Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021
SÓLGLERAUGU
frá Aspinal of London
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Fiskbarinn var opnaður í janúar
síðastliðnum og er staðurinn er á
Hótel Bergi við Bakkaveg 16 hjá
smábátahöfninni í Keflavík. Hótelið
var stækkað og endurbyggt að
stórum hluta árið 2018 og hafa við-
tökur gesta verið mjög góðar en
það hafði alltaf vantað veitingastað
á hótelið til að skapa heildstæðari
upplifun.
Að sögn Rósu Maríu Árnadóttur,
sölu- og markaðsstjóra, er Reykja-
nesið tilvalinn áfangastaður fyrir
fólk sem vill losna úr amstri dags-
ins og breyta um umhverfi með 30
mínútna akstri frá höfuðborgar-
svæðinu í notalegheit og góðan
mat. „Þegar við byrjum að ferðast
á ný er einnig fullkomið að hefja
fríið með dvöl á Hótel Bergi. Þú
geymir bílinn hjá okkur og við
skutlum þér á völlinn,“ bætir hún
við.
Fiskmetið sótt í
göngufæri við staðinn
Fiskbarinn leggur mikla áherslu
á að veita góða þjónustu. Staðurinn
er í minni kantinum sem skapar
skemmtilega og góða stemningu.
Það var Hákon Már Örvarsson,
matreiðslumeistari og brons Bocu-
se d‘Or-verðlaunahafi, sem var sér-
stakur ráðgjafi við hönnun stað-
arins og sinnti starfi yfirkokks.
Hann útbjó matseðil Fiskbarsins
sem hefur hlotið mikið lof gesta og
byggist að miklu leyti upp á sjáv-
arfangi og grænmeti úr næsta ná-
grenni.
Ævintýralegur
matseðill á Fiskbarnum
„Frá opnun höfum við boðið upp
á ævintýralegan fimm rétta seðil
sem byggir á sjávarréttum og
grænmeti ásamt því að bjóða upp á
góða vínpörun. Á næstunni stendur
til að kynna sumarmatseðil með
nýjum og spennandi réttum,“ segir
Rósa María og segist vera spennt
fyrir komandi tímum. „Sigurður
Hjartarson tók nýlega við sem yf-
irkokkur Fiskbarsins en hann hef-
ur unnið í eldhúsi síðan hann var
14 ára gamall. Sigurður starfaði áð-
ur á virtum sjávarréttarstað í Nor-
egi sem staðsettur er við höfnina í
Kristiansand. Þegar heim var kom-
ið lærði hann til matreiðslumeist-
ara og lauk sínu námi á veit-
ingastaðnum Bryggjunni. Sigurður
elskar áskorunina sem felst í því að
búa til skemmtilega rétti úr sjáv-
arfangi og grænmeti. Hann ber
mikla virðingu fyrir hráefnunum og
hefur mikinn metnað fyrir því að
nýta eiginleika þeirra til fulls,“ seg-
ir Rósa María. Þess má einnig geta
að Manuel Schembri hóf nýlega
störf sem yfirþjónn Fiskbarsins, en
hann er með Sommelier-gráðu frá
Court of Master Sommelier í Evr-
ópu og gerði sér lítið fyrir og hlaut
1. sæti á Íslandsmeistaramóti vín-
þjóna 2021. „Siggi og Manuel
ásamt starfsfólki Hótels Bergs og
Fiskbarsins taka svo sannarlega
vel á móti þér og þínum,“ segir
Rósa María.
„Besti þorskur sem ég hef
smakkað“
Við spurðum Rósu Maríu hvaða
réttur væri vinsælastur á matseðli.
„Hingað til höfum við ansi oft feng-
ið að heyra „besti þorskur sem ég
hef smakkað!““ segir hún og en
þorskurinn á matseðlinum er
pönnusteiktur þorskhnakki með
kirsuberjatómötum, grillaðri papr-
iku, ólífum, bankabyggi og sítrónu-
og möndlukremsósu. „Eftirrétt-
urinn okkar hefur einnig slegið
rækilega í gegn enda gerður úr
Omnom-súkkulaði, lakkrísfrauði,
möndluköku, hindberjasósu og
stökkum hindberjum.“
Hugmynd að dagsferð
um Reykjanesið
Eitt af því skemmtilega við
Reykjanesið er ekki bara fjöl-
breytileikinn sem það býður upp á
heldur einnig hvað það er hægt að
skoða margt á stuttum tíma. Á ein-
um degi er hægt að skoða hveri,
stöðuvötn, hraunbreiður, svartar
strendur, ótal vita og fara í hella-
skoðun. Nóg er um náttúruundrin.
„Heitasti staðurinn í dag er eflaust
eldgosið í Geldingadölum. Ef nátt-
úran leyfir er upplagt að skella sér
í göngu þangað. Eftir gönguna er
skemmtilegt að nýta ferðina og
staldra við á nokkrum útsýn-
isstöðum líkt og Gunnuhver, Brim-
katli og brúnni milli heimsálfa. Við
mælum svo eindregið með því að
hringnum sé lokað hjá okkur, fólk
innriti sig á Hótel Berg og endi
daginn með dýrindismálsverð á
Fiskbarnum og slökun í heitu set-
lauginni. Annað sem er auðvitað í
boði eru ferðir eins og kayak- og
fjórhjólaferðir. Fyrir þá sem kjósa
heldur að stunda golf eru fjölmarg-
ir flottir golfvellir á Reykja-
nesi og einungis fimm
mínútna akstur frá
hótelinu á Leiruna,
einn flottasta golf-
völl landsins,“
segir Rósa María
að lokum.
Ævintýralegur matseðill á Fiskbarnum
Ljósmyndir/Sigurjón Ragnar
Falleg hönnun
Hönnun staðarins
var í höndum
HAF Studio
Matarkista Matur-
inn er sóttur í næsta
nágrenni og þykir
ævintýralegur.
Ferskleikinn í
fyrirrúmi Mikið er
lagt upp úr gæðum
hráefnisins.