Morgunblaðið - 21.04.2021, Side 43

Morgunblaðið - 21.04.2021, Side 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 ✝ Kristinn fædd- ist í Reykjavík 18. janúar 1939. Hann lést á heimili sínu Furugerði 1 að morgni 26. mars 2021. Foreldrar hans voru Gestheiður Árnadóttir frá Reykjavík, f. 8. júní 1919, d. 4. júlí 1961, og Alexander Geirs- son frá Akranesi, f. 21. ágúst 1911, d. 26. október 1982. Þau skildu, seinni maður Gestheiðar var Jóhann Kristinn Þor- steinsson, f. 30. ágúst 1927, d. 27. febrúar 1987. Seinni kona Alex- anders var Irma Geirsson, f. 25. september 1920, d. 19. mars 2010. Systkini Kristins eru Árni, f. 4. janúar 1941, d. 1. júní 2017, Heið- ar, f. 2. júní 1944, Sigrún, f. 21. nóvember 1945, d. 19. apríl 2010, og Þorsteinn Jóhannsson, f. 10. nóvember 1950. Kristinn kvæntist 27. mars 1970 Sigríði Jónsdóttur, f. 27. nóvember 1932, frá Skarðshlíð í A-Eyjafjallahreppi, hún er dóttir 1963, sonur þeirra er Jón Ómar, f. 31. mars 1995, fyrri maður Guðrúnar er Súddi Ólafur Stap- les, f. 28. september 1952, sonur þeirra er Sigurður Jón, f. 16. september 1984, d. 18. janúar 2016. Kristinn fæddist á Landspít- alanum í Reykjavík, fyrstu árin bjó hann í miðbæ Reykjavíkur, í Kirkjustræti 10, en fluttist síðar með móður sinni og systkinum í Camp Knox vestar í bænum. Hann gekk í Miðbæjarskólann og Melaskólann og endaði skóla- gönguna í Gagnfræðaskóla Aust- urbæjar. Kristinn var sendisveinn hjá Pósti og síma á unglingsárun- um, hann starfaði við sundlaug- arnar í Laugardal frá 1960 til 1972, og stundaði síðan almenn verkamannastörf. Jafnframt því starfaði Kristinn sem trommu- leikari um árabil, hann lék með ýmsum danshljómsveitum en lengst af með Hljómsveit Þor- steins Guðmundssonar frá Sel- fossi, Steina spil. Einnig var Kristinn listmálari og málaði átthagamyndir eftir ljósmyndum síðustu árin sér til gamans. Útför Kristins fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 21. apríl 2021, klukkan 15. Streymt verð- ur á slóðinni, (stytt slóð): https://tinyurl.com/tc6e36cd Streymishlekk má líka nálgast á: https://www.mbl.is/andlat Guðrúnar Sveins- dóttur, f. 25. ágúst 1897, d. 15. maí 1983, og Jóns Hjör- leifssonar, f. 12. júlí 1898, d. 23. júlí 1973. Börn Kristins og Sigríðar eru: 1) Heiðar, f. 20. janúar 1970, búsettur í Hafnarfirði, kvænt- ur Pálínu Ósk Hjaltadóttur, f. 5. nóvember 1975, synir þeirra eru Ágúst Hrafn, f. 27. maí 2009, Óli- ver Máni, f. 31. júlí 2012, og Sig- urbjörn Snær. f. 7. janúar 2015. Fyrri eiginkona Heiðars er Ing- unn Ragna Sæmundsdóttir, f. 11. september 1975, synir þeirra eru Alexander, f. 16. ágúst 2000, og Guðjón Ingi, f. 11. febrúar 2003. 2) Marta, f. 3. janúar 1971, búsett í Reykjavík, barnsfaðir Stein- grímur Ólason, f. 25. desember 1970. Sonur Kristinn Þór, f. 10. ágúst 1989, í sambúð með Huldu Hjartardóttur, f. 18. desember 1990. Dóttir Sigríðar og stjúp- dóttir Kristins er Guðrún Jóna Sæmundsdóttir, f. 3. júlí 1960, gift Grétari Jónssyni, f. 22. júní Elsku pabbi. Hvíldu í friði og blessuð sé minning þín. Þú komst mér í þennan heim, þú gafst mér fyrsta kossinn og mína fyrstu ást. Þú valdir á mig nafn og gafst mér mína fyrstu af- mælis- og jólagjöf. Þú fylgdir mér í skólann á mínum fyrsta skóla- degi og sást til þess að mér væri óhætt í lífinu. Þú kenndir mér að ná árangri og þú passaðir upp á að mér liði vel. Þú varst mér þolin- móður og góður við mig alla tíð. Þú kenndir mér trommuleik sem þér var ákaflega kær og í raun mótaði líf þitt að mestu leyti, en um leið mótaðir þú líf mitt með þinni arfleifð, þekkingu og visku. Með umhyggju þinni komstu mér til manns. Ég er þér ævinlega þakklátur og vona að þú hafir ver- ið stoltur af mér. Nú situr þú hjá guðs englum, situr þar og gætir mín og minna. Þú fórst veginn, veginn sem við förum öll, seinna munt þú taka á móti mér. Á meðan skal ég halda minningu þinni á lofti, sjá til þess að þín verði minnst og passa vel upp á afkom- endur þína, veita þeim sömu um- hyggju og ást. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr en örlög þín ráðin – mig setur hljóða við hittumst ei aftur á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ókunnur) Heiðar Kristinsson. Í dag fylgjum við honum Kidda, manninum hennar mömmu, síð- asta spölinn. Í Kirkjustrætinu hófst lífsganga hans og vel við hæfi að enda hana þar í „kirkjunni hans afa“ sem var dómkirkjuvörð- ur, með leikvöllinn fyrir utan sem er Austurvöllur. Ég var um 9 ára þegar mamma kom og kynnti mannsefnið hann Kidda sinn fyrir mér og foreldrum sínum, ári seinna voru þau gift og tveimur árum seinna voru komin tvö full- komin börn sem ég dýrkaði og dáði. Kiddi var mér alltaf góður, milli okkar ríkti alltaf gagnkvæm virðing og væntumþykja, og á full- orðinsárum gátum við malað endalaust um allt mögulegt og þær eru ófáar lífsgáturnar sem við höfum leyst yfir kaffibolla. Kiddi var hreinskiptinn, glaðvær og skemmtilegur maður, hann var mikill sprelligosi og með húmor- inn að vopni orti hann ljóð, sagði skemmtisögur, brandara og gerði óspart grín að sjálfum sér, hann fór aldrei í manngreiningu, allir voru jafnir fyrir honum og enginn of merki- eða ómerkilegur til að hafa gaman af, þetta eru góðir eig- inleikar sem ég mat mikils í hans fari. Veraldleg gæði voru ekki of- arlega á baugi hjá honum, hann var mjög nægjusamur, mikill safnari, henti engu og nýtti allt, gat endalaust safnað gömlu dóti og gert sem nýtt. Hann var skarp- ur maður og fróður með fullt af hæfileikum, mjög svo listrænn, spilaði á trommur, var í mörg ár hljómsveitargæi, mundaði pensil- inn svo úr urðu falleg málverk sem prýða veggi hjá fjölmörgum í fjöl- skyldunni, einnig stórskemmtileg- ar skopmyndir helst þá af sjálfum sér (kjaftaskúmi), jólasveinum og alþingismönnum. Fjölskyldan var honum efst í huga, honum var tíð- rætt um Siggu sína og afkomend- ur, hversu stoltur og ánægður okkur fannst vel við hæfi að hann væri af þeim. Síðast, daginn fyrir andlátið, ræddum við og létum mikið yfir þessum gullmolum hans, öllum sem einum, einnig sagði hann mér hversu ánægður hann væri að hafa náð að halda upp á gullbrúðkaupið og ári betur núna í byrjun mars með fólkinu sínu, það væri ekki sjálfgefið. Mín- um mönnum reyndist hann vel, alltaf boðinn og búinn bæði sem tengdapabbi og afi og kunna þeir honum bestu þakkir fyrir. Lífs- ganga Kidda var þó ekki alltaf dans á rósum, reyndar á margan hátt með ólíkindum, frá unga aldri og allt til enda var oft vitlaust gef- ið, hann mætti sorgum, áföllum og ýmsum veikindum með tilheyr- andi fötlun og sjúkrahúslegum, en alltaf stóð hann upp aftur jafn keikur og hress, eins og nýr úr kassanum og hélt ótrauður áfram, með fleiri líf en kötturinn. Kiddi átti sér líka markmið, hann ætlaði að halda ræðu á 100 ára afmæli lýðveldisins 2044 þá 105 ára gam- all og elstur Íslendinga, en úr því verður víst ekki, núna er kvótinn líklega búinn og svei mér þá, það kom mér meira á óvart en Covid og eldgos. Ég er stolt og þakklát að vera stjúpdóttir Kidda, ég mun sakna samtala okkar, hláturs- kasta og samskipta, ég á alltaf eft- ir að minnast hans og rifja upp sögurnar og brandarana sem eru oftar en ekki fullir af svörtum húmor og alls ekki fyrir viðkvæm- ar eða guðhræddar sálir. Læt samt fylgja eina vísu sem hann samdi og sagði mér stuttu fyrir andlátið, við töldum víst að enginn prestur mundi hafa þetta eftir, hvað þá yfir honum gengnum. Einmana lítil viðkvæm sál reikar á milli staða. Þeir í himnaríki segja, viljum ekki soddann kjaftafinn, en þeir í helvíti segja í guðs bænum hleypið honum ekki inn. Mér þykir ekki minna vænt um þig en þér um mig, með einlægum þökkum fyrir allt og allt. Guðrún Jóna Sæmundsdóttir. Kristinn Alexandersson ✝ Sigfús Thor- arensen fædd- ist 16. apríl 1933 í Hróarsholti í Flóa. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Grund 14. apríl 2021. Hann var sonur Helga Thor- arensen, starfs- manns Skeljungs í Reykjavík, og Soffíu Jónasdóttur húsfreyju. Bróðir hans er Jónas Thorarensen tannlæknir, f. 7. janúar 1929. Eiginkona Sigfúsar var Jó- hanna Ólafsdóttir, f. 28.10. 1934, d. 2.9. 2009. Þau bjuggu á Einarsnesi 68 (áður Þverveg- ur 30). Börn Jóhönnu og Sig- 13.9. 1961. Synir þeirra 2a) Atli, f. 14.3. 1995. Unnusta hans er Íris Ósk Jónsdóttir. 2b) Jóhann Örn, f. 27.12. 1997. 3) Jónína Þórunn hjúkrunarfræð- ingur, f. 17.12. 1965, gift Jóni Sigurðssyni tónlistarmanni, f. 17.4. 1965. Börn þeirra eru 3a) Ingibjörg Gissunn, f. 18.8. 1993. Sambýlismaður Guð- mundur E. Gíslason. Synir þeirra eru Jón Hrannar, f. 7.5. 2016, og Sigfús Jóhann, f. 26.10. 2019, 3b) Soffía, f. 28.1. 1999. Unnusti Sigþór Andri Sigþórsson 3c) Kristján, f. 27.1. 1997, og 4) Steinunn skurð- hjúkrunarfræðingur, f. 2.3. 1971. Dætur hennar og Að- algeirs Hólmgeirssonar eru 4a) Stefanía, f. 25.6. 1994. Unnusti Johan F. Alsing, 4b) Silja, f. 9.8. 2002. Unnusti Harun Cr. og 4c) Jóhanna Guðrún, f. 23.11. 2007. Sigfús ólst upp í Skerjafirði og bjó þar síðan allt þar til hann flutti á Litlu-Grund. Hann lauk stúdentsprófi frá Verzl- unarskóla Íslands 1953 og prófi frá tannlæknadeild Háskóla Ís- lands 1961. Hann vann sem tannlæknir í Kaupmannahöfn veturinn 1961-1962. Eftir heim- komuna stundaði hann tann- lækningar, fyrst með bróður sínum Jónasi og svo á eigin stofu frá 1964 á Túngötu 3 og síðar á Suðurgötu 7. Jafnframt sinnti Sigfús öllum tannsmíð- um. Sigfús gegndi ýmsum trún- aðarstörfum fyrir Tannlækna- félag Íslands og var próf- dómari við tannlæknadeild Háskóla Íslands. Sigfús var stofnfélagi í Myndhöggvara- félagi Reykjavíkur og tók þátt í útisýningum á Skólavörðuholti 1971 og í Lækjargötu 1974. Útför Sigfúsar fer fram í Neskirkju í dag, 21. apríl 2021,kl. 13 og verður streymt á slóðinni: https://youtu.be/fAySJgRBmz8 Streymishlekk má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat fúsar eru: 1) Helgi Þór, prófessor við Háskólann á Tromsö, f. 4.4. 1956, kvæntur Guðrúnu Helga- dóttur, prófessor við Háskólann í Suðaustur-Noregi, f. 9.3. 1959. Börn þeirra eru 1a) Jó- hanna háskóla- nemi, f. 30.9. 1987, gift Guillaume Rex. Sonur þeirra er Matthías Helgi Élisée, f. 2.5. 2017. 1b) Ólafur Helgi, f. 18.08. 1992. Sambýliskona hans er Paulina Skucińska. 2) Ólafur barnalæknir, f. 15.4. 1962, kvæntur Hrefnu Guð- mundsdóttur nýrnalækni, f. Að vera tekið opnum örmum er orðtak sem leitar á hugann þegar ég lít yfir farinn veg með mínum góða tengdaföður, Sig- fúsi Thorarensen. Þétta, hlýja faðmlagið var táknrænt fyrir hann. Það skipti miklu máli fyr- ir stelpustráið, sem skaut óvænt upp kollinum við hlið frumburðarins einn daginn fyr- ir margt löngu. Ég hefði ekki getað eignast betri tengdafor- eldra en Sigfús og Jóhönnu. Þau voru samrýnd og samhent, voru foreldrum sínum stoð og stytta, stoltir foreldrar og sam- starfsfólk á tannlæknastofunni, sem þau ráku. Þau ferðuðust saman, spiluðu golf og ræktuðu sambandið við vini og félaga frá skólaárunum. Einarsnes 68 var fasti punkt- urinn í tilverunni; Heimilið, með stórum staf og greini, fyrir alla fjölskylduna. Sigfús byggði húsið eigin höndum og þar bjó hann þar til hann flutti á Grund fyrir fáum árum. Sigfús var frumlegur og listrænn, hafði gaman af að þróa nýjar lausnir hvort sem það var við að byggja skorstein á sumarbústaðinn eða í matreiðslunni þar sem hann átti ýmsa sérrétti s.s. Þrusu- brauð og Siffasalat. Sigfús var stofnfélagi og fyrsti gjaldkeri Myndhöggvarafélags Reykja- víkur og tók þátt í nokkrum samsýningum. Minnisstæð er stytta af konu, sem stóð sum- arið 1974 styrkum fótum með hendur á mjöðmum í Austur- stræti og horfði ákveðin á svip upp Bankastræti. Eftir hann liggja brjóstmyndir, lágmyndir og höggmyndir, einnig útskurð- ur sem hann sinnti á efri árum. Sigfús lagði listina og það að smíða tennur alveg að jöfnu enda var hann algerlega laus við snobb og hafði lúmskt gam- an af að ögra öllu slíku. Það var mikill missir þegar Jóhanna féll frá árið 2009. Í veikindum Jóhönnu annaðist Sigfús hana og það hvað hann átti auðvelt með að tjá tilfinn- ingar sínar var börnunum og sérstaklega barnabörnunum ómetanlegt og skapaði fegurð á erfiðum stundum. Söknuðurinn eftir elskaða eiginkonu og lífs- förunaut var sár. Sigfúsi var mikil huggun í samvistunum við skemmtilega fólkið, það er barnabörnin, og langafastrák- arnir þrír voru gleðigjafar. Síðustu árin bjó Sigfús á Grund þar sem hann naut frá- bærrar umönnunar og vináttu. Þar tók hann aftur upp þráðinn og teiknaði andlitsmyndir af starfsfólki, heimilisfólki og fjöl- skyldunni. Nú þegar leiðir skil- ur eftir rúm fjörutíu ár er margs að minnast og ég kveð hann með innilegu þakklæti fyrir samfylgdina. Sigfús er farinn í friði og sátt áleiðis í Sumarlandið og skilur fólkið sitt eftir í faðmlaginu góða. Guðrún Helgadóttir. Sigfús Thorarensen Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁRNÝ SIGURLÍNA RAGNARSDÓTTIR, Mallandi á Skaga, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 23. maí klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verða því miður einungis hennar nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir. Streymt verður frá útförinni á vefslóðinni https://www.youtube.com/watch?v=P6LAM-g11LE Sigurður Leó Ásgrímsson Kristín Guðbjörg Snæland Ásgrímur Gísli Ásgrímsson Gerður Guðjónsdóttir Helga Baldvina Ásgrímsd. Sigtryggur Snævar Sigtryggs. Anna María Ásgrímsdóttir Guðmundur Örn Jensson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Bróðir okkar og mágur, STEINÞÓR KRISTJÁNSSON, vörubílstjóri frá Geirakoti, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju föstudaginn 23. apríl klukkan 13:30. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Streymt verður frá útförinni á vef Selfosskirkju. Katrín Kristjánsdóttir Sigrún Kristjánsdóttir Gunnar Kristmundsson Ólafur Kristjánsson María Hauksdóttir Aðalheiður Edilonsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG KRISTINSDÓTTIR frá Brautarholti/Fallandastöðum í Hrútafirði, lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 9. apríl. Útförin fer fram frá Staðarkirkju í Hrútafirði föstudaginn 23. apríl klukkan 14. Athöfninni verður streymt á FB-síðu Melstaðarprestakalls: https://tinyurl.com/wm2tp8 Einnig verður útsending á FM 106,5 við kirkjuna. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á sjúkrahúsið á Hvammstanga. Björn Ingi Sverrisson Margrét K. Guðmundsdóttir Kristín Anna Sverrisdóttir Ásgeir Sverrisson Kathrin Schmitt Alda Berglind Sverrisdóttir Lárus Jón Lárusson ömmubörn og langömmubörn Ástkær dóttir okkar, systir, móðir, amma og frænka, FANNEY JÓNA JÓNSDÓTTIR frá Siglufirði, lést á heimili sínu laugardaginn 10. apríl. Útför frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 24. apríl klukkan 16. Fjölskyldan er harmi slegin yfir að komið sé að kveðjustund elsku Fanneyjar okkar. Sandra Guðnadóttir Sveinn Óskar Bergþórsson Aron Heimir Tyrfingsson Jón Nonni Jónasson Sigríður Þórdís Júlíusdóttir Jóhanna Ásta Jónsdóttir Gio Pagnacco Júlía Margrét Jónsdóttir Guðmundur Fr. Matthíasson Jónas Ríkarð Jónsson Berglind Magnúsdóttir Júlíus Sigurður Jónsson Steinunn B. Jósteinsdóttir Arnar Þór Sigríðarson Hulda Marín Kristinsdóttir barnabarn Embla Sigríður & aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.