í síðri efnahag. 2. Umferðin Í Reykjavík kemst maður yfirleitt milli heimilis og vinnu í bíl á innan við 10 mínútum í frjálsu flæði umferðar en sama ferð tekur 25 mínútur með strætó. Borgarlínan mun lítið laga þetta hlutfall og það verður ekki jafnað nema með því að tefja, hindra og skattleggja aðra umferð. Eigi borgarlína að hafa hér sæmilega hlutdeild í þessum ferðum táknar það að setja þarf aðra umferð í varanlegan hnút. 3. Losun koltvísýrings. For- sendur og niðurstöður um áhrif þéttingar byggðar á losun koltví- sýrings hafa verið dregnar í efa. Minni kolefnalosun og súrt regn tengist mest léttari bílum og betri nýtni véla. Þétting borgarbyggða hefur lítil áhrif og losun vegna vaxandi um- ferðartafa getur farið fram úr mögulegum ávinningi. Það að spara losun koltvísýr- ings með þéttingu byggðar í þéttbýli er líklega eitt dýrasta form þess sparnaðar sem þekkist og árangur getur orð- ið enginn. 4. Lífskjör Þrenging byggða- marka takmarkar framboð lands til bygginga og veldur þannig hækkun á markaðsverði. Hærri framkvæmdakostnaður við þröngar aðstæður og umferðartafir hækkar verð íbúða. Tafir í úthlutun lóða hækka verð enn meira. Húsnæð- iskostnaður verður stærri hluti af ráðstöfunartekjum fólks sem leiðir til lakari lífskjara. 5. Búseta Þess sjást merki að fólk kýs í auknum mæli búsetu á jaðri stórhöfuðborgarsvæðisins (Keflavík-Árborg-Akranes) en ferðast eigi að síður daglega í bíl sínum til vinnu og skóla mið- svæðis. Hátt íbúðaverð á höf- uðborgarsvæðinu ýtir undir þessa þróun. 6. Vellíðan íbúa Flestar skoð- anakannanir benda til að fólki líði betur í sínu hverfi ef það er ekki of þétt. Vísbendingar eru um að flestir vilji hafa einhvern smá blett undir beru lofti sem þeir geti kall- að sinn eigin. Fyrir suma eru sval- ir á íbúð betra en ekkert en aðrir sækjast eftir sérbýli með litlum bletti ræktarlands. Best virðist fólki líða í hverfum sem a.m.k. að hluta til eru einbýli með garði. Staða máls Sveitarfélög höfuðborgarsvæð- isins hafa gert samgöngusáttmála við ríkið þar sem nokkuð er komið til móts við kröfur um greiðari um- ferð. Eigi að síður er borgarlína hönnuð áfram með sama forgangi á aðra umferð og járnbrautarlest á teinum með samsvarandi umferð- artöfum og haldið er áfram að þétta byggð af sama krafti og áð- ur. Annmarkar þeir sem taldir eru í sex punktum hér að framan og flestir lágu fyrir virðast hvorki hafa verið kynntir við samnings- gerðina né tillit tekið til þeirra í framhaldinu. Punktarnir sex fjalla um rök sem fylgdu borgarlínunni úr hlaði en þau hafa lítið sést í fjölmiðlum undanfarið. Nú ber meira á rang- færslum, t.d. að ÁS (Samtök um samgöngur fyrir alla) beri fyrst og fremst hag einkabílsins fyrir brjósti og fleira í þeim dúr. Til- lögur þær sem ÁS leggur fram eru taldar merki um lítinn metnað. Formælendur borgarlínu vita en hafa ekki orð á að fjöldi þeirra sem ferðast með borgarlínu mun ekki valda öllum þeim jákvæðu áhrifum sem þeir telja að verði meðfram þróunarásum, mikla bíla- umferð þarf til. Hjá þeim er metn- aðurinn það eina sem eftir stendur. ÁS ber fyrst og fremst fyrir brjósti efnahagslega velferð íbú- anna og atvinnuveganna sem bjóða þeim launaða vinnu. ÁS leggur áherslu á greiða umferð fyrir alla, bíla fyrirtækjanna, bíla íbúanna, strætó, hjólandi og gangandi. ÁS fagnar einnig almennt endur- skoðun á leiðakerfi strætó og telur rétt að fara leið samgöngumiðaðs skipulags. ÁS hefur þannig lagt til mun ódýrari útfærslu borgarlínu - létta borgarlínu – sem gerir nánast sama gagn en ÁS telur þá þungu sóun. Lokaorð Það er skoðun margra að þétta megi sum svæði á höfuðborgar- svæðinu og bæta þurfi almennings- samgöngur. En þegar engin rök eru fyrir frekari aðgerðum og metnaðurinn einn ræður för er nóg er komið. Samfastar ferhyrndar blokkir utan um hellulögð port er fransk/danskur miðaldastíll. Að setja slíkt á sem flest græn svæði í borginni gerir þau ekki að spenn- andi hverfum. Að kalla það að byggja græna borg og hrósa sér af því er sorglegt. Íbúðirnar á þessum þéttu svæð- um verða dýrar. Líklega verður það sæmilega stætt fólk sem kaup- ir þær fyrst en sagan segir frá fá- tækrahverfum sem voru byggð á þann hátt. Það sem er spennandi í þessu samhengi er hver kjör ann- arrar og þriðju kynslóðar verða. Komi annmarkar þá fram er of seint að snúa við. Eftir Elías Elíasson » Flestar skoðana- kannanir benda til að fólki líði betur í sínu hverfi ef það er ekki of þétt Elías Elíasson Höfundur er verkfræðingur. eliasbe@simnet.is Þegar metnaðurinn einn er eftirMóttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgun- blaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru send- ar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendi- kerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við- komandi hefur skráð sig sem not- anda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.