Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021
Tónlist
fyrir sálina
Matur
fyrir líkamann
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Kíktu til okkar
í góðan mat og
notalegt andrúmsloft
Borðapantanir á
www.matarkjallarinn.is
Sæl og takk fyrir frábæran vef.
Mig langar svo að athuga hvort
ég geti fengið upplýsingar um sóf-
ann sem var hjá henni Kristjönu í
Heimilislífi. Ég er að leita mér að
sófa og finn ekki neitt sem mig
langar í en þessi var svo sjúklega
kósý. Með fyrirframþökk og með
bestu kveðjum,
Margrét
Sæl og blessuð Margrét.
Takk fyrir hlý orð. Sófinn
heima hjá Kristjönu M. Sigurð-
ardóttur, sem er arkitekt hjá
Tark arkitektum, var keyptur í
Tekk-Habitat en hún er búin að
eiga hann í nokkur ár. Hann er
úr grænu flaueli og afar hlýlegur
og smart og passar vel við gráu
hilluna úr Habitat. Hann fer líka
vel við veggljósið Flos 265 sem
fæst í Casa. Ef þú ert að leita þér
að grænum flauelssófa þá er
RINGSTORP-sófinn úr IKEA
líka mjög fallegur. Liturinn er
flöskugrænn en það er líka hægt
að fá hann í svörtu. Vonandi finn-
ur þú hlýlegan og notalegan sófa
sem þú getur kúrt í meðan þú
lest Smartland í símanum þín-
um eða í tölvunni þinni.
Hlýja,
Marta María
Ef þér
liggur eitt-
hvað á
hjarta þá
getur þú
sent mér
póst á
mm@mbl.is.
Hvar fæst svona
sófi eins og
Kristjana á?
Lesendur Smartlands eru duglegir að
leita ráða hjá mér og spyrja út í hitt
og þetta sem fjallað er um á vefnum.
Frá því Smartland fór í loftið hef ég
fengið mörg þúsund fyrirspurnir.
Hingað til hef ég svarað fyrirspurnum
fólks í gegnum tölvupóst en í tilefni af
10 ára afmæli Smartlands ætla ég að svara spurn-
ingunum á vefnum sjálfum til að leyfa lesendum að
fá innsýn í hvað gerist á bak við tjöldin. Eftir að síð-
asti Heimilislífsþáttur fór í loftið fékk ég eftirfar-
andi spurningu:
Eitursvalt Sófinn var keyptur í
Tekk-Habitat. Veggljósið fyrir ofan
sófann er Flos 265 og fæst í Casa.
Arkitekt Kristjana M. Sig-
urðardóttir var gestur
Heimilislífs í síðustu viku.
Hún á einstakt heimili en
hægt er að horfa á þáttinni
inni á Smartlandi á mbl.is.
Gamla heimilið Hér
má sjá sama sófann í
húsinu sem Krist-
jana bjó í áður.
Valkostur?
Þessi græni sófi
fæst í IKEA.